Vikan - 20.12.1998, Síða 44
Hvers vegna ekki að leggja höfuðið í bleyti og
gefa öðruvísi jólagjafir í ár? Taka frá nokkur
kvöld, kveikja á kertum, narta í smákökurnar
og búa sjálf til jólagjafirnar. Með því móti
komumst við hjá því að hlaupa milli verslana
á Þorláksmessu með streituglampann í aug-
unum og heimatilbúnar jólagjafir fara betur
með budduna. Fyrir utan það að jólagjafirnar
verða allt öðru vísi en þær sem við erum vön
að gefa, því hver kannast ekki við að gjafirnar
verða oft ansi keimlíkar frá ári til árs, bók fyr-
ir mömmu og pabba, geisladiskar fyrir tán-
inginn, skyrta og bindi fyrir eiginmanninn
o.s.frv. Þannig að nú er bara að hefjast
handa.
ÓVENJULEGAR JÓLAGJAFIR
Texti: Þórunn Stefánsdóttir Myndir: Hreinn Hreinsson
BÚÐU TIL ÞÍWAR EIGIN JQLABÆKUR
Því ekki að bæta eigin bókafram-
leiðslu í jólabókaflóruna? Setjast niður
við tölvuna, eða með blað og marglita
penna, láta hugann reika, rifja upp
ýmsa atburði sem gerst hafa í gegnum
tíðina og koma þeim niður á blað. Hér
koma nokkrar hugmyndir um efni og
bókartitla.
BRQT ÚR ÞVÍ BESTA
Flest börn gera mikið af því að skrifa
sögur og vísur og skreyta með myndum
í sterkum og fallegum litum. Margar
mömmur hafa geymt þessar litlu hug-
smíðar eins og sjáaldur auga síns til
minningar um listræna hæfileika dóttur-
innar/sonarins. Væri nú ekki aldeilis
frábær jólagjöf að safna þessum verkum
saman, líma þau á blöð og binda inn á
einfaldan hátt? Það má svo lesa upphátt
úr bókinni fyrir gesti í jólaboðinu!
PERLUR BÓKHTAHA
Ein skemmtilegasta jólagjöf sem ég
hef séð er bók nokkur sem fátækur
námsmaður í Bandaríkjunum gaf vin-
konu sinni á Islandi. Hann blaðaði í öll-
um uppáhaldsbókunum sínum, skáld-
sögum og ljóðabókum, tók úr bókunum
fallegustu ljóðin og setningar. Hann
prentaði þetta úr tölvunni á fallegan
pappír, keypi stífan pappa og notaði
fyrir bókarkápu og skreytti fallega. Við-
takandinn lítur á þessa bók sem falleg-
ustu og dýrmætustu jólagjöfina sem hún
hefur nokkru sinni fengið.
ÞETTA SÖGÐU GÓÐIR MEIUN 06 K0l\IUR Á GÓÐRI
STUIUD:
Safnaðu saman öllum gullkornum sem
hafa hrokkið upp úr viðtakandanum,
vinum hans og fjölskyldumeðlimum.
Ymsir vinahópar og fjölskyldur eiga
sínar tilvitnanir og orðatiltæki sem hafa
orðið til við skondnar kringumstæður
og ganga eins og rauður þráður í gegn-
um allar viðræður. Það er ekkert að því
að eiga slíkar tilvitnanir saman konar á
einum stað og hlæja að þeim saman.
BESTU BRANDARARIUIR
Tíndu saman alla uppáhaldsbrandara
þína og vina þinna. Þú getur skrifað
mjög fræðilegan formála og gjarnan
skipt bröndurunum upp í kafla, t.d.
Ijóskubrandarar, tvíræðir brandarar
o.s.frv.
Þessar gjafir kosta litla peninga, eini
kostnaðurinn er pappírin og umbúðirn-
44