Vikan - 18.04.2000, Page 23
ljósmyndara til að fá sem bestar
myndir af dóttur sinni. Ljós-
myndir af börnunum eru lagðar
fyrir dómnefnd fyrir hverja
keppni sem síðan velur hverjir
fá að taka þátt. Þær mæðgur
þurftu oft að ferðast milli staða
til að taka þátt í keppnunum og
búningar barnanna voru dýrir og
vandaðir. Augljóslega kosta
skrautsýningar sem þessar drjúg-
an skilding en Patsy Ramsey
þurfti ekki að horfa í aurinn. Eig-
inmaður hennar var eigandi fyr-
irtækis sem sá um að tölvuvæða
stórfyrirtæki hingað og þangað
um Bandaríkin. Meðal viðskipta-
vina hans var flugvélafyrirtækið
Lockheed-Martin. Hann byrjaði
smátt en byggði á örfáum árum
stórveldi. Tengdaforeldrar hans
unnu hjá honum og sömuleiðis
hafði Patsy unnið með honum
áður en börnin þeirra fæddust.
Þrátt fyrir peningalega vel-
gengni hafði sorgin svo sem ekki
látið fjölskylduna í friði. John
Ramsey var giftur áður og átti
þrjú börn af fyrra hjónabandi,
son og tvær dætur. Elsta dóttir
hans, Beth, dó í bílslysi nokkrum
árum áður en JonBenét var myrt
og tveimur árum áður var Patsy
greind með legkrabbamein.
Móðurlíf hennar var numið
burtu og við tók löng og ströng
lyfja- og geislameðferð. Jon-
Benét tók veikindi móður sinn-
ar svo nærri sér að hún fór að
væta rúmið á næturnar. Á hverj-
um morgni var því skipt á rúminu
hennar og óhreina tauið þvegið
í þvottavél á baðherbergi á
annarri hæð hússins þar sem
börnin sváfu. Ábreiðan sem lík
hennar var vafið í var hluti af
óhreina tauinu sem tekið var af
rúminu daginn áður.
Patsy og John Ramsey voru
miður sín af sorg eftir morðið og
var það gefið upp sem ástæða fyr-
ir því að ekki væri hægt að yfir-
heyraþau. Hjóninkomuþófram
í sjónvarpi skömmu eftir morð-
ið og buðu há peningaverðlaun ef
einhver gæti gefið upplýsingar
sem leiddu til þess að morðingi
dóttur þeirra fyndist. Líkt og
ávallt verður þegar um óupplýst
sakamál er að ræða sýnist sitt
hverjum og margir eru þess full-
vissir að hjónin séu sek um morð.
Einn lögregluþjónanna sem
starfaði við rannsóknina frá upp-
hafi trúir að svo sé og sagði það
í vitnisburði sínum fyrir yfirkvið-
dóminum. Annar er jafnsann-
færður um að svo sé ekki og hans
vitnisburður snerist um það.
JonBenét fékk þungt högg á
höfuðið sem nægði til þess að hún
missti meðvitund, síðan var hún
kyrkt með flókinni snöru
(garote). Það er band sem bund-
ið er á sérstakan hátt um trékubb
eða járnbút sem sfðan er snúið
upp á þar til fórnarlambið lætur
lífið. Fáir hafa þekkingu til að
búa slíkar snörur til og þeir sem
nota slíkt eru yfirleitt sjúkir á
geði og hafa einhverja ástæðu til
að beita þessari aðferð. Þótt John
Ramsey hafi gegnt herskyldu er
engin ástæða til að ætla að hann
kunni að búa til þetta flókna tæki.
Á heimili Ramseyhjónanna
fannst ekkert samsvarandi því
sem notað var í snöruna. Menn
spyrja sig einnig hvaða ástæða
hafi verið til að beita þessari að-
ferð þegar aðrar væru mun hand-
hægari. Margir hafa því verið
með getgátur um að einhver hat-
ursmaður Ramseyhjónanna hafi
verið að leita hefnda á þennan
grimmilega hátt. En sennilega
verður aldrei svarað öllum
spurningum tengdum morðinu á
JonBenét og alls óvíst að nokkru
sinni upplýsist hver var valdur að
dauða hennar.
Ein af myndunum sem
teknar voru af JonBenét
Ramsey til að leggja fyrir
dómara barnafegurðar-
samkeppna.
Landslagshönnuðurinn Brian Scott, sem uann að huí að endurskípuleggja loðina uið hús
Ramseyhjónanna, sagði í uiðtali uið Lawrence Schiller að JonBenét hefðí ueríð bráðgreínt barn.
Hann sagði hana hafa uelt mikið fyrír sér ýmsum fyrírbærum náttúrunnar og eitt sinn hafi hún
spurt sig huort rúsir uíssu að pyrnar beirra gætu meitt. Hún spurði hann einnig huað eitt ár uæri
og begar hann hafði sagt henní að bað uæri sá tími sem bað tæki jörðina að ferðast í kring um
sólina hafðí hún glaðst uíð bau tíðindi og bent á að hún hefði faríð bá ferð fímm sinnum og
bráðum sex. Brían benti bá á að hann hefði 27 sinnum farið í bað ferðalag og fannst henní ákaf-
lega mikið til um bessa háu tölu. Þetta uar i síðasta sinn sem bau töluðu saman buí nokkrum
dögum seinna uar JonBenét dáin.
Vikan
23