Vikan


Vikan - 18.04.2000, Síða 4

Vikan - 18.04.2000, Síða 4
Kæri lesandi Kærar bakkir! Lesendur Vikunnar brugðust svo sannar- lega vel við skoðana- könnuninni okkar í 12. tbl. 2000 og enn eru okkur að berast svör. Við viljum nota tækifærið og senda lesendum okkar innileg- ar þakkir fyrir góð viðbrögð og margar góðar tillögur og kveðjur. Pað er enn ekki of seint að senda inn svarblöðin í pósti eða að taka þátt á netinu, en þeir sem vilja gera það geta farið inn á heimasíðu Fróða: www.frodi.is. Allir þeir sem senda okkur svör við spurningunum fá bók að gjöf frá Fróða. Við biðjum lesendur einnig að hafa bið- lund eftir gjöfunum, en það tekur langan tíma að fara í gegnum svo stóran bunka og að koma bókasendingunum af stað en nú þegar er byrjað að senda út gjafirnar. Flér fyrir neðan fylgir listi yfir þá heppnu sem fá naglasett eða íþróttatösku frá Vikunni. En mesti ávinningurinn er þó betra blað. Könnunin mun koma okkur öllum til góða, því niðurstöð- urnar verða notaðar til að fella blaðið enn betur að smekk les- enda. Pað hefur alltaf verið okkur einstök ánægja að skrifa og setja saman blað þar sem stór hópur þjóðarinnar getur fundið skemmtilegt, fróðlegt og fjölbreytt lesefni við sitt hæfi og nú verður þetta verk okkur auðveldara. Við fengum margar góðar vís- bendingar úr skoðanakönnun- inni, en aðeins ein þeirra kom okkur á óvart. Hún var sú, að nokkur brögð voru að því að konur (einkum 36 ára og eldri) bentu á að of mikið væri um kynlífsumfjöll- un í Vikunni og að offramboð væri á þannig efni. Þetta kom okkur á óvart þar sem við höfum einmitt fengið þakkir frá öðrum konum fyrir að vera með uppbyggilega og jákvæða umfjöllun um kynlíf, lausa við klúryrði og grófar myndir og mjög fræðandi fyrir ungar konur. Prátt fyrir þessa umsögn fengu greinar um kyn- líf góða einkunn hjá þeim sem lesa þær alltaf. En það er auðvelt að skilja til- finningar þessara lesenda okk- ar. Það ER offramboð á um- fjöllun um kynlíf í fjölmiðlum á Islandi. Og því miður er sú um- fjöllun ekki öll á þeim nótum sem Vikan hefur nálgast hana. Við Vikukonur höfum því ákveðið að draga okkur nokk- uð í hlé og minnka kynlífsum- fjöllun á meðan konur eru að jafna sig á klámbylgjunni sem nú gengur yfir. Við munum mæta aftur til leiks með fræðslu og uppbyggilega um- ræðu þegar æðið er yfirstaðið, því það er svo sannarlega þörf á umræðu sem leggur grunn að kynlífi sem byggist á ást og gagnkvæmri virðingu. Nú líður að páskum og blaðið okkar mótast af því. Við heim- sækjum páskaskreytt heimili og lítum á páskaskraut og eggjarétti. í blaðinu eru skemmtileg viðtöl við ólíka einstaklinga; Hauk Halldórs- son , listamann og Maríu Marteinsdóttur, snyrtifræðing og við gægjumst á gluggann hjá Betu bretadrottningu og fleir- um. Lífsreynslusögurnar eru mjög ólíkar að þessu sinni og við fræðumst um heilsu okkar og persónuleika þeirra sem eru í nautsmerkinu. Auk þessa er mikið af alls kyns stuttum greinum um allt milli himins og jarðar. Punkturinn yfir iið er svo glæsilegt víkingakort sem við byrjum nú að birta, alís- lensk listaverk, sem öðlast hafa frægð úti í hinum stóra heimi þar sem fólk hefur mikinn áhuga á sögu forfeðra okkar. Kæri lesandi, gleðilega páska og njóttu Vikunnar! Jóhanna Haröardóttir, ritstjóri Þessi lesendur Vikunnar hafa verið dregnir út sem verð- launahafar vegna skoðanakönnunnar í 12. tbl. 2000 NagiaseU: Berglind Björgúlfsdóttir, Sigurbjörg Hjaltested, Ásgeröur Jónasdóttir, Brynja Björnsdóttir, Dagný Ósk Ingólfsdóttir, Inga Lára Braga, Áslaug Magnúsdóttir, Helga Þuríöur Árnadóttir, Helga Ólafsdóttir, Sólborg Þorláksdóttir, Esther Guöjónsdóttir, Sigurrós Stefánsdóttir, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Sonja Jónsdóttir, Helga Steinarsdóttir, Ólöf Þóra Ólafsdóttir, Ása Björk Þorsteinsdóttir, Áslaug Bæringsdóttir, Sigríður Kjerúlf, Emilía Guðrún Svavarsdóttir, Hafdís H. Steinarsdóttir, Halldóra Guömundsdóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Hafdís Hafsteinsdóttir, ibrónataska: Valborg Guðmundsdóttir, Karl Ottesen, Svava Bjarnadóttir, S. Bára Guðmundsd., Sólveig Sigurðardóttir, Helgi Gunnarsson, Kristjana Jóhannesdóttir, Ásta Hjálmarsdóttir, Rósa S. Gunnarsdóttir, Svanfríður Eyvindsdóttir, Valgerður Þórdís Snæbjarnardóttir Björk Svavarsdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir, Rósa Sveinbjörnsdóttir, Helga Ingibjörg Jóhannsdóttir, Þórhildur Sigurðardóttir, Guðrún María Ingvarsdóttir, Björk Brjánsdóttir, Margrét Hafliðadóttir, Laufey Jónsdóttir, Magnús Bragason, Ástbjörg Kornelíusdóttir, Guðrún M Harðardóttir, Erna Þórarinsdóttir, Anna Þorsteinsdóttir, £ r W i 4 Vikan Ritstjórar: Jóhanna G. Haröardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikané'frodi.is. Útgefandi: Fróöi hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aöalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, sími: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð i áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með giróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Áskriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.