Vikan


Vikan - 18.04.2000, Page 54

Vikan - 18.04.2000, Page 54
Framhiáhald? Kæri Póstur. Ég er í öngum mínum yfir því að ég held að maðurinn minn sé við það að fara að halda fram hjá mér. Við höfum verið gift í sex ár og eigum tvö börn. Upp á síðkastið hefur honum og einni samstarfskonu hans sem er reyndar gift, orðið vel til vina og hann hefur sagt mér að þau séu aðeins góð- m ^ tm ir vinir. En ég fæ alltaf eitthvað slæmt á til- finninguna þegar ég hugsa um hana enda ekkert skrýtið því hann viðurkenndi nýlega að hafa kysst hana í vinnupartíi en hann sagðist hafa verið fullur og það væri ekk- ert á milli þeirra. Ég veit hins vegar að hann hringir í hana og sendir henni tölvupóst utan vinnutíma. Ég er ekki afbrýðisöm að eðlisfari en mér stendur bara alls ekki á sama um þetta samband mannsins míns við konuna. Ég er búin að segja honum hversu smeyk ég sé við þennan ,,vinskap“ þeirra en hann heldur áfram uppteknum hætti og er hættur að tala um hana til að æsa mig ekki upp. Er ég að gera úlfalda úr mýflugu? B.R. Kæra B.R. Ég tel að afbrýðisemi þín stafi af góðu innsæi en ekki þráhyggjukenndum hugsun- um. Þótt maðurinn þinn segi að ekkert sé á milli hans og samstarfskonunnar þá væri barnalegt að trúa því. Þrátt fyrir að sam- band þeirra sé kannski einungis andlegt þá getur það verið tímaspursmál hvenær það þróast út í eitthvað meira. Pú þarft að hlúa sérlega vel að hjóna- bandinu um þessar mundir og láta mann- inn þinn virkilega finna hvað þú elskar hann mikið. Þú ættir einnig að skoða hvern- ig sambandi ykkar hjónanna hefur verið háttað upp á síðkastið og hvort það sé ekki eitthvað sem betur mætti fara. Þú átt að geta verið vinur og félagi mannsins þíns ekki síður en samstarfskonan. Haltu áfram að fylgjast með vinskap þeirra og viðra áhyggjur þínar og vanlíðan. Annars er hætt við að vinskapur þeirra fái að blómstra óá- reittur og það gæti haft alvarlegar afleið- ingar í för með sér. Spurðu hann líka út í hvernig honum sjálfum líði í hjónaband- inu og hvers vegna þessi kona hafi skyndi- lega orðið honum svo mikilvæg. Þú skalt endilega hvetja hann til að vera hreinskil- inn jafnvel þótt svör hans kunni að særa þig. Reyndu jafnframt að hafa stjórn á tilfinn- ingum þínum og ekki nálgast hann með m ásökunum eða reiði því slíkt veit aldrei á gott. Þú skalt benda honum á að þótt þú skiljir að þessi vinátta sé honum mikilvæg þá megi hún ekki vera á kostnað hjóna- bandsins. Hann þarf að setja sér einhver mörk, t.d. að hitta kon- una einungis á vinnustaðnum. Ef hann gengur ekki að því þá verður þú sjálf að gera upp við þig hversu lengi þú getir lifað við kvíðavekjandi grunsemdir. Þú gætir líka stungið upp á því að þið leituðuð til hjóna- bandsráðgjafa eða annars stuðningsaðila. Á meðan á öllu þessu stendur skaltu hafa hugfast að þú mátt ekki vanrækja þína eig- in vinnu eða börnin ykkar og leggðu rækt við sjálfa þig. Allt sem er uppbyggjandi er af hinu góða og ræddu við vini þína ogjafn- vel fjölskyldu til þess að fá góð ráð og stuðning. Gangi þér vel. Spurningar má senda til „Kæri Póstur“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni. Meipihattar tilboð fyrir áskrifendur i-M mfa. V i k u n n a r ! 30% afslattur! af hanflgerðum körfum Við kynnum til leiks Fróðakortið sem getur orðið þér til hagsbóta á ýmsum sviðum því framvegis munum við mánaðarlega kynna ýmis spennandi tilboð fyrir áskrifendur Vikunnar. Það borgar sig því að fylgjast vel með sérkjörum og tilboðum okkar. j í aprílmánuði verða Vikan og verslunin Sól- blómið, Snorrabraut 22 með frábært tilboð fyrir áskrifendur blaðsins. Gegn framvísun Fróðakortsins fást þessar glæsilegu amerísku körfur með 30 % afslætti á meðan birgðir end ast. Þær kosta frá 1750 krónum, án afsláttar. Glæsilegar handgerðar, ameriskar körfur! Þessar fallegu körfur fást í versluninni Sólblóminu, Snorrabraut 22. Þær eru ekki bara augnayndi heldur eru þær hentugar til að geyma í og bera fram í. Notið einstakt tækifæri, takið áskriftartilboði Vikunnar og Fróða og eignist fallegar, ámálaðar körfur á hagstæðu verði. Verslunin Sólblómið, Snorrabraut 22, s: 561- 5116

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.