Vikan


Vikan - 08.02.2000, Síða 46

Vikan - 08.02.2000, Síða 46
f r m h s s r) I ekki hertogi, sagði hann. En þegar faðir minn deyr verð ég auðugur maður. Ef þú ert út úr myndinni er ég viss um að Fernhurst fjölskyldan tekur mér opnum örmum. Hertoginn hló. Kæri Hugo, hér með færð þú blessun mína! Meinar þú það? spurði Hugo ákafur. Þegar haft er í huga hversu lengi við höfum þekkst hlýt- ur þú að vita hvenær mér er alvara, svaraði hertoginn. Hann hafði aldrei séð vin sinn svo glaðan. Eg veit að þú trúir því ekki, Kenyon, en í þetta sinn er ég raun- verulega ástfanginn. Ég hélt að það ætti ekki fyrir mér að liggja! Það gleður mig að heyra, sagði hertoginn. Þú verður að segja mér hvað þú vilt fá í brúðargjöf. Mér er alveg sama, svo framarlega sem gjöfin er dýr! sagði Hugo hlæjandi. Hertoginn benti vini sínum á að þeir væru að verða of seinir til kvöldverðar og slapp þannig við að svara spurningunni um hvort hann ætlaði sér að giftast Beryl. Meðan hann skipti um föt hugsaði hann brosandi með sér að Beryl Wood myndi létta mest af öllum þegar trúlofun þeirra Yseultu yrði gerð opinber. Hann hafði heyrt móður sína segja að hún væri yfir sig ástfangin af öðrum manni. Hann vissi að örlögin, eða einhver góð álf- kona, höfðu bjargað honum frá því að giftast konu sem aðeins sóttist eftir titli hans. Þess í stað hafði hann fund- ið konu sem elskaði hann jafnmikið og hann elskað hana. Yseultu fannst hún ganga á bleiku skýi. Ég elska hann! Ég elska hann, sagði hún við sjálfa sig meðan hún lá í baðinu fyrir kvöldverðinn. Ég elska hann! sagði hún meðan herbergisþernan hjálpaði henni í fallega kvöldkjólinn sem sauma- konurnar höfðu breytt handa henni. Ég elska hann! sögðu fætur hennar þegar hún hljóp eftir ganginum því hún hlakkaði svo til þess að sjá hann aftur. Hann beið hennar í salnum; glæsilegur í kvöldklæðnaði sínum. Augu þeirra mættust og hjörtu þeirra sögðu í hljóði: Ég elska þig! Ég elska þig! Kvöldverðurinn var ljúf- fengari og íburðarmeiri en nokkru sinni fyrr. Sekkjar- pípuleikararnir iéku og Yseultu fannst hver tónn vera sem lofsöngur til ham- ingjunnar í hjarta hennar. Þetta var hennar land, ekki síður en hertogans, og hún var hluti af því. Hér eftir myndi hún búa þar, eins og hún hafði alltaf óskað sér. Eftir kvöldverðinn stóð her- togaynjan á fætur og sagði: Nú mælist ég til þess að allir 46 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.