Vikan - 12.10.1999, Page 2
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Myndir: Gunnar Gunnarsson
Brúðhjónin sa
a stolunum I hennar
igurveig Birgisdóttir er ein
þeirra sem útskrifast hafa af
hönnunarbraut Iðnskólans í
Hafnarfirði á undanförnum
árum. Hönnunarbrautin er
orðin velþekkt fyrir frumleika, vand-
virkni og sköpunarkraft nemendanna
en það er ekki hvað síst því að þakka
að nemendur halda árlega sýningu á
verkum sínum í Hafnarborg. Sigurveig
átti hugmyndina að nemendasýningun-
um og var ein þeirra sem skipulögðu
fyrstu sýninguna. A þeirri sýningu
sýndi hún stóla og borð sem hún
vann þann vetur og stólarnir henn-
ar voru kosnir bestu hlutir sýn-
ingarinnar af áhorfendum. Sigur-
veig er þriggja barna móðir og
hafði um árabil fyrst og fremst
sinnt heimilinu þegar hún hóf nám
í Iðnskólanum. Hvernig stóð á því
að hún valdi hönnunarbraut-
ina?
„Ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á hönnun og
listum og langaði að læra
eitthvað tengt því," segir
Sigurveig. „Þegar ég var
að alast upp og velja mér
framtíðarstarf þótti það
einfaldlega ekki jafn
sjálfsagt og nú að menn
veldu að fara í listnám.
Flestir sem það gerðu
höfðu styrkan
stuðning sinna
nánustu. Ég valdi
því frekar hag-
nýtara nám og
lauk prófi í
tækniteiknun frá
Iðnskólanum í
Reykjavík.
Næstu árin lét
ég mér nægja
að stunda ýmis
konar sköpun
aðallega fyrir
sjálfa mig og
til að prýða
heimilið. Fyrir nokkrum árum
fór ég svo á námskeið í glerlist
hjá Jónasi Braga glerlistamanni
og þá fann ég
hversu mikið mig
langaði að
læra þetta.
Hönnunar-
brautin varð
svo fyrir valinu eftir að
mér hafði verið sagt að hún
væri einstaklega góður undirbúningur
undir frekara nám í listhönnun."
Stólarnir hennar vöktu ekki
bara athygli sýningargesta í
Hafnarborg
heldur
varð
Kerta-
stjakar og
mylla eftir
Sigurveigu.
Plöturnar í
spilinu eru
úr hrein-
dýrshorni.
vei sem bruo-
hjónastólar við
brúðkaup vin-
konu hennar.
vinkona hennar heill-
uð af stólunum
'tágf* og bað um að
fá þá lánaða
sem brúð-
hjónastóla í
brúðkaupi
sínu.
„Hún sá
strax að stólarnir myndu
prýða kirkjuna vegna þess hve hvítir
og fallegir þeir eru og bök þeirra
minna á englavængi, " heldur Sigur-
veig áfram. „Ég sá hins vegar strax að
þeir væru ekta brúðhjónastólar af
annarri ástæðu. Fyrir athöfnina stillti
ég þeim þannig upp að vængirnir vís-
uðu í sitt hvora áttina en eftir at-
höfnina snerum við stólunum
og nú féllu vængirnir hver
inn í annan til að tákna
sameiningu brúðhjón-
anna."
Sigurveig hefur að
undanförnu stund-
að nám í glugga-
útstillingum við
Iðnskólann í
Hafnarfirði og
lýkur því námi
í vor. Hún
hefur mestan
áhuga á að
starfa að
einhvers
konar
listhönn-
un í
framtíð-
inni og
þessi
hug-
mynda-
ríka lista-
kona hef-
ur líka alla
burði til
þess.