Vikan - 21.09.1999, Page 62
Ekki missa af
hiAKw aískorni,m
DIOIÍílL1 ÍIEb Afskomar rósir og önn-
ur blóm fást í búntum í blómaverslunum og
eins fást þau á hagstæðu verði I stórmörkuð-
um. Því ekki að fá sér einn fallegan vönd til að
lífga upp á matarborðið næst þegar þú kaupir
inn til heimilisins? Eins er mjög gaman að
kaupa veglegan vönd þegar tekið hefur verið
rækilega til á heimilinu og og njóta blómaang-
ans. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað
sérstakt tilefni til þess að kaupa blóm.
• ■' met?MWlinni
ndíllMUdl eftirThomas
Harris. Nú eru sjö ár liðin frá því að mannætan og
geðlæknirinn Hannibal Lecter skelfdi heimsbyggð-
ina í bókinni Silence of the Lambs og Anthony
Hopkins túlkaði hann á eftirminnilegan hátt á
hvíta tjaldinu. Hannibal er nú mættur aftur til
leiks og Harris hverfur með lesendum sínum á vit
hins magnaða en jafnframt hrollvekjandi geðlæknis. Hjá Eymund-
son er fárinu í kringum bókina líkt við Star Wars æðið en þar bíða jafnvel hörðustu
grænmetisætur í röðum eftir eintaki af bókinni.
... S.O.S. Kabarett í Loftkastalanum.
Hér er á ferðinni aldeilis frábær söngskemmtun í leikstjórn Sigga Sigurjóns og
í flutningi Pálma Gestsonar, Jóhanns Sigurðarsonar, Bergþórs Pálssonar, Krist-
jönu Stefánsdóttur, Elínar Helgu Sveinbjörnsdóttur og Hrefnu Hallgrímsdóttur.
Kabarett sem listform á rætur sínar að rekja til Frakklands i kringum 1880. Þá
sátu gestir á veitingahúsum í kringum lítil svið þar sem flutt voru margvísleg
skemmtiatriði sem oftar en ekki voru pólitískar ádeilur og hæðst var að borg-
arastéttinni. Eitt helsta einkenni kabarettsins var þó að einhvers konar kynnir
eða veislustjóri tengdi leikatriðin saman. Kabarettinn reis líklega hæst sem
listform í Rauðu Myllunni í París skömmu fyrir síðustu aldamót en hann lifir
góðu lífi enn í dag. Það ætti enginn að láta hina eld-
fjörugu og lifandi kabarettsýningu í
Loftkastalanum fram hjá sér fara.
Stemmningin á S.O.S. Kab-
arett er engu lík og það
er óhætt að lofa stór-
kostlegri skemmt-
un þar sem
áhorfendur
veigra sér ekki
við að sýna
hrifningu sína.
Hljómsveitin er
skipuð frábær-
um tónlistar-
mönnum sem töfra
fram ekta kabarett-
stemmningu.
... skemmtilegum töskum Það er nauðsynlegt að eiga
góða tösku og skemmtilegt er að eiga fleiri en eina til þess að nota við mismunandi tilefni.
Það má gjarnan velja þær með hliðsjón af því sem er í fataskápnum en það er heldur ekki úr
vegi að kaupa litríkar og öðruvísi töskur til að brjóta upp hversdagsleikann.