Vikan - 18.04.2000, Blaðsíða 51
Nær allir þjast af bakverkjum, ein-
hvern tímann á ævinni. Yfirleitt eru
þetta þreytuverkir vegna rangrar
vinnustöðu. Bakið heldur okkur
uppi í orðsins fyllstu merkingu og ef
þú vanrækir það, finnur þú fljótt fyr-
ir því. Þú getur ekki hætt að lyfta
hlutum, halda á dóti og ganga um,
en þú getur gert ýmislegt til að
passa upp á bakið.
Ekki láta barnið þitt hvila á mjöð-
minni. Haltu því frekar í fanginu eða
leyfðu því að sitja á öxlunum. Á
meðan það er lítið er upplagt að
nota magapoka.
Vertu ígóðum.flatbotnaskóm. Ekki
ganga lengi um í hælaháum skóm,
þeir eru afleitir fyrir bakið.
Gættu vel að vinnustöðunni. Á með-
an þú situr við skrifborðið, gættu
að hæðinni á stólnum. Armarnir
eiga að nema við borðbrúnina.
Góður stóll gerir kraftaverk, bæði i
vinnunni og heima við.
Slakaðu á f frflnu
Nú eru flestir farnir að huga að sumarleyf-
inu sínu og farnir að telja dagana þar til
fríið rennur upp. Þá er mikilvægt að nýta
■ tímann vel til að slaka á. Diane Halpern,
bandarískur sálfræöingur, sem hefur gert
viðamiklar rannsóknir á því hvernig fólk
siakar best á í frítíma sínum, vill meina að
við getum nýtt sumarleyfiö okkar enn bet-
ur, bæði með slökun og eins örlitilli heila-
leikfimi.
Halpern mælir með því að þeir sem starfa
að öllu jöfnu viö listtengdar og skapandi
greinar, eins og arkitektar, hönnuðir, Ijós-
myndarar og smiðir, ættu að endurnæra
sálina með því að:
• Búa til sögur með börnum sínum.
• Finna eins mörg lýsingarorð og hægt er
til að lýsa ákveönum hlut.
• Æfa sig í framsögulist.
Ö s k r a ö u
Eftir erfiðan dag i vinnunni, rifrildi við börnin eða leiðinlegt símtal við mömmu, er fátt eins gott og að öskra. Við
gleymum því gjarnan að það er okkur eðlilegt að tjá okkur með hljóðum. Fylgstu með því hvað börnin gera
þegar þau eru búin að fá nóg. Þau öskra og garga og fá útrás á þann hátt. Við erum ekki að mæla með því að
þú öskrir á alla þá sem þú átt í erfiðum samskiptum við, en farðu ein(n) út í bílskúr, út í garð og njóttu þess að
öskra í einrúmi. Margir vilja meina að Tæ-bó sé frábær leið til fá útrás. Þar getur þú sparkað og öskrað án þess
að nokkur maður skipti sér af því og því fleira fólk sem er nálægt þér, þeim mun betur gengur þér að öskra.
Næst þegar þú ert við það að fá taugaáfall vegna allra neikvæðu tilfinninganna, öskraðu þá bara.
Þeir sem hafa mikil mannleg samskipti og
þurfa að tjá sig mikið í starfi, eins og lög-
fræðingar, ritarar, kennarar, afgreiðslufólk
og þjónustufulltrúar, ættu að endurnæra
sálina með því að:
• Byggja sandkastala og láta hugmynda-
flugið njóta sín.
• Teikna upp hvernig best væri að færa til
húsgögnin í stofunni.
• Teikna kort af hlaupa- og gönguleiðum í
nágrenninu.