Vikan


Vikan - 18.04.2000, Síða 20

Vikan - 18.04.2000, Síða 20
xti: Steingerður Steinarsdottir 'ndir: Gunnar Gunnarsson Allir |)m la út- rás oj> tæ hó vcilir svo sami' arlcf>a lítrás. Nýjasti smeliurinn hjá land- anum er tæ bó. Líkamsrækt- arkerfi sem Sjónuarpsmark- aðurinn segir okkur að hati uerið próað at Billie Blanks. Sá ku vera mikil hasarhetja og kuikmyndastjarna uestan hats. Uíst er um bað að ís- lenskar líkamsræktarstöðuar hafa tekið boðskap Billies fagnandi og bað gera gestir beirra líka. Hjá Hreyfingu hf. kenna tvær ungar konur, bær ósk Uíðisdóttir og Ellen Inguadóttír, íslendingum að sparka, kýla og verja sig. Ósk gengur heldur lengra en stalla hennar buí hún býður nemendum sínum æfinga- hanska og púða til að berja. En huert uar upp- ------- hafið að buí að Ósk, sem uírðist , f friðsemdarmann- -h eskja fór að læra Tæ bó er koinió til að vera. „Nyjungar eru einfaldlega alltaf að koma í heilsurækt og þetta er ein þeirra. Það er alltaf gaman að geta unnið vel úr því sem kemur nýtt og tæ bó virðist ætla að ganga vel í fjöldann. Hér er fyrst og fremst unnið með styrk líkamans og hver og einn vinnur í samræmi við sína krafta. Engin lóð eru notað- uð og þess vegna getur þessi hreyfing hentað fólki áöllumaldri, líka þeimsem eru að vaxa og þroskast en það er ekki æskilegt að þeir sem yngri eru noti lóð.“ Nú byggist þetta mikið upp á að kýla frá sér og æf- ingahanskar eru notaðir og ætla mætti að konur ættu erfiðara með að tileinka sér hnefahögg og kýlingar en karlmenn. Ósk segir svo ekki vera. Hún sjái glampann í augunum á mörgum konum við að setja á sig hanskana, og gera sig klárar í slaginn. „Eins og ég sagði áðan finnur hver og einn þann kraft og styrk sem hentar honum. Þetta æfir auk þess vel snerpu, jafnvægi og ein- beitingu. Þegar sparkað er eða kýlt þarf að einbeita sér að einhverjum ákveðnum punkti og hitta hann. Flest- ir byrja á að sparka eitthvað út í loftið en eftir smátíma læra menn að beita líkam- anum rétt og hitta þann punkt sem þeir ætla sér. Þolið eykst með að æfa markvisst í ákveðinn tíma og í tæ bó tímum er aldrei slökun þá klukkustund sem tíminn varir. Tæ bó krefst ákveðinnartækni. Best er að byrja rólega en auka síð- an smátt og smátt við sig. Ég valdi tæ bó vegna þess að það tekur á, eykur lið- leika, styrkir og teygir á, jafnvægið verður betra og það hefur jafnframt góð áhrif á einbeitinguna. Ár- angurinn lætur heldur ekki ásérstanda." Tæ bó er skylt bardaga- íþróttum og æfingahanskar, hnefahögg og spörk eru hluti af kerfinu. Hugsanlega mætti ætla að tæ bó miðaði að því að auka árásargirni en Ósk hlær bara að því. „Allir þurfa útrás og tæ bó veitir svo sann- arlega útrás. Þetta er fyrst og fremst skemmtileg, fjölbreytt leikfimi. Líkt og með aðra hreyfingu tekur smátíma að ná þessu og í fyrstu skiptin er maðureinsog álfurút úr hól en svo kemur þetta smátt og smátt. Yfir- leitt er unnið með hverja hreyfingu í stuttan tíma og mér finnast æfingahansk- arnir góð hjálpartæki að því leyti að þá fá kýlingarnar einhvern tilgang. Það er ekki bara verið að kýla út í loft- ið. Margir héldu að þetta væri bara enn eitt æðið þeg- ar það byrjaði en þetta virð- ist svo sannarlega ætla að halda velli. Áður hafa kom- ið upp bólur sem springa fljótt, líkt og kickbox og fleira eða ganga í það minnsta misvel." Ósk verður sennilega sannspá um það að tæ bó sé komið til að vera. Þeir sem þetta stunda eiga ekki orð yfir hversu skemmtilegt það sé ogítímumhjá henni eru mæðgur sem er tæp- lega þrjátíu ára aldursmun- ur á. Að vísu segir móðirin að sig ói stundum við því hversu gaman dóttirin hafi af því að setja upp hansk- ana á móti henni en kannski það skili sér einfaldlega í notalegra andrúmslofti heima.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.