Vikan - 21.09.1999, Page 50
Texti: Ásgeir H. Ingólfsson
íóið
Drauaasaaa
um The Blair Witch Project
riv rrrwr*
Ivu r rT rn 11 r: i * i n rr
Ismábænum Blair,
sem er í miðhluta
Maryland, stutt frá
Washington, gerð-
ust voveiflegir at-
burðir fyrir rúmum
tveim öldum. Það var árið
1785 að börn sem þar
bjuggu báru konu, er Elly
Kedward hét, þungum sök-
um. Þau ásökuðu hana um
að hafa lokkað þau inn til
sín í þeim tilgangi einum að
nærast á ungu blóði þeirra.
Bæjarbúar hræddust sem
von var mjög og að þeirra
tíma sið var hún kærð fyrir
galdra og útlæg gerð úr smá-
bæ þessum, þannig hent út á
guð og gaddinn. Sá gaddur
var óvenju mikill þennan
vetur og þótti mönnum full-
víst að nornarskrattinn hefði
ekki lifað veturinn. En að
tveim vetrum liðnum hverfa
allir þeir sem höfðu borið á
hana sakir og að auki helm-
ingur allra barna bæjarins -
sporlaust, eins og sjálf jörðin
hafi gleypt þau. Þeir sem
eftir eru flýja í kjölfarið í of-
boði miklu og strengja þess
heit að nefna aldrei Elly
Kedward á nafn aftur.
Það heit hefur þó einhver
rofið því árið 1809 er gefin
út bók er nefnist „Saga
nornarinnar frá Blair". Sú
bók er almennt talin upp-
spuni frá rótum
af þeim er fróð-
astir teljast og
því er bærinn
Burkittsville
byggður á landi
því er Blair stóð
á áður fimmtán
árum síðar. En
ári síðar hverfur
stúlka nokkur á
tíunda ári. Ell-
efu vitni halda
því staðfastlega
fram að hafa
séð kvenmanns-
hönd, föla sem
ná, draga stúlk-
una niður í vík
eina skammt frá
bænum. Það er
svo meira en öld síðar, á
meðan skálmöld geisar í
Evrópu veturinn 1940-1941,
sem sjö börn hverfa. Lík
þessara barna finnast í kjall-
ara sveitavargs nokkurs að
nafni Rustin Parr. Parr játar
á sig morðin en segir þó að
gamall kvendraugur hafi
lagt á ráðin með þau. Hann
er dæmdur og hengdur.
Það gerist síðan fyrir fimm
árum, þann 20. október
1994, að háskólanemarnir
Heather Donahue, Joshua
Leonard og Michael Willi-
ams koma ti! Burkittsville.
Þau eru í kvikmyndaskóla
og hafa fengið það verkefni
að taka viðtal við bæjarbúa
og spyrja þá út í goðsögnina
unr nornina í Blair. Heather
leikstýrir, Joshua stjórnar
töku og Michael sér um
hljóðið. Daginn eftir kom-
una hitta þau gamla og að
því er virðist geðveika konu
að nafni Mary Brown. Mary
þessi hefur búið á þessum
slóðum allt sitt líf og segist
eitt sinn hafa séð nornina
við vík eina, „...og var hún
hárug mjög, að hálfu
mennsk og að hálfu dýr“.
Daginn eftir halda kvik-
myndagerðarmennirnir í
könnunarleiðangur inn í
Svörtuhæðaskóg. Síðan hef-
ur ekkert spurst til þeirra,
þrátt fyrir ítarlega leit fleiri
hundruð leitarmanna. Ári
síðar finna aftur á móti forn-
leifafræðinemar poka með
myndbandsupptökum sem
seinna kemur í ljós að He-
ather og félagar höfðu tekið.
Lögreglan er ekki viss um
að myndirnar séu ekta en
foreldrar ungmennana berj-
ast fyrir að þær séu viður-
kenndar. Myndin er svo að
lokurn klippt til og gefin út
undir nafninu „The Blair
Witch Project“.
„Heimildarmynd11
Það sem er merkilegast
við þessa draugasögu er hve
ótrúlega margir hafa trúað
henni, nú þegar aldamótin
nálgast og fólk trúir helst
ekki nokkrum sköpuðum
hlut. Þessi mynd var tekin
fyrir smápeninga, auglýst
sem heimildarmynd og tekin
sem slík en ku þó vera upp-
spuni frá rótum - eða því er
að minnsta kosti haldið
fram. Bærinn Burkittsville
er þó án nokkurs vafa til og
skilaboðin á símsvara bæjar-
skrifstofunnar eru á þessa
leið: „Ef þú ert að hringja út
af The Blair Witch Project,
þá er myndin skáldskapur“.
Kannski eru þau bara orðin
pirruð á allri athyglinni en
auðvitað veit maður aldrei
nema þeir séu að leyna ein-
hverju - en hvað sem öllum
sögusögnum líður þá er fjár-
málamönnum Vesturheims
mörgum hverjum minnst
umhugað um sannleiksgild-
ið. Það sem vekur meiri at-
hygli þeirra er að mynd
þessi var gerð fyrir smápen-
ing á Hollywood-mæli-
kvarða - 2 milljónir króna -
en mun að lokum skila þeim
peningum 10 þúsundfallt inn
að minnsta kosti. Til saman-
burðar skilaði Titanic
„bara“ inn níföldum gróða -
og fyrst hræódýrar drauga-
sögur eru nú orðnar stór-
gróðafyrirtæki þá er spurn-
ing hvort þessi atvinnugrein
gæti ekki náð góðri fótfestu
á Islandi með hjálp Hraun-
dranga-Móra og hinna fjöl-
mörgu ættingja hans.