Vikan - 20.01.1995, Qupperneq 25
ingar á því
hvernig við
lifum og störf-
um.
Öll störf,
sem launuð
eru af skatt-
borgurunum,
munu leggj-
ast af á næst-
unni og framsækin þjóðfélög
munu halda áfram að
mennta borgara sína alla
þeirra starfsævi. Um alda-
mót verður það fólk í minni-
hluta sem er „æviráðið" og
fastráðið. Eina starfsöryggið
mun felast í því að hafa selj-
anlega kunnáttu í stöðugri
endurskoðun og færanleg
lífeyrissjóðsréttindi.
Mikilla framfara er að
M K-ítill hagvöxtur í
Bretlandi veróur
ríkisstjórn Johns
Major fjötur um
fót.
T Hjónabönd sam
kynhneigóra kalla
fram harkaleg viö-
brögó páfa.
Hussein er enn viö sama
heygaröshorniö.
vænta í nanotækni, smækk-
unarvísindum sem munu,
þróast svo ört að þau breyta
lífsstíl fólks.
Mörg lyfjafyrirtæki verða
gjaldþrota eða verða seld
fyrir skiptimynt á næstu ár-
um. Niðurskurðarhnífar ríkis-
stjórna knýja fram breytingar
á þessum iðnaði og vel er
hugsanlegt að þessi þróun
verði til þess að aðeins fjórir
risar standi eftir á fjölþjóða-
markaði lyfja.
Allar líkur eru á því að
miklar breytingar verði í
einkatölvuiðnaðinum á árinu
en Ijóst er að tækniframfarir
auka mátt einkatölvunnar
gífurlega á árinu. Þessar
breytingar munu gera einka-
tölvuna og upplýsingahrað-
brautina aðgengilegri fyrir
enn fleiri. Menntun kvenna í
fátækari löndum heims eykst
gífurlega í kjölfarið. Þau lönd
sem auðgast verða þau sem
aðhyllast frjálsan markað og
frjálsari vöruskipti.
AFRÍKA OG ASÍA
Saddam Hussein leggur
nú enn einu sinni á ráðin um
heimsyfirráð þar sem hann
situr í byrgi með undirheima-
liði sínu. Hussein er enn við
sama heygarðshornið og gíf-
urleg spenna verður í
Mið-Austurlöndum á árinu.
Hann stendur þó frammi fyrir
mestu ógnun síðan á tíma
Eyðimerkurstorms og líklegt
er að valdatímabil hans sé á
enda fyrir sumarlok.
Uppþot eru líkleg í Suður-
Afríku. Þjóðunum tókst að
kjósa sér lýðræðislega ríkis-
stjórn en framtíð Afríku velt-
ur nú á því hvernig fólkið
deilir upp landinu og skiptir
auðnum. Nú skiptir sköpum
að önnur lönd treysti nægi-
lega á Afríku til þess að fjár-
festa þar og örva þannig
hagvöxt í landinu.
Suður-Afríka nýtur ekki
starfskrafta eins sinna dáð-
ustu leiðtoga öllu lengur
vegna heilsubrests viðkom-
andi. Völvan segist eiga erfitt
með að greina hvort þetta
gerist á almanakssárinu eða
fyrri hluta árs ’96.
í Norður-Afriku komast
stjórnskipunarvandamál
stjórnarinnar í heimsfréttirnar.
í Rúanda halda hauskúp-
urnar áfram að hlaðast upp
en líklegt er að einhverjir
tveggja miiljóna flóttamanna
hefni fyrir þjóðarmorðið áður
en öldin er úti.
í Zambíu og Zaire er að
vænta uppþota vegna and-
stöðu við stjórnvöld.
Breytingar eru væntan-
legar í Suðaustur-Asíu vegna
misræmis í hagvexti sem
gerir félagsmál erfið. Þensla
Kína kemur ekki öllum hér-
uðum jafnt til góða og álagið
gerir að verkum að eitt hérað
berst gegn því næsta. Ríkis-
stjórnin á á hættu að norður-
og suðurhéruðin heimti al-
geran aðskilnað.
íbúar Hong Kong óttast æ
meira um frelsi sitt og fé því
nær sem dregur sameining-
unni við Kína árið 1997. Ekki
er að vænta neinnar slökun-
ar á spennu í Kóreu.
í íran er mikilla jarðskjálfta
að vænta á árinu sem og
Japan og hlutar Suðaustur-
Asíu eru einnig í hættu
vecina jarðskjálfta.
Ibúar í Brasilíu, Perú og
Ekvador munu krefjast meiri
réttinda og betri lífsskilyrða
og Panama gæti krafist nýs
leiðtoga.
Landamæri Indlands og
Leiö-
toga
öfga-
fullra
þjóöern-
issinna ■
Rúss-
landi er
hætta
búin.
Pakistans verða með róleg- í Rúanda
asta móti á árinu. haida
Japanskir borgarar eru j’s?us"
óánægðir með þær breyting- ar áfram
ar sem gerðar hafa verið á aö hiaö-
lífskjörum þeirra vegna fjár- ast upp.
hagslegs samdráttar. Liklegt
er að verslunarsamningar
Bandaríkjanna og Japan
verði stál í stál með haust-
inu. Samskipti Japan og
Sovétríkjanna verða einnig
stirð á árinu, í þetta sinn
vegna fjármála, auk þess
sem ósætti vegna Kurileyja
eykst. □
l.TBL. 1995 VIKAN 25
VOLVUSPAIN