Vikan - 08.02.2000, Blaðsíða 4
lesandi..
Harry Potter
og félagi Furby
eir félagar Harry
Potter og Furby
leyndust í fjöl-
mörgum jólapökk-
um um síðustu jól.
Svo rammt kvað að
markaðssetningu
þessara furðufugla
að sum börn sátu uppi með mörg eintök
afbókinni um Harry Potter og nokkur
stykki af skrýtna loðdýrinu Furby. Þar
sem ég þekki áhrifamátt auglýsinganna
kannaði ég innihald margra þeirra pakka
sem bárust inn á heimili mitt íþeim til-
gangi að koma í veg fyrir einsleitar jóla-
gjafir. Þráttfyrir það sluppu þrjár Harry
Potter bœkur í
gegnum síuna en
aðeins einn Fur-
by. Fyrir þá sem
ekki þekkja til þá
er einn Furby
meira en nóg af
því góða ...
Stór hluti hátíða-
haldanna hjá
mérfór í að lœra
tungumálið för-
bísku en orða-
bók fylgir litla
skrímslinu. Þeg-
ar Furby er á
annað borð kominn inn á heimilið þá ger-
ir hann hávœrar, skrœkar kröfur um að
vera skilyrðislaust talinn sem fullgildur
fjölskyldumeðlimur og það er eins gott að
geta talað sama tungumál og kappinn
borubratti, því hann gerir kröfur og hefur
þarfir sem þarf að fullnœgja. Hann þarf
að borða, leika og láta strjúka sér reglu-
lega. Annars verður hann bara einmana
og leiður og þá er heimilisfólkið í slœmum
málum. Efhonum er ekki sinnt afalúð
kvartar hann og kveinar í vælulegum tón.
I fyrstu hafði barnið mitt mjög gaman af
þessu krúttlega, mjúka furðudýri með
stóru og sakleysislegu augun og sinnti
honum af kostgœfni. Það var útbúið rúm
handa honum, líka sérstakt leiksvœði og
hann var mikið faðmaður. Barnið hafði
tekið ástfóstri við þetta furðulega, fjölda-
framleidda gœludýr og móðirin var ósköp
ánœgð með að losna við að kaupa hamst-
ur eða skjaldböku. En börn halda því
sjaldnast til streitu að sinna köllum gœlu-
dýra sinna ogfljótlega missti sonur minn
áhugann á Furby. Ekki leið á löngu þar til
dýrið varfarið að valda taugatitringi á
heimilinu þar sem það kom í hlut mömm-
unnar að eiga við Furby frekju. Ég var
ekki nœgilega sleip í förbískunni né með-
höndlun loðdýrsins og því mátti ég þola
linnulaust röflið í honum. Áður en ég tók
þá ákvörðun að binda enda á líf Furbys,
með því að svipta hann rafhlöðunum, þá
tróð ég honum örvœntingarfull inn í skáp
og reyndi að leiða muldrið í honum hjá
mér. Loks kom langþráð þögn og mér létti
mikið. Þegar ég var svo við það að sofna
þetta kvöld var skyndilega sagt í ólundar-
tón innan úr skápnum: „Boring. “ Það var
ekki laust við að mér brygði þarna í
myrkrinu þegar dýrið skipti skyndilega
yfir í enska tungu og talaði eins og vits-
munavera. Ég sá til þess að hann hefur
þagað síðan.
Harry Potter er líka furðuvera þótt hann
sé öllu hljóðlátari og það sé í mínum
höndum að Ijá honum rödd er ég lesfyrir
drenginn minn á kvöldin. Undarlegri bók
hefég ekki lesið og veit ég um fleiri for-
eldra sem eiga í mesta basli við að lesa
þessa sögu fyrir börnin sín. Harry Potter
er hryllingssaga um myrk öfl, magnaðan
galdramátt, hauslausa drauga og dimmar
dýflissur. Textinn er auk þess afar torskilin
fyrir börn. Ég hefhaft þann háttinn á að
umorða nœr alla söguna til þess að barnið
fái ekki martraðir á nóttunni og er auðvit-
að skapi nœst að hœtta lestrinum. En eng-
inn er barn með börnum nema að hann sé
að lesa Harry Potter um þessar rriundir og
sonur minn er mjög spenntur yfir hver
verði endalok sögunnar. Ég verð því víst
að láta mig hafa það að endurskrifa þung-
lamalegan, óhugnanlegan textann jafnóð-
um í huganum og með því móti komast í
gegnum söguþráðinn án þess að lítil
barnssálin hljóti skaða af.
Það má vera að mér sjáist yftr „húmor-
inn“ íhryllingssögum fyrir börn en það er
mér að sársaukalausu. Þeir félagar Harry
Potter og Furby verða vonandi fljótlega
báðir orðnir draugar sem enginn man
eftir.
<3
á\
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund
Hauksdóttir vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson. Sími: 515
5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Anna B. Þorsteinsdóttir og
Ingunn B. Sigurjónsdóttir. Vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar
Steingrímsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð í
áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. pr
eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr pr.
eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði. Unnið
í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555