Vikan - 14.12.1999, Qupperneq 4
f^flesandi...
Það er sittlivað Ijós og friður
Jólin hafa stundum verið kölluð hátíð
Ijóss ogfriðar sem er göfugt ogfallegt
heiti, en einhvern veginn finnst mér það
ekki standast nána skoðun á jólahaldi
landans. Eiginiega finnst mér nóg að kalla
jólin hátíð Ijóssins, því friðurinn er gjarn-
an fyrir borð borinn á jólum og aðventu.
Pessi kenning mín er
hvorki sett fram aftrúar-
legum ástœðum né sem
gagnrýni á jólahald
landsmanna, síður en
svo. Mér finnst þetta ein-
faldlega rökréttara og
heiðarlegra. Eg held líka
að margir hefðu gott af
því að móta afstöðu sína
til jólahaldsins almennt.
Norrænir menn héldu há-
tíðir á þessum árstíma
löngu áður en þeir tirðit
kristnir. Á þessttm tíma er sólin byrjuð að
hœkka á lofti og dagurinn að lengjast um
sitt hœnufet á dag og þeim þótti ástœða til
að fagna því hressilega. Menn skreyttu
vistarverur sínar, báru fram það besta í
mat og drykk og héldu gleðihátíðir. Gleð-
in var sönn og kom innan frá vegna þeirr-
arfullvissu að nú fœri að birta aftur. Pess-
ar hátíðir vortt sjaldnast kenndar við frið.
Pað er enn erfttll ástœða fyrir okkttr Is-
lendinga að fagna hœkkandi sól og stytta
okkur skammdegið með gleðiltátíð og ég er
sannfœrð um að það er mannbœtandi að
lýsa ttpp skammdegið með marglitum Ijós-
um. Ég hefaldrei skilið hvað fólk hefur á
móti því að jólaseríttr séu settar ttpp í byrj-
un desember. Ég er viss um að þessi Ijósa-
dýrð hefttr ótrúlega góð áhrifá sálarlíf
þjóðarinnar og það er nógtt aðfagna, hvort
sem maður villfagna konm Ijóss heimsins;
þ.e. Krists eða hœkkandi sól.
Pað ersvo aftur annað mál með friðinn.
Hann er ekki alveg eins áberandi og Ijósið í
desember og allra síst um jól og áramót.
Pað er varla komið nemafram ínóvember
þegar jólaauglýsingar byrja að berja á
manni ífjölmiðlum (sem mér finnst argasti
dónaskapttr) og síðan linnir ekki látum að
hvetjafólk til dáða í innkaupum og ttndir-
búningi fyrir jólin allt fram á aðfangadag.
Og því miðurfer það oftþannig að fólk
lœtur glepjast. Allir ertt á þeytingi við jóla-
undirbúninginn; að kattpa jólagjafir,
jólafatnað og jólamat, skrifa jólakort, baka,
elda, þrífa, mála og skreyta og jafnvel ttnd-
irbúa stórveislur. Pegar svo loksins kemttr
að jólum þarfað sendast með jólagjafir tvist
og bast, fara í jólaveishtr og sinna ýmsum
jólahefðum sem fólk liefur komið sér ttpp í
góðri trú.
friður eða gleði og margir finna til mikils
angurs og þyngsla um jól og áramót. Allir
vilja gera sitt besta til að búa sér og sínum
gleðilega hátíð og margir gera kröfttr á
sjálfa sig um fyrirhöfn ogfjárútlát langt
framyfir það sem þeir geta staðið undir.
Stundum er löngtt fyrirséð að markmiðin
nást ekki með góðtt móti og að hátíðinni
muni fylgja fjárhagsleg byrði og þreyta
fram á nœsta ár. Áhyggjur og streita magn-
ast eftirþví sem nœr líðurjólum og gleðin
þverr.
En við eigttm val.
Viðþurfum ekki að keppa hvert við annað í
jólahaldi. Við þurfum bara að lœra að njóta
þess se'm við eigum og gleðjast yfir þvísem
við höfum. Við getum öll glaðst yfir Ijósinu,
það er sameign okkar allra. Til þess þurfum
við ekkert annað en rétta hugarfarið.
Við getum líka notið friðarins efvið kunn-
um bara að setja okkttr raunhœf markmið.
Pað er okkar að velja. Efvið kjósum að
halda hátíð Ijóss ogfriðarþá þurfum við að
lœra að finna friðinn,- og hann kemttr inn-
an frá.
Við erum að komast í jólaskap á Vikunni. I
blaðinu mikið mikið afefiti tengdu jólum
og við vonum svo sannarlega að þið njótið
friðar við að skoða Vikuna ykkar að vanda.
Njóttu Vikunnar!
Því miðurfylgir þessu umstangi ekki alltaf
Hrund Steingerður
Hauksdóttir Steinars-
ritstjóri dóttir
blaðamaður
4
Margrét V. Ingunn B.
Helgadóttir Sigurjóns-
blaðamaður dóttir
auglýsinga-
stjóri
Anna B. Guðmundur
Þorsteins- Ragnar
dóttir Steingrímsson
auglýsinga- Grafískur
stjóri hönnuður
Jóhanna Harðardóttir, ritstjóri
Ritstjórar Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund
Hauksdóttir vikan@frodi.is Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Simi: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnar-formaður Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515
5515 Framkvæmdastjóri Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512 Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar Anna B. Þorsteinsdóttir og
Ingunn B. Sigurjónsdóttir Vikanaugl@frodi.is
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar
Steingrimsson Verð i lausasölu 459 kr. Verð í
áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. pr
eintak . Ef greitt er með gíróseðli 389 kr pr.
eintak. Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555