Vikan


Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 20

Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 20
Texti: Margrét V. Helgadóttir Á milli kvenna og hug- taksins sektarkennd er íafnaðarmerki. Við erum snillingar í að skapa okkur vanlíðan yfir öllu og engu. Ef bið eigið erfitt með að finna til sektarkenndar há kemur hér heilt stafróf af hugmyndum (og lausnum). Njótið hví líðandi stundar en í guðanna bænum, kveðjið sektarkennd- ina fyrir fullt og allt. Heilt stafróf af sektarkennd Aldurinn Áttu erfitt með að segja satt til um aldur þinn? Hættu að vera feimin við aldurinn. Þú getur bókað það að þú yng- ist ekki og allir sem vilja geta flett upp á kennitölunni þinni. Vertu stolt af aldrin- um. Ástin Allar konur eiga alltaf að vera ástfangnar. Það er ynd- islegt að vera ástfangin, það vitum við sem höfum upplif- að slíka sælu en það er hins vegar engin skylda. Konur sem kjósa að búa einar þurfa sífellt að verja val sitt fyrir Pétri og Páli. Stundum ganga hlutirnir upp og stundum ekki. Hvað er að því að búa einn og/ eða vera ekki ástfangin!!! Brjóstagjöf Allar almennilegar konur gefa börnum sínum brjósta- mjólk. Hvað er að konum sem eru ekki með börnin sín á brjósti? Kannist þið við þessar setningar? Það segir sig sjálft að það er fullt af konum sem geta ekki og einhverra hluta vegna, kæra sig ekki um að vera með börn á brjósti. Þær eru ekk- ert verri mæður fyrir það. Auðvitað er það hið besta mál að geta verið með barn á brjósti en ef það er ekki mögulegt er óþarfi að fá sektarkennd. Það er engin tilviljun hversu mikið úrval er til af pelum og þurrmjólk. Dagvistarmál Hvemig getur þú hugsað þér að fara út að vinna frá svona litlu barni? Er dóttir þín virkilega á leikskóla frá átta til fjögur? Já, já, já. Sumar konur verða einfald- lega að koma börnunum sín- um fyrir í vistun. Stór þjóð- félagshópur eru einstæðar mæður sem þurfa að sjá fyr- ir fjölskyldu. Margar konur kjósa að vinna úti, hluta úr degi eða jafnvel allan dag- inn. Dagmömmur eru yndis- legar konur upp til hópa sem hafa það að markmiði að vera góðar við börnin okkar. Börn hafa líka gott af því að umgangast önnur börn og öðlast við það fé- lagslega færni sem á eftir að koma þeim vel seinna. Hættið að hafa sektarkennd yfir dagvistarmálunum. Eldamennskan Ekki láta slœmt gengi í eld- hásinu brjóta þig niður. Sumar konur (og auðvitað líka karlar) eru með með- fædda hæfileika til að búa til góðan og gómsætan mat. Við hinar, sem tilheyrum ekki þessum fyrrgreinda hópi, eigum ekki að þurfa að skammast okkar fyrir 1944 réttina. Vinsældir skyndibitarétta eru ekki ástæðulausar. Fegrunaraðgerðir Langar þig í lýtaaðgerð en þorir ekki af ótta við al- menningsálitið? Gerðu það sem þig langar mest til. Ef þú ert með áhyggjur af magan- um eða brjóstunum, leyfðu þér að gera eins og samvisk- an segir til um. Ekki láta álit annarra og sektarkennd trufla ákvarðanatökuna. Vissulega er þetta ákvörðun sem þarf að ígrunda vel en þegar þú hefur komist að niðurstöðu, stattu með sjálfri þér og vertu stolt! Gemsinn Fœrðu samviskubit þegar þú slekkur á gemsanum? Er vinnuveitandinn að reyna að ná í þig eða maðurinn? Eða færðu kannski samviskubit út af því að vera „hallæris- leg" og eiga engan gemsa? Gemsar voru upphaflega hannaðir sem neyðartæki en ekki sú tískuvara sem þeir eru í dag. Njóttu þess að slaka á án gemsa. 20 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.