Vikan - 21.09.1999, Blaðsíða 52
Texti: Steingerdur Steinarsdóttir
Fyrir um það bil
áratug máttu
konursem
þjáðust af stöð-
ugum höfuðverk
þola það oftar en ekki að
lœknirþeirra, og jafnvel
allt umhverfið, gerði lítið
ár þjáningum þeirra og
gerði því jafnvel skóna að
verkurinn stafaði fyrst og
fremst af ímyndun. Nýjar
rannsóknir hafa hins vegar
sýnt fram á að höfuðverk-
ur er langt frá því að vera
ímyndun og allmargir
þjást af höfuðverk dag-
iega. Stúlkur á kynþroska-
aldri fá oft höfuðverkja-
köst samfara líkamlegum
breytingum sem verða á
þeim aldri og þónokkuð er
um að konur þjáist af höf-
uðverk rétt fyrir blœðingar
eða meðan á þeim stendur.
Það er einnig algengt að
konurfái höfuðverk á
meðgöngu og að mígreni
byrji þegar kona gengur
með sitt fyrsta barn.
Ný tækni hefur gert lækn-
um kleift að mæla og skoða
hreyfingar í heilanum með-
an hann vinnur. Þetta hefur
fært þá skrefi nær því að
skilja hvað höfuðverkur er.
Kona sem þjáðst hefur af
höfuðverk í 24 ár segir að
hún hafi byrjað að fá höfuð-
verkjaköst þegar hún komst
á kynþroskaaldur.
„Þegar ég gekk með mitt
fyrsta barn urðu köstin al-
varlegri og loks alveg óbæri-
leg. Ég varð að loka mig
inni með gluggtjöldin vand-
lega dregin fyrir svo hvergi
kæmist ljós inn og ekkert
hljóð mátti heyrast. Þetta
var mest vinstra megin í
höfðinu, rétt við gagnaugað,
Nokkrar jurtir og náttúrulyf eru til sem draga úr
höfuðverk. Hafðu þó samband við iækni og fáðu
ráðleggingar áður en þú reynir slíkt því sumar
jurtir eru t.d. óæskilegar fyrir ófrískar konur.
og verkurinn jókst og
minnkaði til skiptis. Þessu
fylgdi mikil ógleði og ég gat
alls ekki staðið í fæturna.
Oft var ég það slæm að ég
gat ekki hreyft mig, varð
bara að liggja stíf í þeirri
stellingu sem ég var í. Eftir
að barnið fæddist lagaðist
ástandið lítillega, það er að
segja það leið aðeins lengra
á milli þess að ég fékk köst
en þau voru tíð og mjög
slæm.
Ég leitaði mér hjálpar og
var bent á að taka verkja-
töflur og leggjast fyrir. Ég
varð æf og langaði mest að
garga á mennina hvort þeir
virkilega héldu að mér hefði
ekki dottið það ráð í hug
fyrr. Ég mátti síðan þreyja
þorrann og góuna allt þar til
fyrir tólf árum að vinkona
mín sendi mér grein úr
bandarísku blaði um höfuð-
verk. Þar sá ég að mataræði
getur haft mikið að segja og
þar var einnig fjallað um hin
ýmsu verkjalyf, kosti þeirra
og galla. Með því að prófa
mig áfram með mataræði
gat ég fækkað höfuðverkja-
köstunum verulega. Ég er
með mígreni og ég er ein af
þeim sem sé litróf eins og
renna yfir augu mín áður en
kast byrjar. Ég hafði aldrei
tengt þetta höfuðverknum
fyrr en eftir lestur greinar-
innar en eftir þetta lagðist
ég strax fyrir um leið og lit-
Þrján teg
Streitutengdur höfuðverkur er
verkur sem kemur eftir erfiðan
vinnudag eða byrjar í eftirmið-
daginn á hverjum degi og stendur yfir í
allt frá hálftíma upp í nokkra sólar-
hringa. Verkurinn byrjar oftast aftan í
hálsinum og færist hægt upp eftir höfð-
inu. Hann er stöðugur og jafn allan
tímann sem hann varir. Aðalorsök
slíkra verkja er vöðvabólga eða stífni í
hálsvöðvum. Þetta má lækna með
nuddi, heitum bökstrum, teygjuæfing-
um og með því að huga að líkamsstöðu
sinni við vinnuna og leiðrétta rangar
stöður og hreyfingar. Það hjálpar
einnig að slaka vel á í lok hvers vinnu-
dags og taka sér tíma til að hugleiða
einn í algjörri ró í einhvern tíma.
Migreni er sjúkdómur sem ein af
hverjum tíu konum þjáist af. Það er
ólæknandi en ný lyf sem komið hafa á
markaðinn á undanförnum árum, geta
haldið verkjunum í skefjum. Mígreni-
undir höf
verkur er yfirleitt sár og staðbundinn
verkur. Margir mígrenisjúklingar segj-
ast sjá litróf flökta fyrir augum sér
áður en verkjakast byrjar. Verkjunum
fylgja ógleði, stundum sjóntruflanir og
jafnvel truflanir á jafnvægisskyni. Með-
an á köstunum stendur á sjúklingurinn
mjög erfitt með að þola ljós og hávaði
fer illa í hann. Stundum getur lykt auk-
ið verkinn eða komið ógleði af stað.
Mígrenisjúklingur getur ekki hreyft sig
eða gert neitt meðan á kastinu stendur.
Þrisvar sinnum fleiri konur en karlar
þjást af mígreni og er það rakið til
hormónabreytinga. Höfuðverkjaköst
þegar kynþroski hefst, fyrir og á með-
an á blæðingum stendur og á með-
göngu eru því líklega mígreni.
Mígreni er arfgengt og stafar af trufl-
unum sem verða á taugaboðefnum í
heilanum. Lyfin sem gefin eru við
mígreni í dag, koma jafnvægi á serótín-
framleiðsluna en of lítið serótínmagn
u ð v e p k j a
hefur þau áhrif að æðar í höfðinu drag-
ast saman og blóðflæðið minnkar því;
afleiðingin verður sár höfuðverkur.
Helstu mígreni lyf eru : Sumatriptan,
zolmitriptan, naratriptan og rizatript-
an.
Sár, daglegur höfuðverkur lýsir sér í
látlausum verk í öllu höfðinu og byrjar
yfirleitt alltaf á sama tíma. Honum
fylgir oft ógleði og viðkvæmni fyrir
ljósi og hávaða. Helsti munur á dagleg-
um höfuðverk og mígreni er að verk-
urinn er ekki eins staðbundinn og
hann eykst ekki eða minnkar heldur
helst stöðugur meðan hann varir. Dag-
legur höfuðverkur er oft streitutengd-
ur. Höfuðverk sem stafar af stíflu í
ennis- og kinnbeinsholum er oft ruglað
saman við daglegan höfuðverk. Þann
síðarnefnda má helst þekkja á við-
kvæmni og eymslum á ákveðnum
svæðum á enninu fyrir ofan kinnbeins-
holurnar.
52 Vikan