Menntamál - 01.11.1931, Page 4

Menntamál - 01.11.1931, Page 4
82 MENNTAMÁL aftur á móti fá til meÖferðar hugsjón, sem er hæfilega viÖ- rá’Sanleg og grípur um og bræ'Öir saman frumdrætti úr sögu, landafræði, bókmenntum, móðurmáli o. s. frv., þá er rutt úr vegi þeim hindrunum, sem skiptingin í námsgreinar veldur. Við höfum fundið það, með öðrurn orðum sagt, að ef börnin hafa fengið að lifa hugsjón og gera hana að veruleika — og aðeins þá — verður persónuleiki þeirra heilsteyptur. Við getum ekki séð það fyrir, hvað framtíðin kann að heimta af nýju kynslóðinni. En það vitum við, að þá eins og nú mun þurfa forystumenn, og áhrif þeirra verða að vera annars háttar en nú tíðkast, því að aðstæður verða þá aðrar. Þau börn ein, sem alin eru upp til að verða heilsteýptir menn, geta vaxið upp í það, að verða leiðtogar framtíðarinnar. Bók mín, Education on thc Dalton Plan, sem kom út árið 1922, hafði enga lausn að færa á því mikla vandamáli, að skipuleggja námsefnin af nýju, en þar var gerð fyrsta tilraun til að l>reyta þjóðfélagslegri byggingu skólanna. Mér fannst sjálfri fyrir mitt leyti riða mest á því, að umskapa allt skóla- lífið, en umbyltingar á nárnsáœtlunum gætu komið á eftir. En enskir samverkamenn mínir voru á öðru máli og lögðu áherzlu á nauðsyn þess, að koma fyrst og fremst nýrri skipun á náms- skrárnar. Ætlunin með Daltonkerfi var sú, að skapa nýjan anda í skólunum, anda, sem tryggði bæði drengjum og stúlkum allt önnur lífskjör cn í gömlu skólunum. Lífið í skólunum átti ekki að vera í neinu verulegu frábrugðið lífinu utan skóla. Við reyndum að gera bilið milli gamla og nýja skólans sem minnst, þvi að okkur var Ijóst gildi gamla skólans fyrir sinn tíma, og að þrátt fyrir það, að hann svarar illa til samtíðarinnar, cr hann þó það, sem nútíminn byggir á. Fyrstu tilraunir mínar með reynslukerfi það, sem nú er nefnt Daltonkerfi, byrjuðu árið 1910. Skólinn okkar í New York er nú 74 ára gamall, en undir eins 1922 vorum við, geguum nýstofnað uppeldisfræðilegt félag, farin að safna nýrri reynslu af samtengingáraðferð okkar. Bæði trú okkar á málefnið og

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.