Vikan - 19.12.2000, Blaðsíða 59
vottaði greinilega ekki fyrir
feimni hjá honum. Hann var
tæplega meðalmaður á hæð,
þéttvaxinn og sterklegur en
mjög léttur á sér og líflegur. Það
lá við að ég roðnaði þegar hann
tók utan um mig og faðmaði
mig að sér, fast og innilega, því
mér fannst hann í meira lagi
hispurslaus við ókunna stelpu.
„Hó, hó , hó“ kallaði hann hátt
og svo hvíslaði hann að mén
„Svona, faðmaðu mig á móti
svo krakkarnir sjái að ég sé ekk-
ert hættulegur". Þá hrökk ég
upp af hugsunum mínum. Hvað
var ég eiginlega að hugsa? Mað-
urinn kunni greinilega sitt fag
og ég var bara fóstra sem hann
þurfti að faðma svona til þess
að krakkarnir sæu hvað hann
væri góður. Ég hálfskammaðist
mín fyrir mínar saurugu hugs-
anir, faðmaði Stúf innilega og
bauð honum inn í húsið.
Og Stúfur kunni sko sitt fag!
Kertasníkirféll alveg í skuggann
af persónutöfrum hans og börn-
in bókstaflega héngu utan I
honum. Stúfur lék á als oddi,
hann söng og dansaði, faðm-
aði alla og knúsaði og jafnvel
alfeimnustu og hræddustu
börnin voru, fyrr en varði, kom-
in upp I fangið á honum. Ég
dáðist að manninum! Hann var
svo fjörugur og snar í snúning-
um og það var eins og hann vissi
alltaf nákvæmlega hvaða barni
þyrfti að sinna á hverjum tíma
og enginn varð útundan. Jóla-
gleðin flæddi um litla salinn
okkar og það voru sælir krakk-
ar og ánægðar fóstrur sem fóru
heim þennan daginn og það var
Stúfi að þakka.
Að eltast við
sveinka
Ég hafði auðvitað
ekki séð manninn
sem falinn var á bak
við jólasveinabúning-
inn en ég fann sterkar
tilfinningar bærast með
mér. Mér varð hugsað til hans
um kvöldið þegar ég kom hei
og það lá við að ég væri komin
í jólaskap! Kannski yrðu þessi hvernig
jól alls ekki svo afleit. ég ætti
Á Þorláksmessu var ég að
vinna til klukkan hálfsex en síð-
an fór ég í bæinn til að kaupa
síðustu jólagjafirnar. Þar sem ég
var stödd við búðarborðið í
verslun Ziemsens í miðbænum
er bankað í bakið á mér og ég
heyrði rödd sem mér fannst ég
kannast við: „Jæja, fóstran
sloppin út í dag!“ Hjartaðímér
tók kipp. Þarna var Stúfur kom-
inn og það gladdi mig innilega
að hann skyldi þekkja mig aft-
ur og heilsa mér.
Stúfur var greinilega ekki
minni sjarmur í hverdagsfötun-
um en jólasveinabúningnum.
Hann var bráðhuggulegur og
þessi brosandi augu, sem höfðu
strax heillað mig, voru bara hluti
af persónutörfum hans. Ég man
ekki hverju ég stamaði út úr mér
nema ég þakkaði honum fyrir
síðast og sagðist aldrei hafa
skemmt mér eins vel á jóla-
skemmtun eins og þessari.
Hann sagði mér að þetta væri
annað árið sem hann ynni sem
jólasveinn í jólafríinu úr Iðn-
skólanum. Hann sagði mér líka
að hann yrði fram að áramót-
um á hinum og þessum jóla-
skemmtunum sem hann taldi
upp fyrir mig.
Ég var ekkert á því að láta
þennan sveinka sleppa svo ég
fékk hann til að skoða með mér
innisnúrur sem ég ætlaði að
gefa systur minni í nýju íbúð-
ina hennar. Meðan við vorum að
skoða komst ég að því að Stúf-
ur hét réttu nafni Stefán, var
þremur árum eldri en ég og ný-
lega orðinn nágranni minn. Ég
fann að ég var
I bálskotin í hon-
en vissi
ekki
að nálgast hann. Ekki þorði ég
að bjóða honum heim í kaffi ef
ské kynni að pabbi væri dott-
inn í það og ég tvísté þarna í
búðinni í vandræðum mínum.
En þá bjargaði Stefán málunum
með því að spyrja hvort ég ætl-
aði í fleiri búðir. Ég hafði að vísu
alls ekki hugsað mér það en ég
játti því samt og það endaði
með því að við rápuðum sam-
an um miðbæinn og
skoðum jólagjafirog
skemmtum okkur
konunglega. Við urðum
svo samferða heim í
strætó seint um kvöldið og
þegar við skildum við dyrnar
heima hjá honum var ég í svo
góðu skapi að ég sveif heim.
Ég fann fyrir alvöru jólagleði
í fyrsta skipti á ævinni eftir
þetta skemmtilega Þorláks-
messukvöld með uppáhalds-
jólasveininum mínum.
Ást og ástarsorg
Aðfangadagur leið og jóladag-
ur líka og ég var alltaf að hugsa
um Stefán. Égvarorðin yfir mig
ástfangin af honum og ég þráði
að sjá hann aftur. Ég lifði í þeirri
von að ég myndi hitta hann á
götunni en þaðvarðekki um jól-
in. Á þriðja í jólum fór ég að
vinna og söknuðurinn eftir Stef-
áni var sár. Það var því kærkom-
ið þegar ein frænka mín sem var
nýbúin að eignast annað barn-
ið sitt fór að tala um það að hún
ætti erfitt með að komast með
5 ára dóttur sína á jólaskemmt-
un. Ég bauðst til að fara með
stelpuna og fannst ég hafa him-
in höndum tekið þvf ég vissi að
Stúfur yrði þar. Ég varð fyrir
miklum vonbrigðum á jólaball-
inu. Stúfur var alltaf jafnhríf-
andi, en hann var að vinna og
gaf mér engan gaum umfram
aðra. Ég var því svekkt og von-
svikin og orðin alveg viss um
að ástin væri ekki endurgold-
in.
Næstu dagarvoru hálf dapur-
legir og ég var í ástarsorg.
Ég sá Stefáni aldrei
bregða fyrir og það var
greinilegt að hann sóttist
ekki eins mikið eftir fé-
lagsskap mínum og ég hans.
Það var ekki fyrr en í byrjun
janúar sem ég hitti Stefán aft-
ur en þá fór ég fyrr í vinnuna
en venjulega. Þegar ég kom að
skýlinu sá ég hvar Stefán stóð
með skólatöskuna sína og beið
eftir vagninum. Við fórum að
spjalla saman og settumst hlið
við hlið í strætó. Mér
þótti eiginlega
verst að ég
skyldi ekki
þurfa að
fara
lengra
með vagninum því
Stefán þurfti auðvitað
að fara alla leið niður í
bæ. En framvegis gerði
ég mér far um að mæta fyrr
vinnuna og við Stefán vor-
um farin að vera samferða í
strætó á hverjum morgni. Það
var svo í mars, nánar tiltekið á
afmælinu mínu, sem ég bauð
honum í veislu heima hjá syst-
ur minni og þar byrjaði ástaræv-
intýri okkar Stefáns sem stend-
ur enn 17 árum síðar.
Við Stefán giftum okkur tveim
árum eftir að við kynntumst og
ég hef aldrei séð eftir því að
hafa lagt snörurnar fyrir hann.
Ég komst að vísu að því að Stef-
án er meiri jólasveinn en ég
hélt, en ég elska hann af öllu
hjarta og hann hefur alltaf ver-
ið mér og börnunum okkar góð-
ur. Og eitt er víst; jólin okkar
hafa alltaf veriðgleðileg og góð.
Ég hlakka til jólanna eins og
barn á hverju ári og nýt þess að
undirbúa þau og gera þau að
sannri fjölskylduhátíð þar sem
öllum líður vel.
Lesandi segir
Jóhönnu
Harðardóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni með
okkur? Er eitthvað sem hefur
haft mikil áhrif á þíg, jafnvel
breytt lífi þínu? Þér er vel-
komið að skrifa eða hringja til
okkar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
Heimilisfangið er. Vikan
- „Lílsreynslusaga", Seljavegur 2,
101 Reykjavik,
Netfang: vikaii@frodi.is