Vikan


Vikan - 18.04.2000, Qupperneq 25

Vikan - 18.04.2000, Qupperneq 25
Nokkrar af þeim brúðargjöfum sem Elísabet og Filíppus fengu: 100 pör af nylonsokkabuxum, 500 öskjur af niðursoðnum ananas, kettlingur frá hjúkrunarkonum (Wilts, 12 brúðkaupstertur frá ýmsum bakaríum, kassi af tei frá yfirmanni í sjóhernum, tveir nálapúðar og fjórar tehettur, strútsegg og inniskór, ryksuga og saumavél, peysa, golfjakki og sokkar, hitaplatti fyrir morgunverð, afrísk töfradúkka sem á að heilla brúðir, hitateppi og ísskápur, 46 kíló af flórsykri, plastpúði og fótahitatæki, handunnið plastbelti, öngull og þúsund teppi og samúræahjálmur úr silfri. ir stólar færu vel við borðstofu- borð eitt í höllinni. Hún endur- tók þetta en húsmóðirin þverskallaðist við að skilja ábendinguna. María drottning sat og beið þolinmóð. Hún kunni sitt fag. Á endanum gafst hús- móðirin upp og spurði Maríu hvort hún vildi ekki þiggja stól- ana að gjöf. Þá stóð drottning upp og þakkaði fyrir sig, lét bera stólana út í bíl og fór með þá heim í höllina. Klukkan var þá orðin níu um kvöld og umsátrið um stólana hafði staðið í sex klukkutíma. Morðóður bifvélauirkiP Elísabet var vernduð og þekkti ekkert annað en kastala, sveita- setur og hallir. Hún kom ekki inn í blokkaríbúð fyrr en á þrítugs- aldri og fannst það afar spenn- andi. Á unglingsárunum, þegar seinni heimstyrjöldin stóð sem hæst, fékk hún þó að vinna sem sjálfboðaliði hjá breska hernum við að aka bflum og gera við þá. Ein fjarstæðukenndasta samsær- iskenning um dauða Díönu prinsessu á rætur sínar þarna. „Bifvélavirkinn“ Elísabet II á að hafa verið í París þennan örlaga- ríka ágústdag 1997 og fiktað við Bensinn sem Díana og Dodi fóru með í sína hinstu ferð. Þótt drottning ferðist allra þjóðhöfð- ingja mest um heiminn var hún ekki í París þennan dag heldur með fjölskyldu sinni í Balmoral kastala. Breska þjóðin gerir engar at- hugasemdir við veru fjölskyld- unnar í rigningunni þar eða kuld- anum í Sandringham. Það er ekki fyrr en þau fara á skíði í Ölpun- um eða á snekkjur í Karíbahaf- inu sem þau fá á sig gagnrýni. Drottning hefur ekki látið eftir sér að fara á síðastnefndu stað- ina. Til þess er hún of skylduræk- in eða hefur ekki áhuga. Deyr drottningarmóðir í maíP Játvarður VII, sonur Viktoríu drottningar og langafi Elísabet- ar, á heiðurinn af því hve kon- ungsfjölskyldan er rík í dag. Hann var góður fjármálamaður en þótti slæmur faðir. Hann var afar vondur og kröfuharður við börn sín. Sonur hans, Georg V, fylgdi fordæmi hans og var eins við börn sín, sérstaklega elstu synina, Játvarð VIII (sem kvænt- ist Wallis Simpson) og Georg VI föður Elísabetar. Sá gamli blíðk- aðist með árunum og varð góð- ur afi. Georg VI var örvhentur en faðir hans hafði neytt hann með ofbeldi til að nota hægri hönd- ina þegar Georg var barn að aldri. Hann stamaði og var frem- ur taugaveiklaður. Veðjað var um hvort hann kæmist í gegnum ræðuna sem hann þurfti að flytja þegar hann var krýndur konung- ur þann 12. maí 1937. Gæfa hans „Annus Horribilis" eins og drottn- ingin kallaði árið 1992 hófst með skilnaði Karls ríkisarfa og Díönu Spencer og lauk með bruna í Windsorkastala. Kastalinn hafði verið aðsetur bresku konungsfjöl- skyldunnar í um 900 ár en einnig var hann tákn fjölskyldunnar sem tók nafn sitt eftir honum. Kastal- inn þykir ægifagur eftir viðgerð- irnar sem drottning varð sjálf að borgafyrir. Ríkisstjórnin hafði boð- ist til að fjármagna þær en eftir úr- slit skoðanakönnunar meðal al- mennings þar sem kom í Ijós að 90% þegna hennarvoru á móti því, afþakkaði hún gott boð. var að hann var kvæntur góðri og viljasterkri konu, Elísabetu. Hún verður 100 ára á þessu ári nema völva Vikunnar hafi rétt fyrir sér og sú gamla deyi núna í maí. Hneykslí á krýningardaginn Elísabet þótti framsýn þegar hún leyfði sjónvarpsupptöku frá krýningu sinni árið 1952. Churchill forsætisráðherra hafði áhyggjur af því að upptakan gæti truflað virðuleika athafnarinnar en kom engu tauti við verðandi drottningu. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu á krýningardaginn. Um morguninn stytti upp en Margrét systir drottningar sá til þess að það dimmdi yfir aftur. Upp komst um ástarsamband hennar við Peter Townsend starfsmann hirðarinnar þennan sama dag. Hann var kvæntur maður og 16 árum eldri en Margrét. Hann skildi við konu sína meðan á lát- unum stóð og Margréti var gert ljóst að ef hún giftist honum myndi hún missa öll þau prinsessuforréttindi og lífeyri sem hún átti annars rétt á. Hún hugsaði sig lengi um og ákvað að fórna ástinni fyrir skyldurnar eins og hún orðaði það. Barnfóstran brotin uppi á lofti Elísabet hélt mikið upp á barn- fóstru sína, Margréti McDonald. Margrét var þó sú eina af starfs- fólkinu sem lét hana alltaf heyra það óþvegið. Margrét fóstra bjó til dánardags í Buckingham höll og voru herbergi hennar staðsett beint fyrir ofan íbúð Elísabetar drottningar. Hún datt illa eitt kvöldið og mjaðmarbraut sig. Hún lá hreyfingarlaus í marga klukkutíma og vildi ekki gera vart við sig. Henni fannst ómögu- legt að vekja eða ónáða sjálfa drottninguna vegna svona smá- muna. Hún var orðin nokkuð gömul og hrum þegar þetta gerð- ist. Margrét gekk undir nafninu Bóbó hjá þeim systrum Elísabetu og Margréti. Bóbó kom frá fá- tækri verkamannafjölskyldu og frá henni á Elísabet að hafa nýtni sína. „Ljósin eru dýrmæt og það má nota peningana í annað,“ á Bóbó að hafa sagt þegar hún bað systurnar að spara Ijósin. Bóbó lést í svefni í Buckingham höll árið 1993, 89 ára að aldri, eftir 60 ára trygga þjónustu við kon- ungsfjölskylduna. Hundar og handtöskur Elísabet hefur tekið ástfóstri Ríkiserfðaröðin 1. Karl prins (elsti sonur drottningar og Filippusar, f. 1948) 2. Vilhjálmur prins (eldri sonur Karls og Díönu, f. 1982) 3. Hinrik prins (yngri sonur Karls og Díönu, f. 1984) 4. Andrés (næstelsti sonur drottningar og Filippusar, f. 1960, eftirlæti móður sinnar) 5. Beatrice af York (dóttir Andrésar og Söru Ferguson, f. 1988) 6. Eugenie af York (yngri dóttir Andrésar og Söru Ferguson, f. 1990) 7. Játvarður, jarlinn af Wessex (yngsti sonur drottningar og Filippusar, f. 1964) 8. Anna (dóttir drottningar og Filippusar, f. 1950, eftirlæti föður síns) 9. Peter (sonur Önnu og Marks Phillips, f. 1977) 10. Zara (dóttir Önnu og Marks Phillips, f. 1981) Elísahcl liefur íekið miklii ástfóstri við hestu og huiida. Illar tungiir segja hana elska þessi dýr meira en biirn sín. Sugt er að handtöskur liennar innihaldi aðeins hundakex, vasakhit og lesgleraugn. Drottningin á tvo afmælisdaga. Al- vöru afnuelið er 21. apríl en hið opinhcra í júní. Stunduni liefur daginn borið npp á 17. júní, þjóð- hátíðardag okkar. við hesta og hunda. Illar tungur segja hana elska þessi dýr meira en börn sín. Sagt er að handtösk- ur hennar innihaldi aðeins hundakex, vasaklút og lesgler- augu. Islensk sendiherrahjón voru eitt sinn stödd í veislu hjá drottn- ingu í Windsorkastala. Sendi- herrafrúin var vöruð sterklega við, af öðrum gesti, að reyna að vingast við hundana, sem eru af corgi kyni, því þeir væru grimm- ir og bíti víst alla nema drottning- una sjálfa. Einu sinni ætlaði drottning að fara að halda ræðu og teygði sig eftir gleraugum sínum sem áttu að vera í handtöskunni. Einhver þernan hafði gleymt að setja þau á sinn stað svo drottning þurfti að fá lánuð gleraugu eiginmannsins. Hún gat lesið ræðuna áfallalaust en Filippus varð öskureiður og skammaði starfsfólkið ærlega. Skyldur starfsmanna í höllinni eru margvíslegar. Þeir æðstu þurfa ævinlega að taka spariföt- in sín með í vinnuna og fylla skörð í matarboðum ef einhver forföll verða á síðustu stundu. Svo fínt þykir að vinna þar, þótt launin séu lág, að eldabuskur Bucking- ham hallar tala ekki við hvern sem er og eru víst hinar mestu snobbhæn- ur. Lái þeim hver sem vill. Vikan 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.