Vikan - 12.10.1999, Side 4
og önnur fegurð
las óhugnanlega grein í amerísku blaði um dag-
I '■ . inn. Hún var um unglingstúlkur og lýtalœkning-
ar. Þessi grein var m.a. byggð á könnunum sem
m j gerðar höfðu verið í bandarískum framhaldsskól-
...,,*Æ um í nokkrum borgum og viðtölum við stúlkur
sem annað hvort biðu eftir slíkum aðgerðum eða höfðu þegar
farið í þœr.
Þarna koma m.a. fram að hvorki meira né minna en nœrri 30%
allra stúlkna í Hollywood, átján ára og yngri, höfðu farið í ein-
hvers konar fegrunaraðgerðir. Þessar
aðgerðir voru að vísu mjög misjafnlega
alvarlegar, allt frá því að laga litstœð
eyru eða rétta bogið nefupp ífitusog á
maga, rassi og lœrum og sílikónaðgerðir
á brjóstum og vörum. Hlutfallið var að
vísu lœgra í öðrum borgum, en eflitið
var til þess hversu hátt prósentuhlutfall
stúlkna á þessum aldri vildifara í slíkar
aðgerðir hefðu þœrfé til þess var mun-
urinn sáralítill.
Meira en helmingur stúlknanna svaraði
að þœr myndu fara í slíkar aðgerðir
hefðu þœr tœkifœri til þess! Persónulega
finnst mér þetta vœgast sagt dapurlegar
fréttir. Hugsið ykkur allar þessar heil-
brigðu, hraustu og vel sköpuðu, ungu
konur sem ganga um hundóánœgðar með sjálfar sig og tilbúnar
að leggja ístórar (jafnvel hættulegar) og dýrar aðgerðir til að
breyta útliti sínu til að þóknast einhverju eða einhverjum. Hvern-
ig skyldi útkoman hafa orðið ef konurnar í könnuninni hefðu
verið komnar yfir fertugt og ýmis einkenni aukins þroska og
hœkkandi aldurs farin að sjást? Hefðu tölurnar orðið enn hœrri
þá, eða skyldi þroski kvennanna hafa opnað augu einhverra
þeirra fyrir því að fegurð er ekki eingöngu það sem sést utaná
fólki?
Ég veit það ekki. En hitt veit ég, að þessi könnun og viðhorf
stúlknanna er til marks um skelfilega firringu; harðnandi sam-
keppni í lífinu, fordóma og skelfilega rangt mat áfólki og lífs-
gœðum.
Ein stúlknanna sagðist t.d. hafa orðið að fara í brjóstastœkkun
vegna þess að hún vœri ekki mikill námsmaður. Hana langaði að
reyna fyrir sér á fasteignasölumarkaði og hún þóttist vissi um að
komast ekki langt með einkunnirnar einar í farteskinu. Önnur
viðurkenndi að hafafarið í fitusog og augnstœkkun til að eiga
meiri möguleika á að ná í "vel stœðan" eiginmann. Móðir einnar
stúlkunnar var fyrrverandi Ijósmyndafyrirsœta hjá stórum verð-
lista og hafði gefið dóttur sinni nefminnkun og varaþykkingu í
fermingargjöf til að auka möguleika hennar á þessum markaði.
Mér var brugðið eftir þennan lestur. Hvað er verið að gera ung-
um konum? Hvers vegna hefur heimsmyndþeirra verið skekkt
svo að þœr eygja enga möguleika í lífinu nema þœr falli inn í til-
búna fegurðarímynd?
Vonandi tekst okkur að halda firringunni frá íslenskum stúlkum,
vonandi geta þœrfengið að lifa lífi sínu sáttar við líkama sinn og
sál. Sem beturfer er smekkur fólks ekki einhlýtur og þarfekki að
leita lengra en í grein á bls. 10 til að sjá það. Við erum sem betur
fer ekki allar eins og á bls. 24 er hœgt að gera ofurlitla könnun á
því hvaða líkamsgerð hver kona hefur.
En það er ekki eina efnið í Vikunni sem fœrir okkur heim
kvenna, því hún er bókstaflega full afefni sem ekki bara konur á
öllum aldri, heldur einnig karlar, hafa bœði gagn og gaman afað
lesa.
Og því segi ég enn og aftur:
Njóttu Vikunnar!
Jóhanna Harðardóttir
Steingerður Hrund Margrét V. Ingunn B. Anna B. Guðmundur
Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Sigurjóns- Þorsteins- Ragnar
dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir Steingrímsson
blaéamaður auglýsinga- auglýsinga- Grafískur
stjóri stjóri hönnuður
Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal-
ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Simi: 515
5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V.
Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristín Guðmunds-
dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein-
grímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef
greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef
greitt er með giróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak.
Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555