Vikan


Vikan - 18.04.2000, Blaðsíða 45

Vikan - 18.04.2000, Blaðsíða 45
Miranda Lee ana fyrir söngleikinn og hún hafði meira að gera. Laura andvarpaði þegar hún stakk hendinni ofan í baðvatnið til þess að aðgæta hitastigið. Hún áttaði sig á því að allar þessar venjur henn- ar voru nú hálf hallærislegar. Hún var bara svo einmana og tóm innra með sér... Hún leit ákveðið í spegilinn og sagði við sjálfa sig:„Þú verður bara að gera eitthvað í þessu. Þú verður að eignast fleiri vini og finna þér ein- hvern annan til að deila líf- inu með.“ Hún klæddi sig úr, stakk fötunum í þvottakörfuna, setti hárið í hnút og lagðist ofan í baðkerið. „Ah, þetta er þægilegt,“ hugsaði hún með sér og flaut í baðkerinu. Hún reyndi að láta huga sinn fljóta líka en það gekk illa. Hann leitaði aftur til Dirks. Hún reyndi að vera bjart- sýn en þegar hún steig aftur upp úr baðkerinu hafði hún komist að þeirri niðurstöðu að lífið hefði litla merkingu án Dirks og að hún væri alls ekki tilbúin að fara að leita sér að einhverjum öðrum til að deila lífinu með. Laura þurrkaði sér og bar á sig ilmandi baðpúður. Hún tók hnútinn úr hárinu og reyndi að renna fingrunum í gegnum hárið sem var flók- ið. Hún náði sér því í hár- bursta og byrjaði að greiða niður úr hárinu fast og ákveð- ið. Hún varð að komast í gegnum flókann því nú ann- ars yrði hárið allt í bendu í fyrramálið. Hún leit annars hugar í spegilinn og sá að hún hafði tekið lit og hafði fengið freknur á nefið og kinnarnar. Allt í einu sá hún móta fyrir Dirk í speglinum. Henni brá ofboðslega og hélt að sér hefði missýnst. En henni hafði ekki missýnst. Hann stóð fyrir aftan hana inni á baðherberginu og horfði hungruðum augum á nakinn líkama hennar. „Hvernig komstu eiginlega hingað inn?“ spurði Laura reið og vafði handklæði utan um sig. Hann stakk hendinni í buxnavasann og veiddi hús- lykla upp úr þeim. Laura stundi. Hvernig gat hún hafa gleymt því að hann var ennþá með lykla að íbúð- inni. „Ég kom um níuleytið," sagði hann rólega og hallaði sér upp að dyrakarminum. „Þú varst ekki heima,“ bætti hann við. „Ertu að segja mér það að þú sért búinn að vera hérna allan tímann sem ég var í baði?“ spurði Laura hneyksl- uð. „Ég sat frammi í stofu í myrkrinu og beið eftir að þú værir búin í baði, að þú værir tilbúin.. Laura leit snöggt á hann. Hún fann hvernig hann mældi hana út. „Væri þér sama?“ sagði hún og vafði handklæðinu þéttar að sér. Honum var greinilega skemmt. „Svona uppgerð- arsiðsemi á ekki við þig. Ertu búin að gleyma því að ég hef séð þig alla áður?“ sagði hann kaldhæðnislega. „Nei ég hef ekki gleymt því en þá var ástandið öðruvísi því þá bjuggum við saman og ég hélt að þú elskaðir mig. Ef þú hefur einhverjar óeðlilega þörf til þess að leika glugga- gægi skaltu nota hana á Virg- iniu en ekki mig!“ sagði hún reiðilega. Hann brosti seiðandi og Laura fann hvernig henni hitnaði að innan. „Veistu hvað þú ert kyn- þokkafull þegar þú reiðist? Húðin verður rauð, augun skjóta gneistum og þessi fal- legu brjóst þín þrýstast fram.“ Laura reyndi ákaft að ná stjórn á hugsunum sínum. Enn einu sinni vissi hún alls ekki í hvorn fótinn hún átti að stíga. Hún þráði Dirk en var enn reið við hann. í aðra röndina vildi hún geta þurrkað Dirk gjörsam- Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.