Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 24
VOLVUSPAIN
Þetta
veröur
erfitt ár
hjá
bresku
konungs-
fjölskyld-
unni af
ýmsum
ástæö-
um. ..
varlega eftir mitt árið til þess
að varast hættur sem hon-
um eru búnar. Sama má
segja um Sihanouk, prins í
Kambódíu, og Rússann
Vladimir Zhirinovsky, leið-
toga öfgafullra þjóðernis-
sinna í Rússlandi.
Háttsettur maður í fyrrum
Sovétríkjunum verður myrtur
á árinu.
Balkanlöndin reynast
Moskvu óþægur Ijár í þúfu
og Sovétmenn gætu þurft að
kveða niður uppreisn í Úkra-
ínu á árinu. Rússar hafa þó
æ minni áhuga á stjórnmál-
um, hrár kapítalismi á hug
þeirra allan og er það afl
sem mun breyta fjármálum
þjóðarinnar árið 1995.
Jeltsín þrjóskast við að
kalla herinn heim úr Grosníu
en íbúar hennar eru herská
þjóð og ekki á því að gefast
upp átakalaust. Segja má að
Viö eig-
um eftir
aö veröa
talsvert
vör viö
Gor-
bachev á
næsta
ári.
rússneska mafían hafi verið
fundin upp á þessum slóð-
um og þaðan flætt yfir hinn
vestræna heim. Völvan segir
að því sé það með blendn-
um huga sem menn slá á
fingur Jeltsíns og hún bætir
þvi við að henni sýnist átökin
í Grosníu eiga eftir að minna
mest á átökin í Afganistan.
Völvunni sýnist átökin vara
mánuðum eða árum saman
og einnig að Tjetjenar eigi
eftir að berjast til síðasta
blóðdropa.
Jeltsín á eftir að verða fyrir
þungu áfalli á árinu.
Gorbachev á eftir að
koma skyndilega áberandi
fram í sviðsljósið á næsta ári
og í Ijós kemur að hann er
langt frá því að vera dauður
úr öllum æðum.
Hörmungunum í Bosníu-
Herzegóvínu er engan veg-
inn lokið ennþá og mikill titr-
ingur verður í samskiptum
Serba og Júgóslava á árinu,
þótt öldurnar eigi eftir að
lægja vel fyrir aldamót.
Tyrkir fara í stríð við Kúrda
sem á eftir að draga dilk á
eftir sér.
Þras og vesen verður milli
aðildarríkja EES á árinu og
nokkur smáríki hóta að
segja sig úr sambandinu
vegna þess að þótt mark-
miðin segi að allir eigi að
sitja við sama borð er svo
ekki í raun, og gróflega er
brotið á smáríkjunum.
NORDUR- OG SUÐUR-
AMERÍKA
Um allan heim eru landa-
mæri að hverfa um leið og
aldamótin nálgast. Kanada-
menn munu varpa fram
þeirri spurningu hvort nokk-
urt vit sé í að halda áfram að
vera sjálfstætt land þegar
landsvæði, sem eiga sam-
eiginlegra fjárhagslegra
hagsmuna að gæta, taka
hvarvetna höndum saman
og þjóðfánar eru hættir að
skipta máli.
Breytingar á heilbrigðis-
málum Bandaríkjanna líta
illa út á árinu og spurt verður
hvernig eigi að borga fyrir
allar þær breytingar sem for-
setinn vill gera. Of flókið og
of dýrt, segja kjósendur.
Fleiri fjármálamisferli Clin-
tonhjóna, frá því áður en
Clinton varð forseti, koma
fram í dagsljósið. Fasteigna-
mál á við Whitewatermálið
munu herja á Clinton á ár-
inu. Þessi mál verða síst til
að bæta stöðu hans, auk
þess sem Hillary og Bill
munu eiga í miklum pers-
ónulegum örðugleikum inn-
an hjónabandsins.
Upplýsingar um dauðsföll
tveggja nánustu vina og
samstarfsmanna forseta-
hjónanna koma fram í dags-
Ijósið og skekja gjörvalla
bandarísku þjóðina. Annar
þeirra var sagður hafa fram-
ið sjálfsmorð sem þótti frá
upphafi vafasöm skýring.
Þótt reynt hafi verið að halda
lokinu á potti þessa máls
mun sjóða upp úr á árinu og
ýmislegt skuggalegt koma á
daginn.
íþrótta- og sjónvarpshetj-
an O. J. Simpson verður
fundinn sekur um að hafa
myrt Nicole, konu sína, og
kunningja hennar, Ron Gold-
man, en hlýtur ekki daúða-
dóm. Kviðdómur kemst að
sameiginlegri niðurstöðu
þrátt fyrir margra vikna erfiða
einangrun.
Róttækra breytinga er að
vænta á fjármálasviði í
Bandaríkjunum snemma árs.
Verðbólgan kemst á aukinn
hraða, sem leiðir til meiri
spákaupmennsku og óstöð-
ugleika á markaði. Fólk tek-
ur meiri áhættur og sýnir af
sér öfgakennda hegðun. Fé-
lagslegar siðvenjur verða
mun frjálslegri og það dregur
úr hömlum.
Á Haiti eru vandamálin
síður en svo leyst; heldur
halda þau áfram að verða
flóknari og flóknari þar til þar
að kemur að Bandaríkja-
stjórn verður að taka í taum-
ana.
TÆKNI OG VÍSINDI
Krabbameinsrannsóknum
hefur fleygt fram þótt hljótt
hafi farið og lyf við krabba-
meini finnst á árinu. Nú verð-
ur léttara fyrir fólk að lifa
með krabbameini og þær
svæsnu ráðstafanir, sem
einar hafa dugað fram til
þessa, verða á undanhaldi.
Búast má við mikilvægri
þróun í meðferð HlV-veir-
unnar þegar lyf, sem heldur
niðurbroti ónæmiskerfisins í
skefjum, kemur fram á sjón-
arsviðið, hugsanlega frá nor-
rænu landi, þótt helst sé bú-
ist við landvinningum Frakka
í þessum efnum þar eð þeir
hafa fram til þessa verið virk-
astir í að finna lyf og leiðir.
Alnæmissjúklingar geta nú
lifað miklu lengur með sjúk-
dómnum með því að taka
lyfin að staðaldri. Þær fram-
farir sem verða á árinu, hafa
einnig jákvæð áhrif á með-
ferð annarra ónæmiskerfis-
sjúkdóma.
Tölvudrifin samskiptatækni
verður breytingaaflið í heim-
inum á næsta ári. Tæknin
mun flytja fjármuni yfir landa-
mæri þeirra landa, sem
streitast á móti nýrri verald-
arsýn, og knýja fram breyt-
Völvan sér fyrir niöurstööu kviödómsins í máli O. J. Simp-
son.
24 VIKAN 1. TBL. 1995