Vikan - 12.10.1999, Qupperneq 30
Texti: Vala Ósk Bergsveinsdóttir
Allir
foreldrar
sín
eiga
Þó svo að foreldrar elski
öll börnin sín jafnmikið
eru líkur á að þeir sam-
sami sig meira því barni
sem er á sama stað í
systkinaröðinni og þeir
sjálfir. Það hefur áhrif á
foreldrið hvort það er
frumburður foreldra
sinna, miðju- eða yngsta
barnið í fjölskyldunni.
Sem dæmi má nefna að
sért þú „litla barnið" í
fjölskyldunni nærðu að
öllum líkindum bestum
tengslum við yngsta
barnið þitt en þú getur
vissulega notað reynsl-
una úr eigin bernsku til
þess að hjálpa öllum
börnunum þínum jafnt.
Ef þú ert...
...frumburðurinn
Nýbakaðir foreldrar búast
líklegast við að fyrsta barnið
sé farið að spretta úr spori á
eins árs afmælisdeginum.
Miklar líkur eru á að börn
þessara foreldra beri sömu
væntingar í brjósti til eigin
barns.
Ef þú hefur verið vön/van-
ur að passa yngri systkini
þín áttu auðveldara með að
vera við stjórnvölinn. Þú
sérð kannski elsta barnið
þitt fyrir þér sem foringja en
gefðu öllum börnunum
tækifæri til að spreyta sig á
foringjahlutverkinu. Leyfðu
þeim að skiptast á um að
ákveða hvert skuli fara í
sunnudagsbíltúrnum.
Spurðu þau öll álits og
eyddu tíma með hverju og
einu þeirra án nærveru
hinna.
Reyndu að forðast að
ráða of mikið yfir börnunum
- reyndu að standast freist-
inguna að búa aftur um
rúmið þeirra þegar þau eru
nýbúin að því. Sálfræðingur-
inn Kevin Leman, höfundur
bókarinnar The New Birth
Order Book, segir: „Gættu
þess að vera ekki sú/sá sem
vill alltaf bæta um betur."
Svo lengi sem börnin leggja
sig fram, þá skiptir ekki öllu
máli þótt verkið sé ekki full-
komlega af hendi leyst.
...miðbarnið
Miðbörnin lærðu að semja
um alla hluti þegar þau voru
að alast upp og eru líklega í
eðli sínu mjög opnar mann-
eskjur. Miðbörnin í systkina-
röðinni finna alltaf leið til
að láta taka eftir sér. Þau
skara til dæmis fram úr á
tónlistarsviðinu þó svo að
þau séu úr fjölskyldu
íþróttaáhugafólks.
Sem foreldri reynir þú að
draga fram samskiptahæfi-
leikana í börnunum og þú
ert skilningsrík/ur þegar
börnin þurfa á athygli að
halda. Samt sem áður geta
„miðjubörn" stundum orðið
of eftirlát sem foreldrar.
Samkvæmt sálfræðingnum
Peter Sheras hrósa foreldrar
sem sjálfir eru „miðjubörn"
börnum sínum of mikið fyrir
að sjá muninn á réttu og
röngu. Það er í fínu lagi að
spyrja börnin hvað þeim
finnist þegar þau hafa brotið
af sér en það ert þú sem
verður að ákveða hvað skuli
gera í málinu.
...litla barnið
„Þeir sem eru yngstir í
systkinahópi verða yfirleitt
skemmtilegir og frjálslyndir
foreldrar," segir Kevin Lem-
an sálfræðingur. Þeir setjast
á gólfið og leika sér með
börnunum sínum og eru
bestu vinir þeirra. Þeir eru
líka skilningsríkir við þá sem
minna mega sín - þegar
yngsta barnið verður fyrir
vonbrigðum vegna þess að
það getur ekki hjólað án
hjálpardekkja eins og eldri
krakkarnir þá bendir for-
eldrið á að málið snúist um
aldur en ekki hæfileika.
Hafi foreldrum þínum
reynst erfitt að sleppa af þér
takinu gætir þú átt í vand-
ræðum með að hvetja börn-
in þín til að verða sjálfstæð.
„Láttu þau eyða tíma í
burtu frá þér," segir doktor
Sheras. „Leyfðu þeim að
leika sér heima hjá vinum
sínum. Láttu þau taka
ábyrgð, jafnvel þótt það sé
ekki nema á því að leggja á
borðið. Það verður til þess
að þeim veitist auðveldara
að taka stjórnina seinna í líf-
inu."
...einbirni
Einbirni er yfirleitt vant
að vera mikið með fullorðnu
fólki svo því líður oft betur
en vinum þess með fullorðn-
um. Barnið lærir einnig að
setja markið hátt vegna þess
að það var miðpunktur
væntinga foreldranna.
Mörg einbirni hlakka til
að eignast sjálf fleiri en eitt
barn en þau eiga erfitt með
að skilja hvers vegna systk-
ini rífast, einmitt þegar
reikna hefði mátt með að
þau væru þakklát fyrir leik-
félaga.
í stað þess að segja við
barnið þitt: „Eg var ekki svo
heppin að eiga systkin"
skaltu reyna að nýta þér
reynsluna sem þú hefur öðl-
ast við að þurfa að taka þátt
30 Vikan