Vikan - 07.12.1999, Page 47
sem þær voru afbrýðisamar
út í fegurð hennar. Nei, það
myndi ekkert koma fyrir
Hermione, fullvissaði her-
toginn sig um, en hann sjálf-
ur kæmi til með að greiða
þetta ævintýri háu verði.
Hann fengi lífstíðardóm.
Eftir að hafa fullvissað sig
um að enginn sæi til hans yf-
irgaf hann kirkjuna og gekk
rösklega heim á leið. Hann
velti því fyrir sér hvernig
hann ætti að verja kvöldinu.
Áður en allt þetta gerðist
var hann búinn að ákveða
að borða með Hermione og
vera hjá henni síðustu nótt-
ina áður en eiginmaður
hennar kæmi aftur frá París.
Hann velti því fyrir sér
hvort hann ætti að fara í
klúbbinn eða bjóða
nokkrum vinum sínum í
mat. En það var líklega ekki
góð hugmynd. Þeir myndu
eflaust furða sig á að hann
væri ekki hjá Hermione.
Hann hafði aldrei hugsað út
í það áður en nú var hann
þess fullviss að ritarinn væri
ekki sá eini sem hefði fylgst
með þeim.
Fjandinn hafi það! hugs-
aði hann með sér. Af hverju
getur maður ekki fengið að
hafa sitt einkalíf í friði?
Hann rétti þjóninum hatt
sinn og þjónninn sagði hon-
um að móðir hans vildi tala
við hann. Hertoginn vissi að
hann myndi finna móður
sína í stofunni þar sem hún
var vön að fá sér te um þetta
leyti dags. Hann gekk upp
stigann og kom að henni,
eins og hann hafði búist við,
þar sem hún sat við glugg-
ann og naut sólarinnar.
Honum til mikils léttis var
hún ein.
Þarna kemur þú, minn
kæri, sagði hún glaðlega. Nú
ætla ég að gefa þér tebolla
og svo ætla ég að segja þér
áform mín fyrir kvöldið.
Fyrir kvöldið? hváði hann.
Þér hefur örugglega ekki
dottið neitt betra í hug en að
bjóða nokkrum vinum þín-
um í mat, sagði hertogaynj-
an. En ég hef annað í huga.
Ég ætla að panta miða í
Drury Lane leikhúsið. Það
gæti farið svo að við misst-
um af fyrsta þættinum af
sýningunni, sem ég hef heyrt
að sé mjög góð, en ég er viss
um að það kemur ekki að
sök.
Það var stríðnisglampi í
augum móður hans. Hertog-
inn gerði sér fullkomlega
grein fyrir því að hún ætlaði
sér að sjá til þess að fólk
tæki eftir honum þetta
kvöldið.
Marsden, eða hver sem
hafði njósnað um þau, gæti
ekki sett í skýrslu sína til
hertogans af Wellington að
hann hefði verið með
Hermione þetta kvöldið.
Því næst, hélt hertogaynj-
an áfram, hef ég lofað því að
við lítum við í móttöku í
Aspley House. Þér finnst
það eflaust ekki spennandi,
en forsætisráðherrann verð-
ur þar og auðvitað fleiri
frammámenn.
Hertoginn gat ekki varist
hlátri.
O, mamma, þú ert engri
lík! sagði hann. Ég geri ráð
fyrir því að ég eigi að vera
þakklátur og feginn en eins
og er langar mig mest til
þess að slá einhvern utan
undir, helst sjálfan mig,
vegna þess að ég hef hagað
mér eins og fífl!
Hertogaynjan þaggaði
niður í honum. Okkur verð-
ur öllum á að gera mistök,
drengur minn, sagði hún.
Það mikilvægasta er að gæta
þess að endurtaka þau ekki.
^«in Herzog
°«y' Body 1%
Wiu« Fniii Acidk
(,*y' Corps 1%
''■AddcsdeFniits
Karin Herzog útsölustaðir
Fjarðarkaupsapótek
Háaleitisapótek
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Smáratorgi
Hagkaup Skeifunni
Apótekið Smáratorgi
Apótekið Iðufelli
Apótekið Smiðjuvegi
Apótekið Spönginni, Grafarvogi
ApótekiðSuðurströnd, Seltj.nesi
Apótekið Mosfellsbæ
Apótekið Nýkaupi Kringlunni
Lyf og heilsa, Glæsibæ
Lyf og heilsa, Kringlunni
Lyf og heilsa, Melhaga
Lyf og heilsa, Mjóddinni
Lyf og heilsa, Hraunbergi
Árbæjarapótek
Hafnarfjarðarapótek
Rimaapótek, Grafarvogi
Laugarnesapótek
Garðsapótek
Hringbrautarapótek
Laugavegsapótek
Snyrtihöllin Garðatorgi
Heilsa og fegurð, Síðumúla 34
Heilsudrekinn, Armúla 17a
Sól og sæla, Fjarðargötu Hfj.
Fínar línur, Skúlagötu 10
World Class, Reykjavík
Karin Herzog snyrtistofan býður upp á frábærar
snyrtistofumeðferðir þar sem enn virkari efni frá
Karin Herzog eru notuð.
Upplýsingar og tímapantanir í síma 698-0799
Landsbyggðin:
Hagkaup Akureyri
Lyf og heilsa, Akureyri
Apótekið Keflavík
Lyfja Grindavík
Akranessapótek
Borgarnessapótek
Apótek Ólafsvíkur
Apótek Vestmannaeyja
Lyf og heilsa, Hveragerði
Lyf og heilsa, Þorlákshöfn
Lyf og heilsa, Selfossi
Apótek Blönduóss
Sauðárkróksapótek
Húsavíkurapótek
Nesapótek, Neskaupstað
Egilstaðaapótek
Eskifjarðarapótek
Hjá Eygló, Fáskrúðsfirði
Kari n Herzog
SWITZERLAND