Vikan - 14.12.1999, Síða 6
raKarni'
Þeir Sölvi Böndai, Steínar
Orri Fjeldsted, Höskuldur
Úlafsson og Björn Ingi-
mundarson eru dæmi-
gerðir ungir menn á upp-
leið. Tveir peirra stunda
iiáskólanám, annar í stjórn-
málafræði en hinn í íslensku,
sá priðji hefur lokið námi í
hönnun en sá fjórði er plötu-
snúður. í fljótu bragði uirðast
peir eiga fátt sameiginiegt en
Pegar betur er að gáð kemur í
Ijós að tónlistin sameinar pá
svo um munar. Þeir eyða öllum
stundum í að semja tónlist,
halda tónleika og fylgja geisla-
disknum sínum eftír. Nýi
geisladiskur Quarashi,
Xeneizes, hefur fengið frábær-
ar viðtökur og ekkert lát er á
vinsældum hljómsveítarinnar.
Blaðamaður Uikunnar átti
skemmtilegt spjall við tvo
hljómsveitarmeðlimi, Steina
sönguara og Sölva trommara
og lagahöfund.
á réttum stað
yrir tveimur
árum hélt breska
hljómsveitin Prodigy stórtón-
leika í Laugardalshöll. Ung, ís-
lensk hljómsveit, Quarashi, var
fengin til aö hita upp. Tónleikarnir
tókust vel og aö þeim loknum fengu
strákarnir í Quarashi mikið hrós fyr-
ir frábæra tónlist. Sú stund er enn-
þá hápunktur ferilsins, aö mati
Sölva, sem óhætt er aö kalla guð-
móöur hljómsveitarinnar. En hvern-
ig varö Quarashi til?
Sölvi: „Við vorum allir búnir aö
vera á fullu í tónlist þegar viö byrj-
uöum aö vinna saman. Viö komum
hver úr sinni áttinni. Ég var búinn
aö berja trommurnar heima hjá mér
í langan tíma. Fyrst æföi ég mig inni
í herberginu mínu, var með heilt
trommusett þar inni í eitt ár. Ég held
að ég eigi meö eindæmum þolin-
móða foreldra. Eftir áriö buöu pabbi
og mamma mér að fara meö
trommurnar niður í bílskúr og þar
hélt ég áfram aö berja þær. Þá fékk
ég mína fyrstu líflátshótun frá
virðulegri frú í Vesturbænum sem
var búin að fá alveg nóg af
trommuslættinum."
Steini: „Foreldrar mínir báöu mig
nú bara aö lækka í tölvunni. Ég fékk
að vera óáreittur með mína tónlist."
Sölvi: „Ég var í nokkrum bíl-
skúrshljómsveitum. Ég spilaði með
Höskuldi í nokkrum þeirra. Á sama
tíma var ég aö vinna í félagsmið-
stööinni Frostaskjóli og þar sá ég
krakka búa til rappbönd. Ég sá aö
þetta var mögulegt og fékk þá hug-
mynd aö setja saman rapphljóm-
„Mér er alltaf líkt við
Chandler. Hann náði sér
aldrei í stelpu svo ég bíð bara
eftir að Courtney birtist hjá
mér eins og hún gerði hjá
honum. Kannski við ættum að
íhuga vandlega að fara að
spila í L.A. Hver veit nema að
mér yrði boðið í partí með
Courtney Cox?“
sveit. Ég vissi að Steini var í svona
tölvutónlist og rappi og viö ákváð-
um að búa til hljómsveit. Seinna
fengum viö Höskuld í lið meö okkur.
Þegar viö vorum beönir að spila á
Prodigy tónleikunum vantaöi okkur
plötusnúð og þá fengum Bjössa
meö okkur í liö. Hann hafði lítið
sem ekkert spilað opinberlega en
stóð sig eins og hetja í Laugardals-
höllinni.
Tonelsk systkin
Þeir Steini og Sölvi bera báðir
gömul og þekkt íslensk ættarnöfn,
Fjeldsted og Blöndal.
Sölvi: „Þaö er alveg dæmigert að
fólk ákveði þaö að allir þeir sem
heita Blöndal hafa áhuga á stjórn-
málum, séu frjálslyndir og hægri
sinnaðir. Ég hef mikinn áhuga á
stjórnmálum en ég er sjálfur vinstri
sinnaöur. Það eru líka rosalega
Hljómsveitin hefur bara þróast
svona stig af stigi. Fyrsti geisladisk-
urinn kom út áriö 1996 og á árun-
um 1997-1998 spiluðum viö mjög
mikið, við vorum saman öllum
stundum."
Steini: „Viö fengum virkilega nóg
hver af öðrum og tókum okkur svo
átta mánaöa hlé. Þá fórum viö allir
til útlanda í smá tíma."
Sölvi: „Áður en við fórum út vor-
um orðnir svo illa haldnir aö viö
þurftum að ganga til sálfræðings.
Lágum allir saman á bekknum en
ekkert gekk."
Steini: Já, sálfræðingurinn er
reyndar hættur að starfa í dag en
við getum ennþá starfað saman."
Stundum er erfitt að trúa strák-
unum þegar þeir komast á flug en
þeir staðhæfa að sálfræðingssagan
sé rétt.
Sölvi: „Þetta er dagsatt. Við vor-
um bara komnir í vítahring. Sál-
fræðitímarnir voru svo dýrir að við
þurftum að spila öll kvöld til að eiga
fyrir tímunum, þá fengum við ennþá
meira leið hveráöðrum."
margir sem koma til mín og segjast
vera frændi minn eða frænka. Blön-
dalsættin er mjög stór."
Steini tekur í sama streng. „Syst-
ir mín heitir Katrín Fjeldsted og
margir halda að það sé Katrín
Fjeldsted, læknir og alþingismað-
ur."
Systir Sölva, Magga Stína, hefur
getið sér gott orð í tónlistinni og því
gera sjálfsagt margir ráð fyrir að
þau systkin eigi tónelska foreldra.
Sölvi kannast ekki við þá hæfileika
foreldra sinna.
Sölvi: „Mamma mín er menntuð
leikkona en fór svo í hjúkrunarfræð-
ina og starfar í dag sem hjúkrunar-
fræðingur. Pabbi er kennari.
Mamma reyndi mikið að koma mér
í tónlistarnám þegar ég var barn.
Fyrst sendi hún mig í píanótíma en
ég var svo lélegur að ég ákvað
frekar að passa börn kennarans.
Næst reyndi hún að koma mér í
sellótíma en mér fannst miklu
skemmtilegra að leika mér með
uppstoppaðan krókódíl sem kenn-
arinn átti. Mamma gafst ekki upp
og tilkynnti mér það sama dag og