Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 8
„Ég hef séð svo margt fólk í laugunum sem beitir röngum aðferðum og
mig langar þá að laga sundtökin aðeins til. Ég ákvað því að bjóða upp á
þessi skriðsundsnámskeið og þau hafa verið mjög vinsæl.“
skeið kemur fólk frá tvítugs-
aldri til rúmlega stjötugs
þannig að segja má að ég sé
með flesta aldurshópa í
lauginni og það finnst mér
mjög skemmtilegt. Mér líður
Lóló scgir að litlu hiirnin styrkist
mjög í sundlauginni. Hcr cr lnin
incð Þórhildi litlu í æfingum ug ckki
annað að sjá cn sii litla standi sig
nijiig vcl.
bara svo vel í vatni. Þetta er
í genunum. Ég held að ég sé
vatnsköttur í eðli mínu.“
Unaðsstundir fyrir fjöl-
skylduna
í sundlauginni í Breiðholti
ríkir mikil gleði, bæði hjá
litlu börnunum og ekki síður
foreldrum þeirra. Lóló
kennir þátttakendum ýmsar
æfingar og litlu börnin
standa sig eins og hetjur í
vatninu. Lóló lætur þau
meira að segja fara í kaf.
Síðan er farið í siglingu á
vindsæng og Lóló syngur af
innlifun nokkur skemmtileg
lög og foreldrarnir syngja
með. Lóló skemmtir sér
greinilega konunglega sjálf,
ekkert síður en börnin og
foreldrarnir.
„Ég nýt þess að vera með
börnunum og kenna þeim.
Þetta er mjög skemmtilegt
og börnin gefa mér ótrúlega
mikið. Ég segi að þetta séu
unaðsstundir fyrir fjölskyld-
una. Fólki líður alltaf vel í
vatni og það hefur róandi
áhrif. Börnin slaka vel á í
lauginni og foreldrarnir líka.
Lfngbarnasundið er líka
mjög mikilvægt fyrir börnin
því það styrkir þau gríðar-
lega mikið. Þau eru svo dug-
leg og ótrúlega fljót að læra.
Eftir þriðja eða fjórða tíma
sér maður mikinn mun á
þeim. Þá eru þau búin að
öðlast öryggi og njóta hreyf-
inganna í vatninu. Þau eru
nefnilega ótrúlega sterk og
það er mjög gaman að fylgj-
ast með þeim. Þau koma
mörg hingað til mín þriggja
mánaða gömul og eru hjá
mér þangað til þau eru farin
að ganga. Þau eru miklir vin-
ir mínir og það er ekki ama-
legt að eiga slíka vini,“ segir
hún og brosir. Lóló segir að
vinsældir ungbarnasundsins
hafi aukist jafnt og þétt á
undanförnum árum og nú sé
mjög mikil ásókn í tímana.
Ótrúlegar uppákomur
hjá krökkunum
Lóló kennir einnig börn-
um á leikskólaaldrinum.
„Með þennan aldur vinn ég
að mestu í gegnum leiki.
Með því næst mjög góður
árangur og við skemmtum
okkur hið besta öll saman.
Það eru oft ýmsar uppákom-
ur í sundtímum og það
koma alls konar gullkorn frá
krökkunum. Þau eru svo
fyndin og skemmtileg. Um
daginn var ein fjögurra ára
stúlka að fara stinga sér
ofan í þegar hún allt í einu
hætti við og sagði hátt:
„Lóló, veistu hvað.“ Ég
snéri mér við eins og öll
börnin, sem verða alltaf
gapandi af spenningi ef eitt-
hvert þeirra ætlar að segja
eitthvað. Sú stutta hélt
áfram: „Lóló, það kom al-
veg mikið, mikið blóð á
hálsinn á mér um daginn."
Ég spurði auðvitað forviða
hvernig það hefði gerst og
ekki stóð á svari frá þeirri
stuttu: „Jú, sko ég var að
raka mig!“ Þá hafði hún tek-
ið rakvélasköfuna hjá pabba
sínum, reynt að herma eftir
honum í rakstrinum og skor-
ið sig en sem betur fer ekki
alvarlega. Ég sagði strax við
hana að við stelpurnar þyrft-
um ekki að raka okkur. Þá
svaraði hún ansi brött: „Já,
ég veit það núna. Það eru
bara pabbi og afi sem þurfa
þess.“
Fylgir strákunum sín-
um í boltanum
Hvernig kom til að þú
ákvaðst að kenna fullorðnu
fólki skriðsund? „Það var
lítil áhersla lögð á skrið-
sundskennslu í skólunum
hér á árum áður. Margir
hafa hins vegar gengið með
það í maganum í gegnum
tíðina að geta synt skrið-
sund. Ég hef séð svo margt
fólk í laugunum sem beitir
röngum aðferðum og mig
langar þá að laga sundtökin
aðeins til. Ég ákvað því að
prófa að bjóða upp á þessi
skriðsundnámskeið og þau
hafa verið mjög vinsæl. Það
má segja að þetta vindi upp
á sig því fólk hefur komið til
að prófa námskeiðin og bent
síðan vinum og vandamönn-
um á þetta. Mér finnst af-
skaplega gaman að geta
miðlað þeirri þekkingu og
reynslu sem ég hef öðlast í
sundinu til annarra. Ég hef
líka verið að aðstoða fólk
sem á við vatnshræðslu að
stríða."
Lóló er einnig að kenna
þolfimi í World Class og tek-
ur að sér einkatíma þar. „Ég
hef alltaf hreyft mig mjög
mikið og verið í góðu formi.
Það hefur alla tíð verið mitt
lífsins áhugamál og ég gæti
ekki hugsað mér annað.
Strákarnir mínir eru einnig á
fullu í íþróttum. Ég ætlaði
að gera þá að afreksmönn-
um í sundi en þeir voru
spenntari fyrir boltaíþrótt-
um. Þeir eru á fullu í fót-
bolta og handbolta með
Stjörnunni. Sumarfríið mitt
fór alfarið í að elta þá á
leiki. Ég hef mjög gaman af
því og er gjarnan fararstjóri
þegar liðin fara út á land
eða til útlanda að keppa,“
segir hún og brosir.
Lóló aft stjórna skrift-
sundsætlngu lijá liillorðnuni
í Kópavogslauginni.
8 Vikfin