Menntamál - 01.11.1931, Qupperneq 12

Menntamál - 01.11.1931, Qupperneq 12
90 MENNTAMÁL Þeir unnu a<5 handavinnu sinni, meí5an þeir voru um kyrrt, og sýndu skart sitt og vefnað. Þeir héldu til i skólanum. Athuganir þær, er við söfnuðum, voru teknar beint úr veru- leikanum, og þær voru rnjög mikils verðar fyrir þekkinguna á menningunni. En við létum okkur ekki nægja þetta. Við leit- uðum að enn meira félagslegu æfintýri, þvi að við vissurn, að í réttu umhverfi hlaut slík tilraun að gefa enn hetri árangur. Eg hafði lengi hugsað um tilraun út frá öðru atriði megin- reglna okkar: „samvinnu í hópum“. Eg hafði hugsað mér, að gera tilraun í miðbekkjunum okk- ar, þá, að láta alla þrjá bekkina rannsaka eitt menningartímabil í stað ]>riggja. Eg hugsaði sem svo, að ef þrír bekkir rannsök- uðu samtímis eitt menningartímabil hvert ár, yrðu allir bekk- irnir búnir með tímabilin þrjú eftir þrjú ár. Með öðrum orð- um, ef bekkirnir þrír ynnu saman, hefðu þeir tíma og krafta til að tæma efnið betur en einn bekkur gæti á jafnlöngum tíma. Þyngsta þrautin var að vita hvar byrja skyldi. Flestir sam- verkamenn mínir, félagar, sem unnið höfðu með mér í mörg ár, kenndu í miðbekkjunum, og þess vegna voru miðbekkimir enn notaðir til tilrauna. Félagar mínir voru vanir því, að til- lögur mínar kæmu stundum á elleftu stundu, og þeir samþykktu áætlun mína. Sjötti bekkur hafði fengizt við gríska og rómverska menn- ingu, fimmti bekkur hafði fengizt við ])á grísku, og fjórði bekk- ur átti að byrja á einhverju svipuðu. Við töldum áhugavæn- legra að taka fyrir menningu, sem ekkert okkar hafði kynnt sér, og völdum því Kina. Eg minnist þess með leiða, hve eg varð fyrir miklum von- brigðum, þegar eg kom til Austurlanda í æsku minni og fann, að mig skorti gersamlega undirbúning til þess að geta rnetið og notið gleði af umhverfi því og mönnum, sem eg komst í tæri við. Þessi undirbúningsskortur er undirrót alls misskiln- ings milli ])jóða. Við urðum að finna upp aðferð til þess að koma börnunum í nánari tengsl við menningu hinna ýmsu ])jóða.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.