Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 20
Spilavítin hafa mikið aðdráttar-
afl og fólk sækir Jniu griinmt.
Sumir spila fyrir nokkra doll-
ara, aðrir fyrir aleiguna.
Götulífið í Las Vegas er
mjög tjölskrúðugt og
skemmtilegt. Glæsilegir
„limmóar“ eru sennilega
eitt algengasta samgöngu-
tæki borgarinnar.
thecityof
entertainment
ikan í Las Vega
Borg synda og lystisemda
Þær eru ófáar Hollywoodmynd-
irnar sem gerast í Las Vegas og
er skemmst að minnast kvik-
myndanna Leaving Las Vegas,
Honeymoon In Las Vegas og Las
Vegas Vacation, að öðrum ólöst-
uðum. Biaðamaður Vikunnar
dvaldi nýlega i eina viku í þess-
ari fjörugu og spennandi borg og
naut alls þess besta sem borgin
býður upp á. Það er hægur leikur
fyrir íslendinga að skella sér til
Vegas. Flugleiðir fljúga í beinu
flugi til Minneapolis og eru oft
með mjög hagstæð kjör á þeirri
flugleið. Frá Minneapolis er
hægt að fá mjög ódýrar pakka-
ferðir til Las Vegas á vegum Sun
Country flugfélagsins. Flug til og
frá Las Vegas með gistingu í
fjórar nætur á glæsilegu hóteli
kostar u.þ.b. 25-30.000 krónur.
Flugið frá Minneapolis til Las Ve-
gas tekur um 3 klukkustundir.
Skrautfjaðrir
skemmtanalifsins
Las Vegas er staðsett í miðri
eyðimörk Nevadafylkis og þar
__ 'jj slær hjarta borgarinnar ákaft af
~ 5 gleði og spennu. Fólk alls staðar
= | að úr heiminum fer þangað til að
E « freista gæfunnar í spilavítunum
£ -o og til þess að skemmta sér á
* § konunglegan máta. Borgin, með
£ x öllu sínu glitri og glamúr, er
hreinasta konfekt fyrir augað.
Hafsjór marglitra Ijósaskilta er
eitt helsta einkenni borgarinnar
og þau setja afar sérstakan blæ á
hana.
Las Vegas er líka þekkt fyrir
frábærar sýningar frægra
skemmtikrafta og ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í
þeim efnum. Þegar ég var þarna
á ferð var Tom Jones með tón-
leika nokkur kvöld í röð en hann
er einn af sígildum skrautfjöðrum
skemmtanalífsins og kemur
reglulegatil LasVegas. Hinn
gamli, góði Frank Sinatra átti
borgina hér á árum áður, en oft
er talað um Tom Jones sem arf-
taka hans. Það var uppselt á alla
tónleikaTomma. Það er því ráð-
legt að kynna sér í tíma hvaða
sýningar eru í gangi til þess að
tryggja sér miða. Svokölluð
„show“ eru eitt helsta aðals-
merki Las Vegas og daglega eru
fjölmargar sýningar í gangi. Það
er eitthvað alveg sérstakt við að
fara í sitt fínasta púss og fara á
„show“ í Las Vegas. Það er ekki
oft sem fólki gefst tækifæri til
þess að klæðast galakjólum og
smóking og njóta frábærrar
skemmtunar þar sem atvinnu-
mennskan er í hávegum höfð.
Það er sama hvaða skemmti-
kraftar eiga í hlut; stæltar dans-
meyjar með gullinbrúna kroppa,
fjaðraskraut og glimmer setja
ávallt svip sinn á sýningarnar og
auðvitað með tilheyrandi leggja-
sveiflum! Það er ekki hægt annað
en að hrífast með.
Jafnólík skemmtun og tónleik-
ar með Cher, uppistand með
Andrew Dice og sýning hjá hinum
stórkostlega Bolshoj ballett eru
einmitt það sem gerir borgina
svo fjölbreytilega. Meðal þeirra
sem voru með tónleika meðan á
dvöl minni stóð voru jafnólíkir
tónlistarmenn og Iron Maiden,
Tom Petty & The Heartbreakers,
Steve Winwood, Joan
Armatrading, BB .
King, Peter K ^ * 4
Framton, Lyle Lovett, 4
Motley Crue, Neil
Sedaka og Duran Dur-
an. Fyrir utan að státa
sig af heimsfrægum
skemmtikröftum, þá er
borgin einnig stútfull af skemmti-
legum grínklúbbum („comic
clubs“) og töframönnum. Allir eru
að rembast við að slá í gegn í Ve-
gas.
Lúxor hótelið
í Las Vegas er fjöldinn aliur af
spennandi gistimöguleikum og
mörg hótelin eru svokölluð
þemahótel. í því sambandi er
óhætt að mæla með Hard Rock
Café hótelinu og Excalibur, en þar
svífur andi riddaratímabilsins yfir
vötnum.
Lúxorhótelið er þó einn besti
kosturinn því að dvölin þar er æv-
intýri líkust og engu líkara en
maður hverfi aftur til lifnaðar-
hátta gullaldar forn-Egypta. Hót-
elið er gríðarlega stórt og anddyri
þess er helst hægt að líkja við
stóra flugstöð. Herbergin eru
4400 talsins og ætti það að gefa
nokkra mynd af stærð og um-
fangi hótelsins. í risastórum garði
hótelsins eru fimm sundlaugar.
Meðfram bökkum laug-
anna eru risavaxnar
súlur, egypskar
styttur og hávaxin
pálmatré. Sú hugsun
læðist að manni að
svona hljóti Paradís
að líta út. Tignarlegur
pýramídinn, sem er
hluti af gistiaðstöðunni, trónir svo
með mikilfenglegum hætti yfir
sundlaugarsvæðinu. Þjónar heilsa
reglulega upp á sundlaugargesti
og bjóða upp á ískalda, svalandi
drykki sem eru nauðsynlegirtil
að kæla sig niður í brennandi
eyðimerkursólinni. Sólin skín í
heiði í Las Vegas allan ársins
hring og orðið snjór er ekki til í
orðasafni borgarbúa. Það er mjög
Það er eitthvað alveg sérstakt við að fara í
20 vikan sitt fínasta púss og Fara á „show“ í Las Uegas