Vikan


Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 51

Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 51
skyldu hans. í bréfum, sem hann skrifaði systur sinni, kemur fram að hann var far- inn að velta því fyrir sér að „losa sig við hana“. Mikið sorg dundi yfir MacLeodfjölskylduna þegar bæði börnin tóku heiftarlega sótt. Stúlkunni tókst að bjarga en drengurinn lést, aðeins tveggja ára að aldri. Nokkrum dögum siðar lést ein barnfóstranna af völdum kóleru og játaði hún á bana- beði sinu að hermaður hefði skipað henni að eitra mat fjölskyldunnar. Sumir héldu því aftur á móti fram að her- maðurinn hefði verið unnusti barnapíunnar og hefði hann viljað hefna sín á Rudolph fyrir að hafa reynt að fleka hana. Sorgin náði ekki að færa MacLeodhjónin nær hvoru öðru og tók Rudolph að beita konu sína enn meira harð- ræði en áður. Hann svívirti hana jafnvel á opinberum stöðum svo aðrir heyrðu til. Árið 1901, þegar Margar- etha var 25 ára, flutti fjöl- skyldan loks aftur til Amster- dam. Ekki batnaði hjóna- bandið og einn ágústdag, ári síðar, fór Rudolph út með Non og sagðist þurfa að pósta bréf. Hann kom aldrei til baka. Margaretha sá ekki eftir eiginmanninum en tók það mjög nærri sér að hann skyldi hafa tekið dóttur þeirra. Hún sótti um skilnað, seldi eigur þeirra og flutti inn á hótel. Rudolph var dæmdur til að greiða henni mánaðar- lega upphæð en gerði það aldrei. Þess í stað setti hann auglýsingu í blöðin þar sem hann varaði fólk við að selja fyrrverandi eiginkonu sinni vörur eða veita henni yfirhöf- uð nokkra þjónustu. Auglýs- ingin hjálpaði lítið til þegar Margaretha fór að leita sér að vinnu. Þegar það rann upp fyrir henni að hún gæti ekki séð fyrir sér hélt hún til Parísar. Þegar hún var spurð af blaðamanni löngu síðar af hverju París hefði orðið fyrir valinu svaraði hún: „Ég veit það eiginlega ekki. Ég hélt bara að allar konur sem hlypust burt frá eiginmönn- um sínum héldu til Parísar." Hún reyndi fyrir sér sem fyrirsæta hj@ listmálurum en tókst ekki vel upp. Hún sneri auralaus aftur til Hollands. Tveimur árum síðar safnaði hún aftur kjarki og fór til Parísar. Að þessu sinni gekk henni betur og fékk hún vinnu í reiðskóla. Eigandi skólans hafði gott auga fyrir fegurð og benti Margarethu á að kona, með jafn fallegan líkama og hún, gæti auð- veldlega orðið dansari. Hún leitaði aðstoðar hjá frönsk- um diplómat, sem hún hafði kynnst í Holiandi og vissi að hafði talsverð sambönd í skemmtanaheimi borgarinn- ar. Þetta leiddi til frama hennar í leikhúsunum. DULARFULLA DANSMEYIN FRÁ JÖVU í upphafi aldarinnar var at- vinna dansmeyja á mörkum þess að vera talin til glæps og góðra siða og fljótlega var Margaretha orðin ein þeirra kvenna. Hún hafði engu að tapa þar sem hún hafði hvort sem er brugðist eiginmanni og barni svo illi- lega að þau höfðu yfirgefið hana. Margaretha hóf feril sinn undir nafninu Lady MacLeod. Hún spann upp þá sögu að hún hefði fæðst á Jövu og gifst þar herfor- ingjanum Sir George MacLeod. Hlutverk hennar var að kynna Parísarbúum þá dansa sem voru dansaðir í heimalandi hennar. Aðdá- endur hennar voru sann- færðir um að þetta væri allt satt og rétt. Mata Hari kom fram í austurlenskum búningum, með framandlegt höfuð- skraut og platta fyrir brjóst- unum. Um ökkla og úlnliði bar hún armbönd og líkam- ann huldu marglitar slæður sem hún týndi af sér hverja á fætur annarri. Hún dansaði gjarnan í kringum styttu af guðinum Siva. Dansinn þótti mjög erótískur og ýtti hann undir þá ímynd sem austur- lenskar konur höfðu á þess- um tíma. Menn lofuðu fagr- an líkama þessarar heillandi, indísku konu. Gagnrýnendur spáðu þvf að nú mætti Isa- dora Duncan fara að vara sig en danssýningar hennar voru þá á afar vinsælar. Eitt dagblaðanna skrifaði meira að segja: „Isadora Duncan er dauð. Lengi lifi Mata Hari!“ Meðal þeirra sem heilluð- ust af Lady MacLeod var maður að nafni Guimet sem átti mikið safn austurlenskra muna. Hann bað hana að dansa í safninu undir nýju nafni. Eftir nokkrar vanga- veltur varð Mata Hari fyrir valinu en það þýðir Auga dagsins. Nafnið festist við Margarethu Zelle. Vinsældirnar jukust og ár- ið 1905 kom Mata Hari þrjá- tíu sinnum fram á frægustu skemmtistöðunum í París, sex sinnum í Trocadéro leik- húsinu og á heimilum fólks á borð við baróninn Henri de Rothschild og hina frægu leikkonu Comédie-Fran- caise, Cécile Sorel. Mata Hari spann sífellt upp nýjar sögur til að mark- aðssetja sig betur og ein var á þá leið að hún hefði verið alin upp af hofprestum sem þjálfuðu hana í dansi og helguðu sál hennar guðinum Siva. Þrettán ára að aldri hefði hún verið farin að dansa nakin í hofi hans. Til allrar hamingju varð enskur herforingi ástfanginn af henni og bjargaði hann henni frá þessu auma lífi. Sagan kveikti undir eró- tískum fantasíum karlkyns aðdáenda hennar og gerðu hana meira spennandi. Þessi uppdiktaða fortíð varð einnig til þess að yfirvöld létu nektardans hennar óafskipt- an en skömmu áður en hún kom fram á sjónarsviðið hafði önnur dansmey verið dæmd í fimmtán daga fang- elsi fyrir að „ósiðlegan dans“. Þegar einn gagnrýnenda líkti dansi Mata Hari við dans Salóme, sem dansaði fyrir Heródes og fékk að launum höfuð Jóhannesar skírara, fékk hún þá hugmynd að semja dans þar sem hún dansaði hlutverk hennar. Hún hlaut mikið lof fyrir en ef til vill átti þessi tenging henn- ar við Salóme síðar eftir að koma henni í koll. Mata Hari gerðist hjákona auðugs, þýsks landeiganda sem gerði henni kleift að koma sér upp heimili í Berlín og bjó hún þar um tíma. Ekkert var fundið að því þótt menn ættu hjákonur á þess- um tíma og gátu konur haft nokkuð gott upp úr því. Mata Hari var nú orðin þekkt víða í Evrópu, enda hafði hún dansað á sviði í París, Berl- ín, Vín, Monte Carlo og Míl- I anó. Hún var auðug kona og gat meðal annars leyft sér að ferðast til Egyptalands til að sjá þá dansa sem þar tíðkuðust. Árið 1908 sneri hún aftur til Parísar. Hún varð fyrir vonbrigðum þegar hún sá að á skemmtistöðunum, þar sem hún hafði áður troðið upp, komu nú fram dans- meyjar sem voru lítið annað en lélegar eftirlíkingar af henni. Mata Hari hélt þó áfram að vekja aðdáun og varð hún brátt ástkona fransks stjórnmálamanns sem sá henni fyrir fjórum hestum og einbýlishúsi búnu dýrindis húsgögnum. Þegar leiðir þeirra skildu var hann rúinn inn að skinni. Mata Hari í mars 1915. Mata Hari var farin að nálgast fertugsaldurinn en á þeim aldri sáu margar dans- meyjar sér ekki annað fært en að draga sig úr sviðsljós- inu. Hún átti þó nógu mikinn kraft eftir og barðist hat- rammlega fyrir því sem hún öðlaðist - þar með talið karl- mönnum. Þegar Mata Hari varð ást- fangin af franska hernaðar- málaráðherranum, Adolphe- Pierre Messimy, lét hún rigna yfir hann heimboðum og bréfum og dúkkaði jafn- vel upp heima hjá honum til að vingast við eiginkonu hans. Hún fékk hann að lok- um. Því meira sem stjarna hennar á sviðinu hné því merkari urðu elskhugar hennar. FRH.Á BLS.54 l. TBl. 1995 VIKAN 51 ÆVISAGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.