Vikan - 07.12.1999, Side 40
Það er orðið svolítið
langt síðan þessi saga
gerðist því ég var rétt
að verða 15 ára.
Við vinkonurnar fengum að
fara í fyrsta skipti á bindindis-
hátíð um verslunarmannahelgi.
Við vorum ofsalega spenntar,
við fengum að fara með systur
minni sem var fjórum árum
eldri og vinkonu hennar. Systir
mín átti að bera ábyrgð á okkur
yngri stelpunum, en við fengum
þó að vera í sér tjaldi, ef tjald
skyldi kalla, því þetta var gam-
alt og hálfmyglað tjald og
öruggiega frá því í stríð
inu ef marka mátti út-
litið.
Við komumst
heilu og höldnu á
leiðarenda og það
gekk sæmilega að
tjalda þótt við
fyndum reyndar
hvergi sléttan
flöt undir tjald-
ið og það væri
söðulbakað
eins og göm-
ul hryssa.
Um
kvöldið var svo farið á ball og
við skemmtum okkur eins og
herforingjar. Ég hafði að sjálf-
sögðu ekki mikla reynslu í að
umgangast hitt kynið á þessurn
tíma, en ég hafði svo sannarlega
áhuga og þarna á ballinu hitti
ég strák sem var álíka spenntur
að kanna lendur ástarinnar. Við
höfðum auðvitað aldrei sést
fyrr, hann var ósköp venjulegur
unglingur, jafngamall mér, og
greinilega ekkert reyndari í
ástamálum. Við dönsuðum
saman á trépallinum og þegar
komu róleg lög myndaðist
hann við að taka utan-
um mig. Snertingin
varð ekki mjög
náin vegna ullar-
peysanna og
annars útilegu-
búnaðar sem
aðskildi okk-
ur, en við
vorum samt
orðin rosa-
lega skot-
in um
það leyti
sem
ballið
var á enda.
Pað var ekkert undarlegt þótt
við hrifumst hvort af öðru því
við áttum eitt sameiginlegt- við
vorum bæði með spangir á
tönnunum - ég var með klemm-
ur á öllum framtönnum, en
hann á tönnunum í efri gómi.
Astin var orðin svo heit að ég
laumaðist í burtu frá danspall-
inum með honurn án þess að
systir mín sæi og ég var alveg
tilbúin að kynnast þessum
glæsilega herramanni svolítið
betur í einhverri lautinni. Við
fundum okkur svolítið rjóður
milli tveggja birkihríslna þar
sem enginn gat komið okkur á
óvart því við sáum alltaf þá fáu
sem áttu leið hjá áður en þeir
komu auga á okkur. Og þarna
blossaði ástin upp og varð að
stóru báli, og fyrr en varði var
hún komin á það hátt stig að
varir okkar mættust í heitum
kossi. Sælustraumur fór um mig
og mér fannst ég vera prinsessa
í örmurn draumaprinsins og ég
vonaði að þessi draumur
tæki aldrei enda.
Og mér varð að ósk
minni. Að minnsta kosti
Neyðarlegasta
SendU OkkUr skemmtilega sögu úr
lífi þínu, hún má vera 1 vélrituð síða, í
léttum dúr og á að fjalla urn eitthvert
minnisstætt atvik þar sem þú lentir í
vanda.
Við munum birta skemmtilegustu
sögurnar og þeir sem fá sögur sínar
birtar hljóta verðlaun sem eru ekki af
verri endanum; Sheaffer Prelude sjáli'-
blekung.
Sheafferpennar eru gæðagripir
(eins og sjá má hér annars staðar á síð-
unni!) og Prelude línan er sú vin-
sælasta um þessar mundir. Prelude
sjálfblekungurinn er einmitt rétti
penninn fyrir nútímafólk,
hann er hannaður sem sjálf-
blekungur og hægt er að
draga upp í hann blek úr blek
byttu, en einnig má nota blek-
fyllingu ef það hentar eigandan
um betur. Á Preludepennanum
er stáloddur, húðaður með 23
karata gulli og hann er sérstaklega
hannaður til að falla vel í hendi.
Skrifaðu minninguna af neyðarieg
asta atviki lífs þíns og sendu okkur
hana. Við birtum sögurnar undir dul-
nefni ef óskað er. Heimilisfang Vik-
unnar er:
Vikan, Seljavegi 2,121 Reykjavík.
Hver veit nerna þú eignist merktan
Sheaffer penna!
S
fannst mér það eftir á.
En því miður snérist draum-
urinn upp í martröð áður en ég
loksins vaknaði af honum.
Já, hvar var ég ... Jú, við
kysstumst heitt og innilega og
ég lagðist þéttar í fangið á hon-
um. Allt í einu fann ég að ég
var föst! Ég reyndi að sleppa
vörum hans en það kom ekki
að neinu gagni. Tannspangir
okkar voru fastar saman! Við
frusum bæði í þeirri stellingu
sem við vorum og ástarbríminn
rann af okkur á sekúndubroti.
Nú upphófust sérkennilegar
varfærnislegar æfingar sem
rniðuðu allar að því að losa
okkur. Við undum okkur og
snérum og ég er viss um að þeir
sem framhjá fóru hafa aldrei á
ævinni séð æsilegri kossasenu á
víðavangi. Við vorum staðin
upp og farin að fikra okkur í
áttina að sjúkratjaldinu þegar
málið leystist á farsælan hátt og
án teljandi tjóns af beggja hálfu.
Það þarf vart að segja frá því
að þessi ástarsena varð ekki
lengri og ég lét þetta kelerí
nægja þessa helgina.
Dulnefni: Sigga
flösend saga:
I vioju
Höfundurinn, Sigga,
fær sendan glæsilegan
merktan Sheaffer
penna frá Andvara.
ATH!: Munið að
láta fullt nafn og
símanúmer fylgja.
40 Vikan