Vikan


Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 11

Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 11
„Helsta uandamálið var að koma öllum börnun- um tyrlr í bílnum. Þá hafði maður ekki efni á stórum siö manna bíl. Ég áttí alltaf minnstu gerð af bíl og tróð krökkunum inn í hann. Á bessum tíma sá enginn neitt at- hugavert við að bau Börnunum mínum er frjálst að koma heim til okkar hvenær sem er. Þau eru öll með lykla að íbúðinni, geta þess vegna fengið sér að borða ef þau eru svöng. Eg er hins vegar mjög löt að gæta barnabarnanna enda vita börnin mín það og biðja mig helst ekki. Ég er alveg tilbúin að viðurkenna það.” Ómar eldar ekki! Verður þú aldrei hrædd um Ómar? „Nei, ég hef aldrei orðið hrædd um hann. Sumir segja að ég sé köld manneskja vegna þess en ég treysti honum bara svo vel. Ég hef alltaf haft örygg- istilfinningu gagnvart því sem hann er að gera. Hann er klár og þekkir landið sérstaklega vel. Hann hefur lent í hrakning- um en ég hef frétt það eftir á, sem betur fer. Eins og hann seg- ir sjálfur þá hefur einhver hnippt í hann á örlagastundu." Ómar segir einmitt frá ýms- um atvikum í bókinni, Ljósið yfir landinu, sem verður gefin út fyrir jólin. Bókin fjallar um fólk sem hefur upplifað landið sterkar en aðrir, grunnurinn að henni var ferðalag sem þau hjónin fóru í árið 1990. Helga virðist taka fullan þátt í öllu því sem Ómar tekur sér fyrir hendur. Hvað með skrift- irnar? „Ég hjálpa honum ekki neitt við skriftirnar. Hann á það allt einn. Hann les oft kafla og kafla upp fyrir mig og spyr mig álits. Hann les yfirleitt upp fyrir mig aliar ræður og ljóð. Ég les ekki bækurnar hans yfir áður en þær eru gefnar út. Ómar getur aldrei setið auð- um höndum. Hann semur heilu vísurnar á meðan hann keyrir, líka á meðan ég er með hon- um." Ég ímynda mér að Ómar taki ekki mikinn þátt í heimilisstörf- unum. Er það rétt? Helga skellihær við þessa at- hugasemd. Þarna hitti ég greini- lega á viðkvæman blett. „Það er óhætt að segja að eldamennsk- an og heimilisstörf séu ekki hans sterkustu hliðar. Þegar ég fer í burtu þá borðar hann sinn barnamat eða í mötuneyti Sjón- varpsins. Ég held að hann muni frekar svelta en að elda sér mat. Ég stórefa að Ómar Ragnars- son viti hvernig ryksugan á heimilinu lítur út. Það má kannski segja að þetta sé mér að kenna, ég var heimavinnandi húsmóðir í sautján ár og þetta var mín vinna. Ég vil meina að heimilis- störf eru alveg eins mikil vinna ef ekki meiri en mörg önnur störf. Eftir að ég fór að vinna utan heimilisins hef ég bara haldið þeini áfram. Þetta veldur engum pirringi á heimilinu. Svona er þetta bara og ég ætla ekki að reyna að breyta því. Þegar ég tók við honum sagði tengdamamma við mig: „Þú átt að bursta skóna hans, pressa buxurnar og strauja skyrturnar. Hann á alltaf að vera í vel burstuðum skóm." Ég hef reynt að fara eftir þessum fyrirmæl- um æ síðan. Reyndar hef ég nú minnkað skóburstunina á und- anförnum árum." væru laus og hangandi í bílnum." Vikan /7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.