Vikan


Vikan - 21.09.1999, Page 54

Vikan - 21.09.1999, Page 54
Texti og myndir: Kristján Frimann Að ganga með voginni uni lendtir ástarinnar er dramni líkast. in/Libra (24. september - 23. október) Vogun vinnur, vogun tap- ar. Vogin er vel í sveit sett millí sumars og veturs, þegar tekist er á um hvort sumarið skuli teygjast fram á haustið eða hvort vetrinum sé stætt á því að skunda snemma í bæinn. Þarna stendur hún sem tákn jöfnunar og reynir að miðla málum milli ólíkra afla og ná sáttum um hið ósættanlega, því bæði vilja sitt, drottning sum- ars og vetur konungur. Goðsögnin um þessi ólíku öfl sem togast á um vöid í Voginni skýrist í sögunni um Venus (Afródíte) og Adonis. Venus lagði ást á Adonis og tók upp sam- band við hann í óþökk hinna goðanna. Þá var Mars gerður út af örkinni til að koma Adonis ffyrir kattarnef, hann breytti sér í gölt og drap Adonis. Venus var ósátt við þessa gjörð og reyndi að ná Adonis aftur úr helju og bar mál sitt undir Seif. Á meðan varð Persefóna drottning undirheima hugfangin af í sveininum unga og neitaði að sleppa honum. Adonis, sem nú var orðinn maður tveggja kvenna, átti sjálfur i mesta basli með að gera upp hug sinn um vista- bönd og allt var í steik. Eftir mikið japl, jaml og fuður ákvað Seifur að leysa málið með þvi að láta Adonis dvelja sinn árshelminginn hjá hvorri konu og urðu þá allir Eðli og eiginleikar Þessi tvístígandi sem kem- ur fram hjá Adonis er eitt aðaleinkenni Vogarinnar og gerir það að verkum að hún á erfitt með að gera upp hug sinn um hvaðeina í lífinu; hvers eðlis hún sé, hvers kyns eða hvort halda skuli til Eg- yptalands eða Isa- fjarðar um ára- /aldamótin.Vogin skiptist að mestu leyti í tvær ólíkar manngerðir: Þá innhverfu (haust/vetur) sem dregur dám af Sat- úrnusi og er næm- ur einstaklingur með brothættar taugar, fínlegt úlit og fágaða fram- komu. Sú gerð Vogarinnar hefur auðugt ímyndun- arafl, skáldlegt innsæi og sækir í kvöldið og nóttina þegar tími og frið- ur gefst til pælinga. Hin gerðin, sem einnig hefur fín- legar taugar, er út og suður, daðrandi við allt og alla. Hún velur yfir- borðið frekar en dýptina og flögrar líkt og fiðrildi um líf- ið. Vogin sú hefur stórt hjarta, er göfuglynd og fljót að fá umhverfið á sitt band. Báðar gerðirnar eru félags- lega þenkjandi og mannúð er þeim í blóð borin. Þær Vogir sem fæðast á miðri vogarstönginni og erfa jafna eiginleika þeirrar innhverfu og þeirra útopnu verða stór- brotnir einstaklingar sem vinna stór og mikil verk. Indverska frelsishetjan Ma- hatma Gandhi er talandi dæmi um slíka Vog en hann fæddist 2. október 1869. Hugur og hjarta Vogin, sem er loftmerki eins og Tvíburinn og Vatns- berinn, er andlega þenkj- ándi og félagslega sinnuð líkt og þau. Þetta tvinnast saman á þann sérstæða hált í Voginni að hugur og hjarta verða sem eitt og gera hana að einstaklega aðlaðandi persónuleika og eftirtektar- verðum. Félagsþroski er mikill og hagur heildarinnar verður að markmiði. John heitinn Lennon sem fæddist 9. október hafði þessa eigi- leika framar öðrum og sjást þeir vel í textum hans og gjörðum eins og „Give peace a chance". Þar sem Vogin er félagsvera stefnir hugur hennar öðru fremur til mannúðar, sáttfýsi og tillitssemi og speglast verk hennar af því. Hún getur náð langt á þeim svið- um, hvort sem er upp eða niður vogarstöngina, og orðið að andleg- um leiðtoga eða smjaðurslegri daðurdrós enda er taugakerfi hennar þannig uppbyggt að lítið þarf til að sveigja stöngina upp eða niður. En hjarta Vogarinnar er stórt og bætir það upp þessa agnúa hjá mörgum. Hins vegar getur hjarta og tvíeðli Vogar- innar hlaupið með hana í gönur þegar hún er viljug að kanna nýjar lendur ástarinn- ar og þá lent í alvarlegum hremmingum. Þær Vogir sem fundið hafa hinn eina og sanna maka eru aftur á móti nánast sértrúa um val sitt og leggja allt í sölurnar fyrir ástina stóru.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.