Vikan - 14.12.1999, Síða 20
í síðasta tölublaði
Vikunnar var viðtal
við Öldu Björk,
söngkonu, sem
sagði frá lífi sínu á
þessu ári og vitnaði
í völvuspá Vikunnar
sem hafði ræst
ótrúlega vel.
í framhaldi af því
flettum við spánni
til að skoða hversu
sannspá Völvan
hefði verið. Hér
stiklum við á stóru
til gamans:
Nýir atuinnu-
uegir í upp-
sigiingu.
„ mest
verður þó
þróunin í
lyfjaiðnaði
og þar eiga
íslendingar
eftir að verða
framarlega í
flokki. Islending-
ar munu eiga þátt í gerð
tvenns konar lyfja sem eiga
eftir að hafa gífurleg áhrif á
mannkynið."
Þessi spádómur hefur þeg-
ar ræst og íslenskir vísinda-
menn hafa á árinu sýnt og
sannað að þeir eru meðal
þeirra fremstu á þessu sviði.
Verslun
„Einingar í rekstri munu
halda áfram að stækka.
KEA Nettó mun efl-
ast á suðvestur-
horninu og
spjara sig á
þeim markaði. Það verður
mikil verslun í landinu á
þessu ári."
Einingar hafa svo sannar-
lega haldið áfram að stækka
og verslun er enn að færast á
færri hendur. KEA Nettó
opnaði verslun í Mjóddinni í
Reykjavík og stendur sig vel
og bílaverslun, svo eitthvað
sé nefnt, hefur aldrei verið
meiri hér á landi en núna.
Náttúrufar
„...við verðum ekki laus
við stóra jarðskjálfta á þessu
ári. Það verða líka bæði
snjó- og aurflóð þótt ekki
valdi þau manntjóni. Veður-
far verður undarlegt á árinu
og fólk á eftir að sjá háar
hitatölur."
Það þarf vart að minna
íbúa suður- og suðvestur-
lands á þá stóru skjálfta
sem urðu á árinu. Snjóflóð
urðu nokkur og aurskriður
urðu m.a. vegna mikilla
vatnavaxta í vor. Hiti fór
upp í 33
gráður á Akureyri í sumar
og í nóvember fór hiti eitt
sinn í 17 gráður í Reykjavík.
Hneyksli, spilling
og morð
„Fíkniefni munu mjög
setja svip á árið og mörg
stór fíkniefnamál
verða upplýst.
Geirfinns-
inu er ekki lokið,
ný gögn koma fram og mál-
ið mun verða í fréttum þótt
það leysist hvorki nú né síð-
ar. Morð tengt fíkniefnum
verður framið á árinu."
Því verður ekki mótmælt
að mörg fíkniefnamál og
stór (sbr. Stóra fíkniefna-
málið) hafa verið upplýst á
þessu ári og enn eru ekki öll
kurl komin til grafar þegar
þetta er skrifað. Morðið
tengt fíkniefnum var framið
og Geirfinnsmálið var mikið
í fréttum.
„... prestur verður fyrir al-
varlegum ásökunum og
biskup íslands mun þurfa að
bera vopn á klæði víða á
þessu ári."
Það þarf ekki að orðlengja
ásakanir forsætisráðherra á
hendur presti vegna smá-
sögu sem birt var í Morg-
unblaðinu á árinu og víst
er að biskup hefur þurft
að bera klæði á vopn
víða innan kirkj-
unnar vegna deilna
m.a. um jafnréttis-
mál.
ípróttir
„Islenskir
íþróttamenn
verða sýnilegri
í útlöndum en
til þessa.
Knatt-
spyrna verður í tísku og
miklir peningar í kringum
hana."
Þetta stendur allt heima
og knattspyrnumenn hafa
farið fremstir í flokki ís-
lenskra íþróttamanna. Þess
er skemmst að minnast að
Þórður Guðjónsson var
keyptur fyrir háa fjárhæð í
vor og að hópur íslendinga
keypti hlutabréf í Stoke City
fyrir skömmu.
Hlutabréf og
fjölmiðlafár
„Hlutabréfamarkaðurinn
verður fjörugur á árinu og
upp kemur mikið
hneysklismál og fjöl-
miðlafár í kringum
það."
Er einhver búinn að
gleyma FBA, Kaup-
þingi, Davíð og Jóni
Ólafssyni?
up
1
Og
svona
rétt að
lokum;
œtlar
einhver
að missa af
völvu Vikunn-
ar 4. janúar
2000?
20 Vikan