Vikan


Vikan - 18.04.2000, Page 59

Vikan - 18.04.2000, Page 59
ásta, enda er Nautið jarðtengt merki með efnismiklar kenndir og það þarf stöðugt að létta á sér og fullnægja þörfum sínum þótt ekki sé það merkilegra en að láta fitla við tærnar á sér með reglu- legu millibili. Astin og ástarlífið eru Nautinu mikilvæg en afbrýði- semin gerir því oft lífið leitt og er sá þrándur sem lokar mörg- um götum þess og rífur rósirnar upp með rótum. Áhugamál og störf Sem áður sagði hefur Nautið „nef“ fyrir viðskiptum en hefur um leið listrænt „auga“ og þjált „eyra“ svo það á frekar auðvelt með að aðlaga sig þeim tveim heimum, hinum andlega og þeim veraldlega, sem svo lengi hafa verið aðskildir en eru nú óðum að renna í eitt. Þessi samruni ólíkra afla virkar stuðandi á marga sem reyna þá að aftra breytingum með því að gerast íhaldssamir en ekki Nautið. Það er í essinu sínu fái það spunnið saman „business and pleasure“ eða með öðrum orðum sinnt al- varlegum hagfræðiformúlum með Mikka Mús. Áhugamál og störf af listrænum toga eða sem tengjast skapandi ferli heilla Nautið sem er nokkuð jarðbund- ið í vali sínu, það vill stunda iðju sína í friði hvort sem það er að sinna útgáfustarfsemi eða rækt- un akra. Öryggi umhverfisins og friður til framkvæmda gefur Nautinu þá auknu vídd sem það þarfnast enda völdu menn eins og Walter Gropius stofnandi Bauhaus skólans, tónskáldið Brahms og !; súrrealistinn Salvador Dali fámennið til að framkalla snilld sína. Tíska og lltir— Þar sem Nautið er listrænt í eðli sínu og næmt á umhverfið er það einnig vandaður fagur- keri. Að klæða sig er ekki bara að fara í föt, það er athöfn eins og japanskt ritúal þar sem litirnir hafa ákveðna merkingu, efnið talar sérstakt mál og stíllinn vís- ar til innviða þess sem fötin ber og huglægs ástands viðkomandi. En þar sem Nautið er nokkuð snobbað hefur það tilhneigingu Nautið er jarðhundið, hef'ur sterka nánd og er í góðu sambandi r ift unihginiiiiii.-jafnl þ essii heinis seni annars. Guðinn Júpiter breytir sér úr nauti í mann til að líta fyrst á merkið og síðan á fatið áður en ákveðið er hvað skal kaupa. Þetta á einnig við um aðra hluti sem það notar svo sem úr, bfla og íbúðarhverfi, enda vill Nautið hafa flott í kringum sig og stfl á hlutunum, ekkert pjatt, ekk- ert skrum og alls enga ofgnótt, enda eru það frægir hönnuðir, kunnir arkitektar og snjallir lista- menn sem skapa umhverfi Naut- mennisins. Líkami og heilsa Á sama hátt og eik vex upp til að skapa öruggan blett í tilver- unni um langan aldur þá er Naut- ið sá fasti punktur sem færir lík- amsræktarstöðvum langt líf og farsælt. Að rækta kroppinn hátt sem lágt og yrkja andann er Nautinu fróun umfram þörf. Að skapa úr sjálfum sér listrænt verk sem aðrir dást að er Nautinu nautn umfram fróun og það veit að tíminn vinnur með því, nú á þessum síðustu og verstu... Asi og flan er ekki það sem Naut- menni aðhyllast í kroppatamn- ingu heldur rólegt og yfirvegað plan til sigurs. En áður er planið verður virkt þarf Nautið að takast á við nautnasegginn í sjálfu sér og það verður mörgum þrautin þyngri. Líkamlega eru Nautin vel byggð og aðlaðandi, hraust og laus við tískusjúkdóma. Ást og kynlíf Plánetan Venus ríkir yfir Naut- inu og það er að sjá sem Naut- mennin hafi tekið við hlutverki gyðjunnar sem boðberar ásta, fegurðar og nautna því þau eru uppfull af þessari heilögu þrenn- ingu jarðneska lífsins. Ástin er Nautinu nauðsyn líkt og að neyta matar, og það þarf þá hlýju og þann frið sem elskandi maki veit- ir enda leggur það allt í sölurnar Nautin ekki og stál mætir stáli. Uppeldið verður þrautarganga nema þau sjái að sér og brey ti um stíl. Litli kálfurinn hefur tilhneig- ingu til að taka völdin þegar í frumbernsku og ráðskast með umhverfið fram að flutningi að heiman sé ekki þegar brugðist við og honum kennt að deila með öðrum og hlýða þeim sjálfsögðu reglum sem hvert heimili þarf að byggja grunn sinn á. Vor og sumar 2000 Þegar moldin vaknar af værurn blundi vetrar þá lifnar Nautið og blómstrar sem aldrei fyrr og nú í vikunni stígur sólin í hús þitt og hrekur á brott þær þunglyndis- flygsur sem enn eru á sveimi frá því í mars. Seinni hluti aprfl verð- ur því notaður til að gera áætl- anir og hnýta þá enda sem enn kunna að vera lausir. Undir mán- aðamótin, þegar tunglið hefur gengið inn í Ljónsmerkið, ertu sérlega næm/ur fyrir því óræða og draumar næturinnar eru óvenju skýrir. Sú reynsla skilar drjúgu veganesti til margra enda verð- ur maí mánuður athafna þar sem marga þraut þarf að leysa sem krefst innsæis. Sé vel haldið á spilunum gefst þér færi á ljúfu sumri ástar og friðar hvar sem þú drepur niður fæti á ferð þinni um draumalandið. fyrir góðan félaga. Sá hinn sami skal vera fegurðin holdi klædd og fróður um Sjafnaryndi því Nautið er holdlegast merkja, skapandi og frjósamur rekkjunautur sem elskar að elska og full- nægja fegurðinni. Þegar máninn rís í merkinu verða Nautin að holdgervingum hinna miklu guða sem leiða þig sem í draumi um hallir og sali ástarinnar í unaði og gleði. Heímlll, listir og menning Eins og fram hefur kom- ið hér á undan eru Nautin listrænt þenkjandi fegurðar- fíklar sem kunna að meta jafnt hefðbundna málaralist sem nútíma tölvulist enda sækja þau opnanir sem aðra list- viðburði þegar tími og áhugi draga þau út úr húsi. Heimilið er þó þeirra rann og þar er oft bestu listina að finna svo útstáelsi eða sunnudagsrúntar eru ekki ofar- lega á vinsældalistanum. Þetta gildir einnig um tónlistina en þó má finna nálægð Nauta í þeim sölum sem flytja mettuð, kraft- mikil og tilfinningarík verk eins og Dettifoss eftir Jón Leifs eða þýð, fínleg og næm verk Skúla Halldórssonar. Foreldrar og börn Nautmennin elska börn en geta átt í basli með að brúa bilið frá einni kynslóð til annarrar vegna ákveðinnar íhaldssemi sem sækir á Nautin þegar þau byrja feril sinn sem foreldrar. Þá verða þau oft manna fastheldn- ust á boð og bönn, regiur og til- skipanir svo börnin snúast í þver- móðskufulla einstaklinga sem sýna rauða spjaldið. Það þola Vikan 59 ll

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.