Vikan - 16.05.2000, Blaðsíða 33
leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar
og er eitt af mínum uppáhalds-
verkum. A þessu tímabili hafði
ég eignast dóttur og þegar hún
var sjö mánaða tók ég að mér að
hanna búninga fyrir kvikmynd
Einars Heimissonar Maríu. Þetta
var mikil fjarvera frá heimilinu
meðan á tökunum stóð og það
má eiginiega segja að ég hafi ver-
ið meira og minna fjarverandi í
tvo mánuði. Þá hét ég því að ég
myndi ekki aftur taka að mér
kvikmynd fyrr en dóttir mín væri
orðin eldri. Ég hafði hvort sem er
nóg að gera í leikhúsinu og við
tóku nokkur leikrit þeirra í með-
al Skari Skrípó, Latibær og
Bugsy Malone í Loftkastalanum.
Starfið í leikhúsinu hefur veitt
mér hvað mesta ánægju þó ég
hafi í raun haft gaman af öllu því
sem ég hef tekið mér fyrir hend-
ur og til viðbótar því sem þegar
hefur verið upp talið má nefna að
ég hef unnið við sjónvarpsauglýs-
ingar hjá fyrirtækjum eins og
Saga film og Hugsjón.“
Ævintýri í leikhúsi
Meðal nýjustu verka Maríu
eru Ávaxtakarfan sem Drauma-
smiðjan setti upp, leikritið Full-
kominn jafningi með Felix
Bergssyni sem sýnt er við góðan
orðstí í London um þessar mund-
ir. Banvænt samband á Njálsgöt-
unni eftir Auði Haralds og leik-
ritið Ég sé sem sýnt er í Mögu-
leikhúsinu. Búningarnir í
Ávaxtakörfunni vöktu mikla at-
hygli og aðdáun. Talað var um
hversu líflegir þeir væru og hug-
arflugið óþrjótandi að baki hönn-
un þeirra.
„í Ávaxtakörfunni gat ég leyft
ímyndunaraflinu að njóta sín
óbeisluðu. Ég fékk þá hugmynd
að við fengjum að sjá inn í ávext-
ina. Eplið var opið svo sást í
kjarnann, appelsínan afhýdd og
annar bananinn var opinn en
hinn grænn og óþroskaður. En
ekki er hægt að tala um búning-
ana án þess að geta Sigrúnar Ein-
arsdóttur klæðskerameistara
sem útfærði mínar hugmyndir af
útsjónarsemi og natni enda hef
ég fengið hana til liðs við mig í
fjölmörgum öðrum verkefnum.
Hún er galdrakerling þegar kem-
ur að búningum."
Það er Margrét Pétursdóttir
leikkona sem er höfundur Ég sé
og það er túlkað á táknmáli um
leið og talað er. María hannaði
einnig leikmyndina í verkinu og
þetta er í annað sinn sem hún
hannar leikmynd.
vinna
en fólk almennt gerir
sér grein fyrir. Þetta
krefst agaðra vinnu-
bragða og einbeitingar
og hugmyndirnar þurfa
tíma til að þróast.
Margt þarf að hafa í
huga svo sem ímynd
viðkomandi fyrirtækis
og fötin þurfa að falla
að starfsemi þess. Flug-
leiðir lögðu til dæmis
mikinn metnað í hönnun
starfsmannafatnaðs síns og
gáfu sér góðan tíma í hönnun og
framkvæmd verksins. Allt sam-
starf við Flugleiðir og Artex, um-
boðsaðila framleiðandans
Balenciaga, var mjög ánægjulegt.
Hugsun forsvarsmanna fyrir-
tækja gagnvart einkennisfatnaði
er mjög að breytast. Imyndarmál
eru meira í brennidepli nú en
nokkru sinni áður með síharðn-
andi samkeppni og breyttu lands-
lagi í viðskiptaheiminum. Um-
gjörðina verður að skoða í víðu
samhengi og það verður að vera
samræmi á rnilli fatnaðar starfs-
manna og hönnunar þess um-
hverfis sem þeir starfa í. Líkt og
í leikhúsi er öll svona vinna unn-
in í nánu samstarfi margra aðila,
eins og hönnuða, markaðstjóra,
auglýsingastofa og arkitekta. Þó
svo að ég beri ábyrgð á mfnum
verkum þá hef ég notið fullting-
is fjölmargra vina og samstarfs-
aðila og því ósanngjarnt að eigna
mér einni heiðurinn."
María verður einn þeirra
hönnuða sem sýna tískufatnað á
tískusýn-
ing-
unni Future Ice
sem haldin er á
vegum Menn-
ingarborgarinnar
Reykjavíkur og
Eskimo Models í ágúst í
sumar. María er ákaflega spennt
yfir þessu verkefni og segir það í
raun stórkostlegt tækifæri fyrir ís-
lenska hönnuði.
„Þetta tækifæri er einstakt og
sker sig úr að því leyti að þetta er
í fyrsta skipti sem mér gefst kost-
ur á að vinna að verkefni sem er í
beinum tengslum við mína mennt-
un. Mig hefur lengi langað til að
takast á við verkefni af þessu tagi
en hefur skort tækifæri og tíma.
Einangrun íslands er mikið til að
hverfa, heimurinn að dragast sam-
an í eitt svæði, einn markað, með
tilkomu nýrrar tækni. Eskimo
Models, Oz, Björk, Móa og fleiri
hafa opnað augu heimsins fyrir því
sem ísland hefur upp á að bjóða,
þar á meðal íslenskri hönnun og
tísku. Ég og aðrir tækifærissinnar
njótum góðs af öllu saman,“ segir
María að lokum og hlær.
„Ég sé er leikrit sem
er samið sérstaklega fyr-
ir allra yngstu leikhús-
gestina, á aldrinum eins
til fimm ára. Það gerist
heldur hægar en yfirleitt tíðkast
með efni fyrir börn um þessar
mundir. Hröð atburðarás og
spenna er einkennandi fyrir nú-
tíma barnaefni og þessir yngstu
áhorfendur hafa einfaldlega ekki
þroska né þolinmæði til að fylgja
því eftir og allur boðskapur fer
fyrir ofan garð og neðan sökum
þess að atburðarásin er oft svo
hröð og atvikin gerast mjög hratt.
Þetta sést einna best þegar born-
ar eru saman eldri og yngri Dis-
neymyndir. Bambi og Mjallhvít
eru mun hægari en til að mynda
Hringjarinn í Notre Dame og
Mulan. Sömuleiðis er hlegið að
sama hlutnum aftur og aftur í
eldri myndunum en nú dugir
ekki að bjóða upp á sama
brandarann oftar en einu sinni.
Augnablikið kemst ekki eins vel
til skila, það er farið hjá svo hratt.
Ég sé lýsir þroska ungs barns í
eitt ár meðan árstíðirnar líða hjá
og hver atburður gerist hægt.
Barnið lærir að ganga, finna ilm
blómanna, gleðjast og hræðast.
Sagan er hæg og einföld svo bún-
ingarnir og leikmyndin urðu að
vera eitthvað fyrir augað. Því var
mikið lagt í umgjörð sýningarinn-
ar. Ég ákvað að hafa umgjörðina
í anda sígildra ævintýra gömlu
meistaranna eins og H.C. Ander-
sen og Disney og nýtti mér auk
þess fleiri ævintýri sem allir
kannast við eins og Mjallhvít,
Dimmalimm, Öskubusku o.s.frv.
Garðálfurinn er til að mynda
með svuntu, skóflu, skegg og fræ-
poka rétt eins og garðálfa er sið-
ur og álfadrottningin með fallega
gullkórónu og í síðum kjól. Lítið
garðshlið og falleg tjörn umvaf-
in blómum sem breytast í fjúk-
andi haustlauf einkenna svo leik-
myndina."
Sérhannaður einkennis-
fatnaður
María hefur einnig fengist við
að hanna einkennis- og starfs-
mannafatnað. Nýjasta verkefni
hennar var að hanna búninga fyr-
ir Flugleiðir og Edduhótel-
in. I sumar leggur hún
lokahönd á nýjan
starfsmannafatnað
Sammvinnuferða
Landsýnar.
„Hönnun ein-
kennisfatnaðar er
tímafrekari og meiri