Vikan - 14.12.1999, Page 52
Vinningshafí í lesendaleik
Vikunnar og Heimilistækja:
honum uppi
ef hana lang-
ar til.
Mamma þín er
fullorðin kona með
mikla lífsreynslu að baki
og ætti því von-
andi að hafa fjár-
málavit
og láta
manninn ekki
setja sig í vanda. Eina hættan liggur
kannski í að hún gangi í fjárhagslega
ábyrgð fyrir hann, veiti honum veð eða
skrifi upp á eitthvað sem gæti orðið til
vandræða seinna.
Ef þú hefur ástæðu til að óttast að
hún geri það er hins vegar ábyrg af-
staða hjá þér að fylgjast með framvind-
unni og njósna um hvaða orðspor hann
hefur á sér, sérstaklega fjárhagslega. Ef
þú þekkir mömmu þína af kæruleysi í
fjármálum eða af því að treysta fólki of
vel, þá gætir þú auðvitað talað eins og
þú vitir að hann leggi fram sinn skerf
og sagt henni dæmisögur af fólki sem
hefur misst aleiguna vegna þess að það
lánaði nafnið sitt óvönduðu fólki.
Kannski opnar það augu hennar.
Ef þú ert VISS um að maðurinn hef-
ur illt í huga skaltu auðvitað ekki hika
við að tala heiðarlega og opinskátt við
mömmu þína. Auðvitað gætirðu átt á
hættu að hún verði sár og reið, en til-
gangurinn helgar meðalið.
Mundu samt að mamma þín á rétt á
að vera hamingjusöm og þú mátt ekki
dæma manninn eða samband þeirra
nema vera viss.
Kæri Póstur
Fyrir skemmstu komst ég að því að
móðir mín sem er fráskilin er komin
með mann inn á heimilið til sín.
Mamma, sem er komin yfir sextugt, er
hugguleg kona og hefur áður átt góða
vini af hinu kyninu og ég hef ekkert
við það að athuga.
En málið horfir öðruvísi við núna
því þessi maður er nánast fluttur inn á
hana. Hann virðist búa þarna frítt og
láta fara vel um
sig, en ég get ^
ekki séð að /^
hann sé y L/^ V
aðleggja ( ^^ ?
henni lið á JffiSr
neinn hátt. Petta er
ósköp venjulegur mað-
ur, hann er eldri en hún, í hálfu starfi,
er líka fráskilinn og virðist ekki eiga
neitt nema sjálfan sig og bílinn sinn.
Mamma er enn í fullri vinnu og þótt
hún sé engin hálaunakona hefur hún
það ágætt nú orðið, þótt líf hennar hafi
oft verið erfitt hér á árum áður.
Það fer óendanlega mikið í taugarn-
ar á mér að sjá þennan auðnuleysingja
koma sér fyrir hjá henni og notfæra sér
hana. Ég hef það á tilfinningunni að
hann sé bara að spara á hennar kostn-
að og ég vona að hún geri enga fjár-
hagslega vitleysu. Hvað get ég gert til
að opna augu hennar án þess að
styggja hana?
Ein reið.
Kæra reiða kona
Ég þekki auðvitað hvorki mömmu
þína né manninn, - en hefur
þú nokkra ástæðu til að
efast um að mamma
þín viti hvað hún
er að gera?
Það er ofur
eðlilegt að
mömmu þína langi
til að hafa félags-
skap, og ef maðurinn er góður við
hana og henni líður vel með honum er
það alls ekki þitt mál þótt hann búi hjá
henni. Auðvitað er eðlilegast að hann
leggi jafnt til heimilisins ef hann býr
þar, en hún hefur fullt leyfi til að halda
"Það verður fínt að endurnýja fyrir jólin!" sagði Sigríður Áslaug Guð-
mundsdóttir, áskrifandi Vikunnar, þegar henni var tilkynnt að eiginmaður
hennar, Hjörleifur Sigurðs-
hefði unnið Philips
hljómflutningstæki frá
Heimilistækjum í Lesenda-
leiknum. Við erum með
gamlar græjur núna svo það
verður mjög gaman að fá
|i j þessarfyrir jólin. Hjörleifi
Jij hefur þegar verið sent gjafa-
’ L bréfið.
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Netfang: vikan@frodi.i
52
Vikan