Vikan


Vikan - 08.02.2000, Síða 45

Vikan - 08.02.2000, Síða 45
Eftir Barböru Cartland. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. hjón þá jafngildir það því að þau séu vígð í kirkju. Yseulta dró djúpt að sér andann eins og hún hefði losnað undan þungri byrði. Ég þori varla að trúa þessu, sagði hún. Þetta er það ynd- islegasta sem nokkru sinni hefur gerst í lífi mínu. Hertoginn þrýsti henni að sér. Þannig átt þú að hugsa, sagði hann, það sem eftir er ævinnar. Svo kyssti hann hana og það eina sem komst að í huga hennar var kraftaverk ástar þeirra. Hertoginn kenndi Yseultu réttu handtökin við laxveið- arnar seinna um daginn og hún veiddi sinn fyrsta lax. Hún var svo ánægð að hinir gestirnir gátu ekki stillt sig um að stríða henni og sögðu að hún neyddist til þess að láta stoppa hann upp, ann- ars myndi enginn trúa því að hún hefði veitt hann upp á eigin spýtur. Um leið og þau komu aftur til hallarinnar heimtaði Anthony að stúlk- urnar æfðu sig í að dansa skosku rælana fyrir dans- leikinn kvöldið eftir. Her- toginn fylgdist með hversu þokkafull Yseulta var á dansgólfinu. Hann þreyttist ekki á að horfa á hana og sjá hamingjuna sem skein úr augum hennar og brosið á vörum hennar. Þegar karl- mennirnir fóru til þess að klæða sig upp á fyrir kvöld- verðinn sagði Hugo: Má ég tala við þig stundarkorn? Þeir fóru inn á skrifstofu hertogans og hertoganum til mikillar undrunar var vinur hans, sem hann hafði þekkt síðan þeir voru saman í skóla, svolítið feiminn. Hvað liggur þér á hjarta? spurði hertoginn. Hugo átti erfitt með að finna réttu orðin. Svo sagði hann: Ég veit auðvitað hvers vegna móðir þín ákvað að halda dansleikinn og hvers Já, allir voru hræddir um að eitthvað slíkt gæti gerst. Fólk veit hvernig hann er, sagði Hugo. Eftir stutta hverju máli? Já, satt að segja gerir það það! svaraði Hugo. Þú veist það jafnvel og ég, Kenyon, vegna stúlkunum var boðið til Skotlands. Ég geri þá ráð fyrir að þú vitir einnig að George Wall- ington hefur hótað því að drepa mig! sagði hertoginn. þögn hélt hann áfram: Ég var bara að velta því fyrir mér hvort þú hefðir valið eina af stúlkunum þremur. Hertoginn lyfti brúnum og spurði? Skiptir þig það ein- að hvorki Beryl né Deborah hafa leyfi til þess að hafna bónorði frá hertoga. Og þú ert hrifinn af Deborah, sagði hertoginn. Hugo gekk um gólf. Ég er Vikan 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.