Vikan - 19.12.2000, Side 10
Viðtal
Blaðamaöur Vikunnar hafði aldrei áður
hitt Tenu Palmer í eigin persónu áður og
hafði einhvern veginn búist við ráðsettari
konu en þeirri sem gekk brosandi inn á
kaffihúsið. Tena lítur út fyrir að vera
a.m.k. fimmtán árum yngri en árin segja
til um. En líklega má maður ekkert vera
að því að eldast þegar maður er jafn
önnum kafinn og Tena og það sem
meira er; önnum kafinn við að gera það
sem maður hefur unun af.
Tena hefurbúiðá islandi
í fjögur ár og kom hing-
að upphaflega til þess
að kenna við Tónlistar-
skóla FÍH. Hún er kanadísk,
fædd og uppalin í Halifax og
stundaði háskólanám í Nova
Scotia. ,,Ég ólst upp við jass-
tónlist," segirTena. ,,Pabbi var
.t með útvarpsþátt í mörg ár og
- o átti gríðarstórt plötusafn. Ég
■S œ ólst upp við að hlusta á Count
œ « Basie, Duke Ellington, Frank
o Sinatra og Ellu Fitzgerald. Ég
“ “ hef alltaf þekkt jasstónlist bet-
o ur er rokk og ról og þótti Ifklega
= I þess vegna svolítið undarlegur
- krakki."
n. Tena var frá upphafi ákveðin
." ~ í því að leggja fyrir sig tónlist.
x = Hún byrjaði að læra að spila á
“ s saxófón og flautu þegar hún var
lítil stelpa og lauk háskólagráðu
(jasstónlist. Hér á íslandi kenn-
ir hún aftur á móti söng og
margir þekkja hana sem jass-
söngkonu. ,,Upphaflega ætlaði
ég alls ekki að verða söngkona.
Það voru bara örlögin sem hög-
uðu því þannig til að ég fór að
syngja. Dag nokkurn komu
jassistar til þess að spila í skól-
anum og þeir spurðu hvort ein-
hver viðstaddra kynni að syngja
lagið My one and only love. Ég
var sú eina sem rétti upp hönd-
ina og það endaði með því að ég
söng þetta lag með þeim. Við-
brögð áheyrenda voru frábær og
þessir ágætu menn buðu mér
starf sem söngkonu með kvar-
tettinum þeirra, Chelsea
Bridge. Þetta varð til þess að
ég lét sannfærast um að ég ætti
10
Vikan