Vikan


Vikan - 19.12.2000, Qupperneq 30

Vikan - 19.12.2000, Qupperneq 30
Texti: Unnur J ó h a n n s d ó tt i r Myndir: Hreinn Hreinsson Viðtal Alveq1 Hann geislar af sjálfsöryggi, í svörtum jakkafötum, snaggaralegur og ákveð- inn í fasi. Það er allt á milljón í lífi hans þessa stundina, hann stingur sér til sunds í jólabókaflóðinu, með minn- ingabók um móðursína, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, og á annan í jólum hleypir hann af stokkunum nýstárleg- um spurningaþætti á Stöð 2 sem heitir Viltu vinna milljón? Þorsteinn Joð er svo sannarlega alveg milljón. orsteinn J. Vilhjálms- son skrifar sig gjarna sem Þorstein Joð. „Þaðerí rauninni eng- in sérstök ástæða fyrir því. Það er styttra og mér finnst það hljóma betur, en J-ið stendur fyrir Jens.“ Hann er 36 ára, fæddur og uppalinn í Hverfinu með stóru H-i, eins og hann segir sjálfur, og á þá við Laugarneshverfið. „Það var afskaplega gaman að alast þar upp - mikið líf og mik- ið fjör,“ segir hann og brosir. „Ég gekk í Laugalækjarskóla og tókstúdentspróf frá Fjölbrauta- skólanum í Ármúla en það var á menntaskólaárunum sem ég hóf að vinna við við útvarps- þáttagerð á Rás 1. Ég byrjaði á Stöð 2 fyrir 5 árum, en þangað til var ég búinn að vera með annan fótinn í Útvarpinu, á báð- um ríkisrásunum og Bylgjunni. Hvaða miðill finnst þér mest spennandi? „Sjónvarpið," seg- ir hann án þess að hika, „og þá ekki síst þeir möguleikar sem eru að opnast með tengingu sjónvarpsins við Netið. Ég er sannfærður um að sú tækni á eftirað hafa mikil áhrif ogopna glugga í fjölmiðlaheiminum sem er ólíkur öllum öðrum gluggum sem við þekkjum. „Tæknin til þess að klippa verð- ur einnig sífellt einfaldari og gerir það að verkum að öll vinnsla verður bæði hraðari og auðveldari. Ný klippitækni og Netið gera manni kleift að taka upp efni um hádegisbil í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum, klippa það og vinna og senda samdægurs til íslands þar sem það birtist í kvöldfréttunum. Þetta er auðvitað alveg frá- bært." Listin stækkar lífið Þorsteinn hefur alla tíð haft mikinn áhuga á orðanna hljóð- an og lagði stund á bókmennta- fræði við Háskóla íslands það- an sem hann lauk B.A. - prófi. Sjálfur hefur hann gert sér dælt við listagyðjuna og meðal ann- ars lagt stund á Ijóðagerð. „Ég hef gefið út Ijóð á spólu með tónI ist og handskrifaði Ijóðabók í 100 eintökum sem bar nafn- ið Litabók, fyrir sex árum og það tók mig hvorki meira né minna en þrjá mánuði," segir hann og hlær. Hvaða gildi hefur listin fyrir þig? „Listin stækkar allt líf- iðoggefurþvíenn meiragildi," segir Þorsteinn alvarlegur á svip. „Menn geta svo rifist endalaust um það hvað sé list, það skiptir í raun og veru ekki máli. Ég held að það sé listin sem gefi okkur nýtt og vonandi oftast nær óvænt og dýpra sjónahorn á lífið og sýni okkur það í öðru Ijósi.“ Ert þú leitandi að nýjum sjón- arhornum í lífinu? „Já, ég tel að maður verði að skoða alla möguleika,“segir hann og bros- ir. „Til þess að fara sínar eigin leiðir og brjóta upp hefðina verður maður hins vegar að hafa kynnst hefðinni og þekkja hana. Sjálfum finnst mér óskaplega spennandi að rannsaka heim- inn og finna ný og óhefðbund- in sjónarhorn á bæði fólki og hlutum sem maður þekkir úr hversdagslífinu." Takk, mamma mín „Heiðra skaltu föður þinn og móður" er eitt af boðorðunum tíu, en Þorsteinn segist ekki hafa haft það sérstaklega í huga þegar hann ákvað að skrifa minningabók um móður sína, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, sem lést úr lungnakrabbameini árið 1997. Bókin heitir því fallega nafni, Takk, mamma mín. í for- mála segir m.a.: „Þessi minn- ingabókerfull af óljósum minn- ingum og brotum sem ég hef fundið til, og raða upp, svo ég tali nú ekki um uppskriftina að kókoskökunni góðu." Aðspurður um hvernig hann upplifi æsku sína vísar Þor- steinn alfarið á bókina. „Þar segi ég allt sem ég vil segja. Þetta erekki ævisaga í eiginleg- 30 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.