Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 10
Texti og myndir: Þórey Sigþórsdóttir
Ttöllabörn í Toulouse
Kraftaverk á erlendri
leiklistarhátíð!
í júní hélt leikhópur 10-12
ára barna, Tröllabörnin úr
Kramhúsinu, með leiksýn-
inguna Krafta á Alþjóðlega
leiklistarhátíð barna,
F.I.T.E., sem í ár var haldin í
13. skiptið í Toulouse í
Frakklandi. Sýninguna
Krafta vann hópurinn í
spunavinnu undir stjórn
Þóreyjar Sigþórsdóttur
leikkonu og Olafar Ingólfs-
dóttur dansara. Það var
mikið tilhlökkunarefni að
stökkva upp í flugvél og
halda á vit ævintýranna með
sköpunarverkið og sumar-
klæðnaðinn í farteskinu.
Líkamstjáning kemur í
góðar þarfir!
Á flugvellinum tók mót-
tökunefnd hátíðarinnar á
móti hópnum. Þá kom í ljós
að við áttum að búa hjá fjöl-
skyldum, tveir og tveir sam-
an. Nú skyldu allir kynnast
heimilislífi í Frakklandi frá
fyrstu hendi. Þetta létu hin
hugdjörfu íslensku börn
ekki á sig fá þótt greinilegt
væri að þarna myndi nú
reyna á tjáningarhæfileika
hvers og eins. Þó að Trölla-
börnin gætu flest bjargað sér
á enskunni var greinilegt að
það sama gilti ekki um fjöl-
skyldurnar, þar sem flestir
töluðu lítið sem ekkert í
ensku. Þegar hópurinn hitt-
ist að morgni næsta dags lá
líka mörgum mikið á hjarta
að lýsa aðstæðum á nýja
heimilinu, framandi matar-
æði, misgóðu, og skemmti-
legum misskilningi sem
komið hafði upp í samræð-
um. Talaði hver í kapp við
annan og greinilegt að ekki
hafði væst um neinn í nýjum
húsakynnum.
Gömui menning og
geimskip í Toulouse!
Fyrsta daginn tókum við í
það að ganga um Toulouse
og kynnast borginni sem er
ævaforn og mjög falleg. Á
gönguleið um gömlu mið-
borgina voru það skemmti-
leg smáatriði sem vöktu
mesta athygli krakkanna.
Veggjakrot sem hafði verið
skellt upp af miklu listfengi
út um allan bæ, í skemmti-
legu ósam-
ræmi við
aldnar bygg-
ingarnar,
rómantískar
brýr og sér-
kennileg tré
héldu at-
hyglinni þar
til hungur og
þreytuverkir
í fótum náðu
yfirhönd-
inni. Stefn-
an var tekin á skemmtigarð
þar sem snæða átti „pique-
nique“, nestið sem fjöl-
skyldurnar höfðu útbúið fyr-
ir okkur. í garðinum mátti
finna stórskemmtileg úti-
leiktæki sem þola Trölla-
börn frá íslandi og leikgleð-
in var mikil eftir allt þram-
mið í borginni. Það gafst
ekki mikill tími til fleiri
skoðunarferða fyrr en eftir
að hátíðinni lauk. Síðasta
daginn, sem var sá heitasti,
heimsóttum við Geimsafn
sem er í Toulouse, City de
L’Espace. Þar mátti fræðast
um pláneturnar og geiminn
og allar þær geimferðir sem
farnar hafa verið, skoða
MÍR geimstöðina og allan
aðbúnað geimfaranna, al-
vöru geimskip og jafnvel
prófa hvernig tilfinning það
er að ganga á tunglinu.
Þótti mörgum sem nú stytt-
ist í möguleika á sumarfríi
úti í geimnum. En aftur á
hátíðina.
Ættjarðarlög sungin í
franska sjónvarpið!
Annar dagur, frumsýning-
ardagurinn! Fiðringurinn lá
í loftinu. Um morguninn
var haldinn markaður og
hóparnir fengu hver sinn
landkynningarbás. Trölla-
börnin skelltu upp sínum
munum og fyrr en varði var
þar mætt sjónvarpsstöð til
að taka viðtal sem lauk með
því að Tröllabörnin sungu
„ísland ögrum skorið“. Síð-
an var haldið upp í leikhús
til að undirbúa sýninguna.
Leikhúsið sem hátíðin var
haldin í er nýjasta stolt Tou-
louseborgar, nýtt og glæsi-
legt borgarleikhús sem var
opnað í október sl. og tekur
900 manns í sæti í stóra saln-
um þar sem hátíðin fór
fram. Til mikillar lukku
höfðum við uppgötvað það,
þegar komið var til Frakk-
lands, að Olöf talar frönsku
svona þegar á reynir. Og nú
reyndi á. Hópurinn fékk
búningsherbergi og kom sér
niður á svið og renndi í æf-
ingu. Eftir það var haldið
beint upp á búningsherbergi
með hádegis „pique-nique“
frá fjölskyldunum. Þegar
síðasta matarbitanum hafði
verið kyngt var kominn tími
til að fara í búninga. Arn-
þór og Gunnur, sem voru
fánaberar hópsins í opnun-
aratriðinu, voru klædd upp í
íslenska þjóðbúninginn en
aðrir fóru beint í Krafta-
verkabúninginn sinn því
sýningin var fyrst á dagskrá,
strax á eftir landkynning-
unni.
Rotlukór slær í gegn!
Á hátíðina voru komnir
leikhópar frá Egyptalandi,
Tékklandi, Króatíu, Gabon,
Belgíu, Danmörku, Hvíta
Rússlandi og Grikklandi,
ásamt átta leikhópum frá
Frakklandi. Fulltrúar frá
hverju landi marseruðu inn
með sinn fána í þjóðbúning-
um og myndum frá hverju
landi var varpað á sviðið um
leið. Um leið og kynningu
lauk var hlaupið í hraðskipt-
ingu með fánaberana og allt
gert klárt. Þegar Trölla-
börnin voru kynnt var mikið
klappað og hávaði í barna-
skaranum í salnum sem beið
fullur orku og eftirvæntingar
eftir að sýningin hæfist.
Skyldu þessi börn hafa ein-
beitingu til að hlusta og
horfa á sýningu sem þau
skildu ekki bofs í? En viti
menn um leið og ljósin
komu upp á sviðinu stilltist
orkan inn á hlustun og þau
voru með á nótunum allan
tímann. Sýningin gekk vel,
besta sýning Tröllabarna til
þessa og margt vakti greini-
lega lukku barnanna, sér-
staklega þegar blásið var lífi
10 Vikan