Vikan


Vikan - 19.12.2000, Síða 15

Vikan - 19.12.2000, Síða 15
séu framleidd flott efni úr ís- lensku ullinni." Fieirí spennandi markaðir Ástu vefst svolítið tunga um tönn þegar hún er beðin að lýsa framleiðslu sinni. „Ætli það sé ekki best að lýsa fötunum mín- um þannig að þau séu með svo- lítið ævintýralegum blæ og ég hanni með náttúruna í huga. Óreglan í náttúrunni höfðar til mín. Égvel oft Ijósa liti frekaren dökka og er búin að fá svolitla leið á svarta litnum. Mér finnst allt verða fallegra í fallegum lit- um. Þess vegna finnst mér líka skemmtilegt að vinna með kon- unum hjá Kirsuberjatrénu, þær eru litaglaðar og það smitar út frá sér. Ég nota gjarnan þunn, kvenleg efni og hanna frekar grófar peysurtil þessað klæðast með þessum fínlegu efnum. Ég er lika mjög spennt fyrir ullinni og mig langar að nota hana meira í framtíðinni. Ég hef engan sérstakan ald- ur í huga þegar ég hanna, þótt eflaust eigi maður að stíla inn á sérstakan aldur og ákveðna hópa. En það hefur sýnt sig að konur frá sautján ára aldri og upp úr sýna fötunum mínum áhuga. Aldur skiptir ekki máli við fataval, valið fer miklu frek- ar eftir persónuleikanum." Ásta hefur komið víðar við með hönnun sína. „Fötin mín eru til sölu í Is-kunst í Oslo, gall- eríi sem íslensk kona, Ása Mar- ía Björnsdóttir, á og rekur. Nú hefur hún einnig opnað fata- verslun sem selur eingöngu ís- lenskan fatnað. Fötunum mín- um hefur verið tekið vel þar og égeránægð með hvernigtil hef- ur tekist. Ég væri alveg til í að reyna að komast inn á fleiri er- lenda markaði en það er líka ágætt að stíga bara eitt skref í einu og sjá svo til hvernig mál- in þróast." Ásta segir fötin sín hafa ævintýralegan blæ og hún hanni með náttúruna í huga. Vikan 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.