Vikan - 16.05.2000, Blaðsíða 63
Mamman
Spá Vikunnar
*
21. mars - 20. apríl
Fjármálin eru hálfskrýtin og peningar skipta
hratt um eigendur. Þú ert í einhvers konar
sjálfsskoðun núna og þú ættir að hafa það að
leiðarljósi að láta peninga ekki hafa of mikil áhrif á þig.
22. maí - 21. júní
Þú þarfnast einveru og ættir að leggjast í híði
ef þú getur. Þetta gæti orðið góður tími fyrir þá
sem vilja skrifa, lesa eða grannskoða eitthvað.
Þú ættir að losna við gamlar áhyggjur í þessari viku.
24. júlí - 23. ágúst
Það verður mikið tilfinningaflæði í kringum þig
og þína í þessari viku. Þú gætir þurft að sinna
annarra manna börnum eða fjarskyldum ætt-
ingjum meira en þú átt að venjast. Ljón í sambúð ættu að
huga að sambandinu.
4?
Þig
ágúst - 23. séptember
þessa dagana
|ómælda athygli frá þeim sei
aglega. Reyndar hefur þú
og þl
mgan
þessu öllu en þú býst aldrei við að fá laun þess i
þú leggur fram fyrir aðra.
i
Nautio
21. aprfl ■ 21. maí
Útgjöldin eru orðin nokkuð hærri undanfarið en
þú reiknaðir með. Náttúruöflin hafa sterk áhrif á
þig núna og þú verður að vera róleg(ur) þótt
þér finnist eitthvað ekki ætla að ganga upp.
24. september - 23. október
Þú gætir átt mjög góða daga um næstu helgi.
Þú ert að koma einhverju á hreint sem lengi
hefur verið hálf ruglingslegt. Láttu þó ekki aðra
plata þig til að vinna eina(n) að endurbótum sem standa fyrir
dyrum.
1 mn
24. október - 22. nóvember
Þér gæti allt í einu birst andmælandi (ef hann er
ekki þegar kominn í spilið) en þú þarft þó ekki
að hafa áhyggjur af að hann liggi í leyni. Þú ætt-
ir að hafa nægan kraft núna til að takast á við viðkomandi
sst
4k
23. nóvember - 21. desember
Stígðu varlega til jarðar, sérstaklega í fjármál-
um. Þú ert ekki sérlega kraftmikill þessa dagana
og ættir ekki að hella þér út í framkvæmdir sem
þú ert ekki viss um að geta lokið við.
22. júní - 23. júlí
Þín bíður gullið tækifæri handan við hornið og
þú ættir að grípa það. Lífið hefur verið í nokkuð
föstum skorðum upp á síðkastið en nú gæti
það breyst skyndilega.
22. desember - 20. janúar
Þú heldur þig við aðferðir sem þú þekkir og læt-
ur ekki mana þig út í vitleysu. Það er eins gott
því þú ert umkringd(ur) ævintýramanneskjum
núna og hefur ekkert gott af að smitast.
lll
21. janúar - 19. febrúar
Þú þarft að fara varlega og ganga vel um heimili
þitt það sem eftir er mánaðarins. Mundu að
skrúfa fyrir, læsa og þess háttar, allt þetta gæti
skipt þig meira máli en þú heldur.
20. febrúar - 20. mars
Þú ert haldin(n) einhvers konar fortíðarþrá og
langar á fornar slóðir eða að hitta gamla kunn-
ingja. Nú er akkúrat rétti tíminn til þes
; sem Drífðu þig!