Vikan - 21.09.1999, Page 30
Mörg blöð og bækur
eru full af staðhæfing-
um um ástina og kynlíf-
ið. Þessar staðhæfing-
ar eru settar fram eins
og þær séu stóri sann-
leikurinn, eitthvað sem
henti öllum og allir eigi
að lifa eftir.
Siikar staðhæfingar
geta verið stórhættu-
legar því ósjálfrátt
móta þær afstöðu fólks
og það vill ekki breyta
gegn þeim.
En málið er ekki svona
einfalt, það má oft líta
á það frá öðru sjónar-
horni:
Maður á aldrei að fara
að sofa án þess að
ræða vandamálin sem
koma upp í hjónaband-
inu og útkljá þau.
Það getur verið beinlínis
nauðsynlegt að sofa á hugs-
unum sínum og tilfinning-
um. Mörg deilumál rísa
vegna smávægilegra hluta
sem skipta litlu máli og jafn-
vel vegna misskilnings. Þeg-
ar báðir aðilar eru þreyttir
eftir daginn getur verið
erfitt að sjá hlutina í réttu
ljósi og góður nætursvefn
getur gert kraftaverk. Það er
mun auðveldara að ræða
málin úthvíldur og eftir að
fyrstu áhrif reiði eða pirr-
ings eru liðin hjá.
Hjón sem eíga sameig-
inleg áhugamál eru
hamingjusamari í
hjónabandinu.
Fyrir marga passar þessi
staðhæfing vel, en reynslan
hefur sýnt að þetta stenst
alls ekki í öllum tilfellum.
Sum hjón þola einfaldlega
ekki of miklar samvistir og
fari þau að eyða öllum frí-
stundum saman getur það
orðið hjónabandinu um
megn. Konur þarfnast ein-
veru og karlar þarfnast sam-
vista við aðra karlmenn og
sé þessum þörfum ekki full-
nægt er enn meiri hætta á að
of langar samvistir hjóna
geti komið af stað leiðindum
í hjónabandinu.
Ef hjón raunverulega
elska hvort annað
koma aldrei upp
vandamál í hjónaband-
inu.
Því miður,- fyrr eða síðar
koma upp vandamál í öllum
hjónaböndum.
Jafnvel í hjónaböndum
þar sem aðilarnir elska
hvorn annan geta annar
hvor, eða báðir, orðið leiðir,
fundið til einmanakenndar
og langað til að hlaupast í
burtu frá öllu. Þegar þannig
stendur á reynir á ástina og
þau sem elska hvort annað í
raun og veru eiga meiri
möguleika á að finna sam-
eiginlega lausn og hjálpa
hvort öðru í gegnum erfið-
leikana.
Öllu máli skiptir að
vera fullkomlega heið-
arlegur og segja alltaf
sannleikann.
Það er falleg hugsun á
bakvið þessi orð, en því mið-
ur er sannleikurinn stundum
ekki sagna bestur og engum
til góðs. Að sjálfsögðu eiga
elskendur að vera heiðarleg-
ir hver við annan en það er
óþarfi að særa maka sinn og
gera hann áhyggjufullan yfir
einhverju sem ekki skiptir
neinu máli í sambandi ykkar.
Það er illa gert að láta
misklíð bitna á kynlíf-
inu.
Hver vegna? Það er ekki
hægt að ætlast til þess að
manneskja sem ekki er sátt
við maka sinn geti átt nota-
leg kynmök með honum.
Kynlíf á að vera báðum til
ánægju og sá sem ekki er
upplagður fyrir kynlíf á að
sjálfsögðu ekki að taka þátt
íþví.
Ræddu vandamálin í
hjónabandinu fyrst við
góðan vin ef þú ert
ekki viss um hvernig
þú átt að snúa þér
gagnvart makanum.
Aldeilis ekki. Hjónaband-
ið er ekki líkt neinum venju-
legum vinasamböndum og
jafnvel mjög náinn vinur
getur ekki séð vandann frá
báðum hliðum. Vanda milli
hjóna getur enginn leyst
nema hjónin sjálf, en það er
hugsanlegt að leita aðstoðar
félagsráðgjafa eða prests ef
hjón eiga erfitt með að
koma á sáttum hjálparlaust.
Látið börnin aldrei
heyra ef þið eruð ekki
sammáia.
Börn verða að fá rétta
mynd af lífinu og þurfa að fá
að upplifa að því miður er
fólk ekki alltaf sammála um
alla skapaða hluti. Börn
sem kynnast því ekki að
hjónum verði sundurorða
geta orðið hrædd þegar þau
seinna meir í lífinu lenda
sjálf í deilum við maka sinn.
30 Vikan