Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 4
Laus við fíknina
Ég er orðin frjáls!
Ég get lifað heilu dagana án þess
að hlusta áfréttir eða sjá þœr. Ég
þurfti ekki einu sinni að fara í með-
ferð eins og hinir fíklarnir. Pótt
batinn vœri stundum sársaukafull-
ur rjátlaðist þetta afmér sjálfkrafa,
þökk sé yfirmönnum RÚV.
Fréttafíkn er ekkert til að grínast
með. Einu sinni var ég þannig að
ég gat helst ekki lifað án þess að
hlusta fyrst á morgunfréttir, klukk-
an átta (helst á báðum stöðvum í
einu), síðan hádegisfréttir bœði á
Bylgjunni og RUV, þá hlustaði ég næst á kvöldfréttir RUV
og lauk neyslu dagsins með því að Itorfa fyrst á kvöldfrétt-
ir Stöðvar 2 og síðan Ríkissjónvarpsins. Þegar verst lét
reyndi ég að ná líka seinni fréttunum, helst á báðum stöðv-
um.
Þessi fréttafíkn var gersamlega óbœrileg og alltaf fylgdist
ég með, hlustaði og horfði á sömu fréttina í mörgum útgáf-
um, aftur og aftur, daginn út og inn ogfannst ég ekki með
nokkru móti mega missa afeinu orði.
En svo breyttist allt og nú er mér alveg sama þótt ég heyri
bara morgunfréttir klukkan átta með öðru eyranu og sjái
kvöldfréttir Stöðvar tvö. Ég get varla sagt að ég heyri há-
degisfréttir lengur, ég er farin að gleyma að kveikja á þeim!
Breytingin varð þegar mér var tilkynnt að aðstœður mínar
hefðu breyst svo mikið (skv. skoðanakönnun) að ég œtti
framvegis að hlusta á mínar kvöldfréttir klukkan sex. Og
ekki nóg með það, ég átti líka að byrja að horfa á kvöld-
fréttirnar klukkan sjö, það hentaði mér betur!
Ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Ég er nánast aldrei komin
heim úr vinnu klukkan sex til að hlusta á kvöldfréttir.
Klukkan sjö er ég ekki tilbúin til áð fara að horfa á sjón-
varp, það vill nefnilega þannig til, að þegar ég kem heim
eru garnirnar farnar að gaula hjá heimilisfólkinu ogfólk
sameinast í eldhússtússi sem endar með kvöldverði. Ég get
vel hlustað á kvöldfréttir meðan ég elda eða borða, en það
er útilokað að ég geri það yfir sjónvarpinu.
Ogþað er alveg sama hvað ég reyni, ég get ekki með
nokkru móti notað mér þessa nýju útsendingartíma ríkis-
fréttastofanna. Ekki einu sinni fyrir ríkið.
Ég heyri að ég er ekki eina manneskjan sem hefur hlotið
lækningu. Það er almenn ánœgja ríkjandi með þessar
breytingar í þjóðfélaginu. Fjölmargar konur sem ég þekki
heyra aldrei kvöldfréttir lengur, þœr hætta flestar að vinna
klukkan fimm, þá á eftir að versla, sœkja börnin og redda
liinu og þessu áður en farið er heim. Engin þeirra er kom-
in í ró til að hlusta á fréttir klukkan sex hvað þá horfa á
sjónvarpsfréttir klukkan sjö. Flestar mega hafa sig alla við
að ná fréttum klukkan hálfátta. Og staðreyndin er þessi,
flestum er orðið alveg sama. Það er búið að kenna okkur
að vera ekkert að stressa okkur yfir þessu. Við verðum
náttúrlega að gegna og breyta lífsmynstri okkar þannig að
henti þeim sem ráða fréttatímunum. - Sem sagt losa okkur
við fréttafíknina.
En það má alltaf finna sér eitthvað að dunda við, til dœmis
að lesa Vikuna sína.
Og það er nóg að lesa að vanda; viðtal við Lólu, sund-
kennara með meiru, sem kennir bœði ungum og öldnum,
grein um kynþokkafyllstu karla aldarinnar sem er að
renna sitt skeið og hvernig megi halda lífi í gömlum glæð-
um. Hér er líka að fmna grein um ilmvötn, kynþáttahatur
á íslandi og œvintýraborgina Las Vegas. Það er handa-
vinna, matur og fallegir sófar í blaðinu, svo ekki sé nú tal-
að umföstu þœttina eins og lífsreynslusögurnar ogfram-
haldssöguna, og margt, margt fleira - þessi œtti svo sannar-
lega að endast í viku.
Njóttu Vikunnar
Steingerður Hrund Margrét V. Kristín Anna B. Guðmundur
Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Guðmunds- Þorsteins- Ragnar
dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir Steingrímsson
blaðamaður auglýsinga- auglýsinga- Grafiskur
stjóri stjóri hönnuður
Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal-
ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515
5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V.
Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristin Guðmunds-
dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein-
grímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef
greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef
greitt er með giróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak.
Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555