Vikan


Vikan - 21.09.1999, Síða 62

Vikan - 21.09.1999, Síða 62
Ekki missa af hiAKw aískorni,m DIOIÍílL1 ÍIEb Afskomar rósir og önn- ur blóm fást í búntum í blómaverslunum og eins fást þau á hagstæðu verði I stórmörkuð- um. Því ekki að fá sér einn fallegan vönd til að lífga upp á matarborðið næst þegar þú kaupir inn til heimilisins? Eins er mjög gaman að kaupa veglegan vönd þegar tekið hefur verið rækilega til á heimilinu og og njóta blómaang- ans. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað sérstakt tilefni til þess að kaupa blóm. • ■' met?MWlinni ndíllMUdl eftirThomas Harris. Nú eru sjö ár liðin frá því að mannætan og geðlæknirinn Hannibal Lecter skelfdi heimsbyggð- ina í bókinni Silence of the Lambs og Anthony Hopkins túlkaði hann á eftirminnilegan hátt á hvíta tjaldinu. Hannibal er nú mættur aftur til leiks og Harris hverfur með lesendum sínum á vit hins magnaða en jafnframt hrollvekjandi geðlæknis. Hjá Eymund- son er fárinu í kringum bókina líkt við Star Wars æðið en þar bíða jafnvel hörðustu grænmetisætur í röðum eftir eintaki af bókinni. ... S.O.S. Kabarett í Loftkastalanum. Hér er á ferðinni aldeilis frábær söngskemmtun í leikstjórn Sigga Sigurjóns og í flutningi Pálma Gestsonar, Jóhanns Sigurðarsonar, Bergþórs Pálssonar, Krist- jönu Stefánsdóttur, Elínar Helgu Sveinbjörnsdóttur og Hrefnu Hallgrímsdóttur. Kabarett sem listform á rætur sínar að rekja til Frakklands i kringum 1880. Þá sátu gestir á veitingahúsum í kringum lítil svið þar sem flutt voru margvísleg skemmtiatriði sem oftar en ekki voru pólitískar ádeilur og hæðst var að borg- arastéttinni. Eitt helsta einkenni kabarettsins var þó að einhvers konar kynnir eða veislustjóri tengdi leikatriðin saman. Kabarettinn reis líklega hæst sem listform í Rauðu Myllunni í París skömmu fyrir síðustu aldamót en hann lifir góðu lífi enn í dag. Það ætti enginn að láta hina eld- fjörugu og lifandi kabarettsýningu í Loftkastalanum fram hjá sér fara. Stemmningin á S.O.S. Kab- arett er engu lík og það er óhætt að lofa stór- kostlegri skemmt- un þar sem áhorfendur veigra sér ekki við að sýna hrifningu sína. Hljómsveitin er skipuð frábær- um tónlistar- mönnum sem töfra fram ekta kabarett- stemmningu. ... skemmtilegum töskum Það er nauðsynlegt að eiga góða tösku og skemmtilegt er að eiga fleiri en eina til þess að nota við mismunandi tilefni. Það má gjarnan velja þær með hliðsjón af því sem er í fataskápnum en það er heldur ekki úr vegi að kaupa litríkar og öðruvísi töskur til að brjóta upp hversdagsleikann.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.