Vikan - 18.04.2000, Síða 29
Lesandi segir
Jóhönnu
Harðardóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni með
okkur? Er eitthvað sem hefur
haft mikil áhrif á þig, jafnvel
breytt lífi þínu? Þér er vel-
komið að skrifa eða hringja til
okkar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
ar koma þau hjónin til ís-
lands. Auðvitað eru þau ekki
bara að koma til að heim-
sækja okkur, en í þetta skipti
munu jtau gista á heimili
mínu. Eg hlakka mikið til að
fá þau hingað og bróður mín-
um, sem nú er giftur og
tveggja barna faðir, finnst
þetta líka skemmtilegt.
lensku. Þetta var vægast sagt
sérkennilegt borðhald. Frú
Jenkins varð auðvitað vör við
að eitthvað merkilegt var á
seyði og þegar hún fékk alla
sólarsöguna varð hún svo kát
að hún krafðist þess að við
yrðum einn dag í viðbót í
hennar boði (Sigrún og henn-
ar maður höfðu átt pantað
fram á næsta dag). Við þáðum
boðið og þennan dag notuð-
um við til að fara í lautarferð
út fyrir bæinn með nesti sem
frú Jenkins útbjó handa okk-
ur.
Þetta er einhver eftir
minnilegasti dagur sem ég hef
lifað. Við töluðum ensku
þennan dag og svo skemmti-
lega vildi til að mennirnir
okkar höfðu mjög gaman af
þessu líka og við vorum öll
mjög hamingjusöm og glöð
eftir þessa ferð. Við Sigrún
ákváðum að nú skyldum við
ekki missa af hvor annarri aft-
ur. Við fundum strax að vin-
átta okkar var enn til staðar,
það var rétt eins og við hefð-
um hist síðast í gær. Við vor-
um báðar enn að syngja í kór
- hún á dönsku! - og við vorum
báðar enn með bíó- og ferða-
dellu. Við gátum strax talað
saman og við höfðum svo
margt að segja hvor annarri
að einn dagur nægði engan
veginn. Við skiptumst á heim-
ilisföngum og Sigrún
gaf mér tölvunetfang-
ið sitt ef ég gæti hugs-
anlega notað það
seinna. Við hjónin átt-
um að vísu heimilis-
tölvu þegar þetta var,
en við höfðum ekki
haft aðgang að
tölvupósti fram að
þessu. Eitt af því
fyrsta sem við komum
í framkvæmd eftir að
við komum heim úr
þessari ferð var að fá
okkur netfang.
Þessi ágæti dagur leið alltof
hratt og við Sigrún hétum því
að hittast oft eftir þetta. Við
gáfum hvor annarri loforð um
að heimsækja hvor aðra sem
fyrst og skrifast á.
Við höfum staðið við þetta
því við Sigrún erum mikið í
sambandi á tölvunni og í sum-
I lc imilisliin-jiö cr: Vikiin
- „LiTsreynslnsaj»a“, Scljavcgur 2,
101 Kcykjavík,
Ncflang: vikan@lrocli.is