Vikan - 21.09.1999, Page 32
Picasso
Paloma Picasso er timmtug að aldri og á hátindi
frægðar sinnar. Blcksvart hár, mjallahvít húð og
hárauðar varir er sem fyrr hennar sterkustu einkenni.
32 Vikan
Náttfatnaður úr silki og satíni sem
ber merki Palomu Picasso.
Paloma Picasso
erfði listræna hæfi-
leika föður síns en
hún hefur sannað
eigið ágæti og hefur
ekki þurft að lifa i
skugga hins fræga
föður.
Þessar glæsilegu
handtöskur eru meðal þess Pal-
oma Picasso hefur hannað. Hún
segir að hönnun sín verði að vera
falleg og nothæf. Hún vill gjarn-
an blanda saman leðri og plasti
eða öðrum gerviefnum..
Bleksvart hár,
mjallahvít
húð og
hárrauðar
varir eru
einskonar vörumerki Pal-
omu Picasso. Andlit hennar
er nærri jafnþekkt um ver-
öldina og andlit Monu Lisu.
Hún er framúrskarandi
hönnuður, tískufröm-
uður, milljarðamæring-
ur og dóttir spænska
málarans Pablos
Picasso, eins
magnaðasta lista-
manns á þessari
öld. Paloma
Picasso ber nafn
föður síns og
erfði 1.300 verk
eftir hann. Það
eitt hefði nægt
henni til heims-
frægðar en hún
erfði líka mikla
listamannshæfi-
leika og geysileg-
an viljastyrk. Þetta
tvennt gerði útslagið. Þessi
fremur smávaxna kona hef-
ur byggt upp stórveldi í
tískuheiminum síðustu tutt-
ugu ár. Henni tókst að skapa
sína eigin frægð og stendur
nú jafnfætis föður sínum.
„Er þessi Picasso eitthvað
skyldur Palomu Picasso?"
spurði bandarískur náms-
maður þar sem hann stóð
fyrir framan stórkostlegustu
verk meistarans.
Bernska meðal
listamanna
Nafnið Paloma rnerkir
dúfa, tákn friðar. Sama ár og
hún fæddist hafði faðir
hennar hannað merki fyrir
alþjóðlega friðarráðstefnu
og notað dúfuna sem tákn.