Menntamál - 01.11.1931, Qupperneq 17
MENNTAMÁL
95
hlutinn voru Danir, þá Svíar (um 1000), Norðmcnn (5—600),
Finnar (3—400) og íslendingar (35). — Allmargir fengu gist-
ingu í skólum, sem nefndin liafði látið útbúa til þess. Var
sú gisting ódýr. A'Srir héldu til í gistihúsum eða hjá fjölskyld-
um úti um borgina.
Móttökunefndin hafðið láti'ð prenta og útbýtti til allra þátt-
takenda starfsskrá þingsins. Voru þar ákveðnir fundarstaðir
(9 alls), umræðuefni og fyrirlestrar (75), yfirlit yfir sýning-
una, sem opin var 6.—9. ág., skemmtiferðir, sem efnt var til
7. ág., söngvar, sem sungnir voru á undan og eftir fyrirlestr-
unum, slcrá yfir helztu söfn í Khöfn o. m. fl.
Sömuleiðis hafði nefndin látið gera fundarmerki með fána-
litum landanna, svo að menn bæru ]iað með sér, að þeir væru
þátttakendur og frá hvaða landi þeir væru. Forstöðunefndirn-
ar fengu merki með sérstakri gerð.
Aðalskrifstofa móttökunefndarinnar var í geysistórum sal í
,,Industri“-byggingunni við Ráðhústorgið. Var þar hverju landi
ætlaður ákveðinn staður, og höfðu forstöðunefndirnar þar að-
setur til að útbýta meðal þátttakenda þeim plöggum, er þeir
áttu að fá, og veita þeim allar nauðsynlegar upplýsingar. Úti
fyrir dyrum skrifstofunnar blöktu fánarnir fimm.
Aðgöngueyrir að mótinu var 10 kr. danskar. Nær það fé
skammt til að greiða allan kostnað. Þingtíðindin ein, sem allir
þátttakendur fá, þegar tilbúin eru, kosta eflaust meira en sem
aðgöngueyrinum nemur. Ríkissjóður Dana greiðir ]iað, sem þörf
er á, til þess að þingbaldið beri sig f járhagslega. Er það metn-
aðarmál hverrar ríkisstjórnar, að slík mót fari sómasamlega
úr hendi ,og ekki lakar en ,,á hinum bæjunum", þegar röðin
kemur að benni að taka á móti gestunum.
Ekki var laust við að sumir væru dálítið kvíðandi út af
sam1)úð Dana og Norðmanna á mótinu. En, sem betur fór,
reyndist sá kvíði ástæðulaus. Samlyndið virtist vera liið bezta.