Vikan


Vikan - 07.12.1999, Side 30

Vikan - 07.12.1999, Side 30
skjóðunni á mynd á forsíðu tímarits og hugsaði með sér: „Þetta gengur ekki. Ég verð að líta vel út til að fólk taki mark á mér." Love valdi ódýrasta lýtalækninn sem hún fann. Lýtalæknirinn var þekktur fyrir að bæta útlit klám- stjarna og nektardans- meyja. Nýtt nef - betri brjóst „Lýtaaðgerðin var það besta sem hafði komið fyrir mig" segir Love. „Að henni lokinni varð líf mitt betra. í hvert skipti sem ég var inn- an um fólkfann ég að ég var öruggari með mig og fólktók mér betur. Allt í einu var fólkfarið að hlustaá mig og taka meira mark á mér. Svona erþetta bara." Love hefur farið í fleiri lýtaaðgerðir. Hún lét laga nefið meira og fór í brjósta- stækkun eftir að hún eign- aðist dóttur sína. „Brjóstin á mér voru eins og pokar." Love hefur ákveðnar skoðanir á lýtaaðgerðum eins og öllu öðru í lífinu. „Það fólk sem leyfir sér að fara í lýtaagerðir liggur undirásökunum almenn- ings. Fólk ásakar það fyrir að breyta sjálfu sér, jafnvel að afneita uppruna sínum. Þú ert að svíkja, þú svíkur þinn eigin uppruna með því að fara í lýtaaðgerð. Fólk segir óhikað við mig: Þú fæddist ekki með svona fal- legt nef! Auðvitað er það gott mál ef fólk þarf ekki að fara í slíkar aðgerðir en ef fólki líður betur við það, þá er það hið besta mál." Þau Love og Cobain eignuðust eina dóttur, Frances, sem er 7 ára göm- ul. Hún þykir sláandi líkföð- ur sínum í útliti og móður- innar til mikillar gleði erfði hún nef föður síns. Þær mæðgur er miklar vinkonur. Kurt Cobain batt enda á líf sitt þann 5. apríl 1994. Courtney Love gekk í gegn- um hræðilegt tímabil eftir dauða eiginmanns síns. Hún var ásökuð um að hafa átt þátt í því að hann stytti sér aldur, hún átti að hafa ráðið morðingja til verksins og dauði Cobain var hennar leið á braut frægðarinnar. Love fékk að heyra þetta allt og meira til. Hún var lengi að jafna sig. Dauði hans var eitt af því fáa sem hún hafði enga stjórn á í lífi sínu. í dag reynir hún eftir bestu getu að finna jafn- vægi á milli tónlistar og leiklistar. Hún vill helst geta sinnt báðum listgreinunum. Stöðnuð rokk- stiörnuímynd Love reynist erfitt að losna undan rokkstjörnuí- myndinni sem hefur alltaf loðað við hana. Rokkaðdá- endur vilja gjarnan yfirfæra ímynd Cobain á hana. Margir urðu gapandi hissa þegar Love birtist á ósk- arsverðlaunahátíðinni árið 1997 ÍVersace kjól með slétt, slegiö ár. „Það gilda engarfast- mótaðar reglur um útlit rokksöngkonu" segir Love, „ Ég á alltaf að líta út og haga mér eins og Kurt Cobain, sem náði því ekki að verða þroskaður maður svo við vitum ekki hvernig hann hefði orðið sem slíkur, ekki satt? Fólk vissi ekki hvernig hann var, þið hafið ekki hugmynd um það. Við vitum ekki hvernig líf hans hefði orðið ef hann hefði hætt í ruglinu og verið edrú og laus við eiturlyfin." Love er greinilega búin að fá meira en nóg af saman- Courtney Love fellur ekki ínn í barbídúkku stílinn í Hollywood. Þrátt fyrir að að hata reynt fyrir sér í tónlist og leiklist í nokkur ár varð nafn hennar ekki bekkt fyrr en hún giftst Kurt Cobain, söngvara rökkhljómsveitarinnar Nírvana. Lff hennar tók kúvendingu árið 1994 hennar stytti sér aldur. Ein og særð hóf hún nýtt líf ásamt tveggja ára dóttur sinni. kærir hún sig alls ekki um vera álitin puntudúkka. hennar eru: „Ég er ekki kona, ég er afl náttúrunnar". Uppreisnarseggurinn fæddist þann 9. júlí 1964 í San Francisco í Banda- ríkjunum. Foreldrar hennar eru þau Hank Harrison, rit- höfundur og Linda Carroll, sálfræðingur. Æskuárunum eyddi hún í hippakommún- um með foreldrum sínum og flakkaði um heiminn, stundaði meðal annars nám í skólum í Evrópu og á Nýja Sjálandi. Það er óhætt að fullyrða að hún hafi fengið frjálslegt uppeldi. Sagan segir að 9 ára gömul hafi Love horft á óskarsverð- launaafhendinguna í sjón- varp- inu og þarsá hún Tatum O'Neal, sem þá var tíu ára, taka á móti verð- launum. Næsta dag pakkaði Love niður í tösku og lagði af stað til Hollywood. Hún var búin að gera upp hug sinn varðandi framtíðina. „Heimurinn sem við búum í gerir þá kröfu að all- ir þurfi að verða frægir. Frægðin er sveipuð dýrðar- Ijóma. Fólk er tilbúið að leggja mikið á sig í von um að verða frægt." Courtney Love þekkir af eigin raun hversu erfið þrautarganga frægðarinnar getur verið. „Ég hef alltaf haft þá trú að ég geti allt ef mig langar til þess. Ef mig langar til að verða forseti þá get ég orðið forseti." Love hefur lifað skraut- legu lífi, fullu af ævintýrum og ófyrirsjáanlegum atburð- um endaerhún kona sem nýtur líðandi stundar. Love á sér stóra drauma. Nýlega gaf hljómsveit hennar út plötu sem Love vonar að seljist vel. Að sjálfsögðu vill hún líka vinna til tónlistar- verðlauna. Love hefur alltaf verið dugleg að setja sér markmið. Þegar hún var að taka sín fyrstu spor á framabrautinni þurfti hún að taka margar ákvarðanir. Ein þeirra tengdist útlitinu. „Ég var með stórt nef, rétt eins og bræður mínir. Vinir mínir sögðu að ég skyldi láta laga á mér nefið en ég sagði þá: Þegiði! Ég ætla að verða fræg vegna hæfileika minna. Ég ætlaði ekki að breyta útliti mínu." Þegar hjómsveitin var að stíga fram á sjónarsviðið árið 1990, sá Love sjálfa sig Samantekt: Margrét V. Helgadóttir

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.