Vikan


Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 45

Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 45
Eftir Barböru Cartland. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. inn gerði sér grein fyrir því í fyrsta sinn, að ef hann væri giftur myndi hann örugglega ekki kæra sig um að eigin- kona hans fengi sér elsk- huga í fjarveru hans. Allt í einu gat hann skilið reiði Wallingtons. Hvenær fæ ég að sjá þig aftur? spurði Hermione. Hertoginn tók um hönd hennar og svaraði: Ég held að það sé best að ég segi þér allan sannleikann. Sannleikann? hváði Hermione. Móðir mín ætlast til þess að ég opinberi trúlofun mína á dansleiknum sem hún ætlar að halda í næstu viku. Hermione starði á hann eins og hún tryði ekki sínum eigin eyrum. Svo sagði hún æst og óttaslegin: En ... hverri ætlar þú að giftast? Hvers vegna ... hefur þú aldrei... sagt mér frá þessari konu? Það er vegna þess, út- skýrði hertoginn, að ég hef ekki hitt hana ennþá! Nú ... nú skil ég ekki, sagði Hermione. Móðir mín hefur boðið nokkrum vinum okkar að búa hjá okkur í höllinni, þar á meðal þremur ungum stúlkum sem hún telur að séu verðugar þess að giftast mér. Hann sagði þetta hörku- legri röddu. Hermione hlustaði á hann með tárin í augunum og fann til með með honum. O, Kenyon, hvernig get ég haldið þetta út? spurði hún. Hann svaraði engu og eft- ir andartak sagði hún með vonarhreim í röddinni: En nú, þegar ég hugsa um það, þá auðveldar þetta hlutina fyrir okkur. Auðveldar? hváði hertog- inn. Eftir að þú giftir þig hættir George að vera tortrygginn. Þegar þú kemur til baka ... Hún þurfti ekki að segja meira. Hertoginn fann til óbeitar við þessa tilhugsun. Það var nógu slæmt að gifta sig kald- rifjaður ungri stúlku aðeins til þess að bjarga sér úr klípu. Hann ætlaði að giftast eingöngu í þeim tilgangi að komast undan reiði jarlsins og komast hjá því að bland- ast inn í skilnaðarmál. En að undirbúa framhjáhald áður en hann hafði dregið hring- inn á fingur eiginkonunnar fannst honum svo smekk- laust að hann kærði sig ekki um að taka þátt í því. Við neyðumst til þess að kveðjast núna, Hermione, sagði hann. Þjónninn þinn fer að undast um þig ef þú verður mikið lengur. Hermione stífnaði upp og leit aftur fyrir sig eins og til þess að aðgæta hvort ein- hver hefði komið upp stig- ann án þess að hún tæki eftir því. Svo sagði hún: Ó, Kenyon. Ég elska þig af öllu hjarta og ég vona að- eins að við eigum eftir að hittast aftur ... áður en langt um líður! Hertoginn hugsaði með sér að þetta hljómaði eins og lítill ræðustúfur sem hún Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.