Vikan - 14.12.1999, Side 59
Engin jól án tónlistar
Jólalögin og sálmarnir eru yf-
Irleítt svo ómissandi öáttur í
jólahaldinu að mörgum finnst
ekki komin jól fyrr en heir
hafa heyrt uppáhaldsjólalagið
sitt. Við vitum t.d. um konu
nokkra sem ekki getur hellt
sér heilshugar út í jólaundir-
búning fyrr en hún hefur heyrt
lagið hans Johns Lennons
Merry Christmas War is Over
spilað í útvarpinu. Margir nota
jóladagana til að hlusta á og
kynna sér ýmis konar klass-
íska tónlist. Hér á eftir er bent
á ýmsa góða geisladiska með
jolatonlíst sem allir eru vel
Uess virði að kynna sér Dekki
fólk pá ekki fyrir.
MÍSa ClíOlla eftir Ariel Ramirez
er dásamlega falleg sálumessa. Á
þessum ákveöna diski syngur
José Carreras einsöng. Kreola-
messan var fyrst gefin út á plötu
árið 1964 í Buenos Aires. Starfs-
menn upptökuversins heilluðust af
verkinu en enginn gerði sér grein
fyrir hvílíkum geysivinsældum það
átti eftir að ná. Ríflega þrjár millj-
ónir eintaka seldust í 40 löndum.
Ariel Ramirez er argentískt tón-
skáld og messan hans er snilldar-
leg blanda klassískrar tónlistar og
suðuramerískra hljóma og takta.
Jólastiarnan hennar Diddúar
var óskaplega vinsæl þegar hún
kom út og náði metsölu. Á sum-
um heimilum er þessi geisladisk-
ur spilaður frá í byrjun desember
og fram yfir áramót.
White Chnstmas er safndisk
ur með jólalögum sem hafa verið
vinsæl í gegnum tíðina. Þar er að
finna lagið White Christmas með
Bing Crosby og 0 Little Town of
Bethlehem með Mahaliu Jackson
og mörg fleiri góð lög.
A Litde Christmas Music
meðThe King Singers er enn eitt
dæmið um klassíska tónlist jól-
anna og hversu ótrúlega marg-
breytilega má útfæra hana.
Sextettinn The King Singers hefur
haldið saman síðan á háskólaár-
unum í Cambridge. Þeir sungu
saman í kór háskólans síns en
stofnuðu seinna sextettinn sem
notið hefur mikilla vinsælda í
Bretlandi. Á þessum diski eru
margir þekktir jólasálmar snilld-
arlega fluttir með aðstoð kórs og
annarra stórkostlegra listamanna
eins og Kiri Te Kanawa.
Boney M jólaplatan er sjálf-
sagt ein alvinsælasta jólaplata
sem gefin hefur verið út. Hún
hefur verið margendurútgefin og
tónlistin færð yfir á geisladisk.
Lagið Mary's Boy Child er alþekkt
og eitt fallegasta jólalag sem
maður heyrir.
Dolly Parton er vinsæl á ís-
landi og diskurinn hennar Home
for Christmas er einn af þeim
sem kántrýaðdáendur spila lát-
laust allan jólamánuðinn. Dolly
syngur þar flest þekktustu jólalög
síðari ára eins og Santa Claus is
Coming toTown, Jingle Bells,
Little Drummer Boy og Rudolph
the Red-Nosed Reindeer.
A Chnstmas Portrait með
Zamfir er dæmi um sérstæða tón-
list sem gaman er að kynna sér
um jól. Zamfir spilar á panflautu
en hljómur hennar er mjög falleg-
ur og jólasálmar í flutningi hans
eru einstaklega rómantískir. Einn
af þeim diskum sem gott er að
hlusta á við kertaljós eftir að ró
hefur komist á í húsinu á jólanótt.
A Very Special Chnstmas
er safnplata þar sem frægir
popptónlistarmenn koma saman
og syngja uppáhaldsjólalögin sín.
Eurythmics dúettinn syngur
þarna Winter Wonderland, Whitn-
ey Houston er með Do You Hear
What I Hear? Bruce Springsteen
and the E Street Band með Merry
Christmas Baby, The Pretenders
með Have Yourself a Merry Little
Christmas, The Pointers Sisters
með Santa Claus is Coming to
Town, Stevie Nicks úr Fleetwood
Mac syngur Silent Night og Alison
Moyet syngur The Coventry Carol
sem er óskaplega fallegur jóla-
sálmur. Aðrir flytjendur eru svo
Sting, U2, Madonna, Bryan Ad-
ams og fleiri.
Geisladiskurínn Hvít jól er
frábær safndiskur með öllum
klassísku jólalögunum á íslensku
í flutningi nokkurra af okkar
bestu dægurlagasöngvurum og
kórum. Þetta er diskurinn sem
fjölskyldan syngur hástöfum með
og er ómissandi í jólaboðum.
-\
Jólageisladiskurlnn hans
Kenny G. er yndislega Ijúfur og
hann bregst ekki aðdáendum
sínum frekar en venjulega. Boney
M diskurinn og þessi diskur hans
Kenny G eru ógleymanlegir og
einstakir.
Vikan 59
Texti: Steingerdur Steinarsdóttir